V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Síða 27

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum - 28.05.1985, Síða 27
aratitil, Minningarmót Capablanca á Kúbu 1972, Novi Sad í Júgóslavíu 1972 og aftur 1973. Áriö 1974 teflir Lein i sveitakeppni fyrir Moskvu en síöan fölnar nafn hans á síðum rússneskra skák- blaða. Þremur árum síöar vann hann mjög sterkt skákmót, svo- kallað GHI-skákmót í Bandaríkjun- um 1977, og er þá fluttur búferlum til „Guös eigin lands“, þar sem hann hefur átt heima síöan. Þótt árin séu farin aö færast yfir er ekkert lát á taflmennsku Leins, hann er tíöur gestur á alþjóðlegum skákmótum. Á síöasta ári, 1984, sigraði hann á alþjóðlegu skákmóti í Berlín, 1.—3. sæti og í Grand Manan í Kanada, 1.—2. sæti. Þetta er þriöja mótið sem Lein teflir á hér á landi, Húsavík, Borgarnes og nú hér. Á Húsavík varö hann í 2. sæti, en í Borgarnesi gekk ekki eins vel. Nú er aö sjá . . . Jonathan D. Tisdall Fæddur 26.08 1958 Skákstig: 2420 Alþjóðlegur meistari 1981 Jonathan D. Tisdall er Bandaríkja- maöur en af norskum ættum eins og nafn hans gefur til kynna. Nú er þaö mjög í tísku vestanhafs, þar sem menn hafa á umliðnum öldum gert sér nýtt samfélag af ótal þjóöa- brotum, aö menn leita uppruna síns. Hvort sem Tisdall tekur þátt í þeirri miklu leit eður ei þá tefldi hann áriö 1983 í þremur skákmót- um í Gausdal í Noregi, varö efstur ásamt Píu Cramling í einu þeirra og í 2.—3. sæti í ööru, í bæöi skiptin hálfum vinningi fyrir ofan Margeir Pétursson. Tisdall hefur einnig teflt í ýmsum öörum Evrópulöndum á síöustu ár- um. Á skákmóti í Madrid 1982 varö hann efstur ásamt þremur öörum keppendum. Tisdall hefur stundaö skákfrétta- mennsku, skrifaöi m.a. um heims- meistaraeinvígi Karpovs og Kaspa- rovs í Chess Life. Þá var hann rit- stjóri Chess Express þar til þaö rit lagði upp laupana á síðasta ári. ™ % j íWM r—> i |^L ' f ; mBÍm <v>CrCl " ■■■" - j Z T L j BH Helgi Ólalsson i fjöllelli i Alþýduhúsinu i Vestmannaeyjum. 25

x

V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: V. alþjóðamótið, Vestmannaeyjum
https://timarit.is/publication/2058

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.