Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 7
Ástin er að mínu mati sterkasta aflið í litrófi tilfinninganna.
Hún tekur á sig ýmiskonar form og er hreyfiafl til góðs hvort
sem maður elskar maka sinn og börn, fjölskyldu, vini eða aðra.
Mikilvægast er að elska sjálfan sig eins og maður er. Ástin er það
sem gerir okkur að manneskjum og það eru mannréttindi að fá
að elska í friði. Það er óskiljanlegt að hinsegin fólk hafi þurft að
berjast fyrir rétti sínum til að elska. Í Hávamálum segir:
Hrörnar þöll
sú er stendur þorpi á.
Hlýr-at henni börkur né barr.
Svo er maður
sá er manngi ann.
Hvað skal hann lengi lifa?
Þetta þýðir í stuttu máli að enginn þrífist án ástar.
Fyrir mér er hinsegin baráttan mannréttindabarátta sem við öll
njótum góðs af og ég er þakklátur þeim sem standa þar í stafni.
Hinsegin dagar hafa fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af
borgarmenningu Reykjavíkur á þeim aldarfjórðungi sem liðinn
er frá fyrstu hátíðinni 1999. Hátíðin fyllir borgina af lífi og lit
og óneitanlega er hápunkturinn sjálf Gleðigangan — þegar um
þriðjungur íbúa landsins safnast saman í miðborginni til að
fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð.
Hinsegin dagar gegna óneitanlega stóru hlutverki í réttindabaráttu
á Íslandi — réttindabaráttu sem sannarlega hefur borið árangur.
Á þessu ári fögnuðum við góðum árangri í málefnum hinsegin
fólks þegar Ísland náði öðru sæti á Regnbogakortinu. Þó er ljóst
að enn er verk að vinna við að berjast gegn fordómum og fyrir
fullum réttindum hinsegin fólks í samfélaginu. Baráttunni er
ekki lokið og við öll þurfum að vera á varðbergi þegar bakslags
verður vart í samfélaginu.
Hinsegin dagar eru einstök menningarhátíð með glæsilegum
dragsýningum og glitrandi tónleikum ásamt fjölda annarra
fjölbreyttra lista- og menningarviðburða sem glæða borgina
lit. Í ár er það einmitt hinsegin menning sem er þema Hinsegin
daga 2024. Þá fimm daga sem hátíðin stendur yfir gefst okkur
öllum tækifæri til að fagna saman og njóta hinsegin menningar á
margvíslegum viðburðum.
Fyrir hönd Reykjavíkurborgar óska ég ykkur til hamingju með
farsæla réttindabaráttu og glæsilega hátíð og menningu sem við
öll megum vera þakklát fyrir.
Gleðilega Hinsegin daga 2024!
The pine tree wastes which is perched on the hill,
nor bark nor needles shelter it;
such is the man whom none doth love;
for what should he longer live?
(from Hávamál)
In short, what is life without love?
Also — love is love. This is a value I hold deeply, and I strongly
believe that the campaign for equality and human rights for all
is for the benefit of everyone.
Reykjavík Pride has had an important role in Reykjavik City
culture ever since the first festival was held 25 years ago, in 1999.
Reykjavík Pride transforms the city with vibrant colors and an
abundance of joy each year and the festivities culminate with the
very special Pride parade — when a third of the population of our
island nation gathers in the capital city to celebrate diversity in
all its hues.
It is important to recognize the large role Reykjavík Pride has
had in the campaign to secure the rights we all deserve. We have
many reasons to celebrate the achievements of the trailblazers
who fought for recognition and civil rights. This year Iceland is
proud of the recognition that accompanies reaching 2nd place
on the Rainbow Map. Nevertheless, there is still important work
to be done to ensure civil rights for all and to combat the rise
of prejudice and discrimination. It is as important, if not more
important than ever for all of us to show up and be vigilant to
any relapses in society.
We should also remember that Reykjavik Pride is a fabulous
cultural festival in its own right, with amazing drag shows and
glittery concerts amongst other diverse art and cultural events.
This year, the theme of Reykjavik Pride is LGBTQ+ culture.
On behalf of the City of Reykjavik I congratulate you for the
resilience, beauty and joy you have brought to the celebration
of LGBTQ+ culture and for the hard-won battles to secure equal
rights for all.
Happy Reykjavík Pride 2024!
Kveðja
frá borgarstjóra
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri
Einar Þorsteinsson, mayor of Reykjavík