Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 77

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 77
77 Hamraborg Festival er lifandi listahátíð sem haldin er árlega í lok ágústmánaðar mitt í hjarta Kópavogs. Hátíðin fer nú fram í fjórða sinn, frá 29. ágúst til 5. september, en á dag­ skránni verður fjöldi viðburða, sýninga og listasmiðja á vegum hinsegin listafólks sem fæst við hinseginleikann á eigin forsendum. Þá taka þátttakendur yfir verslunar- og skrif­ stofurými, veitingastaði, menningarhús og almannarými á Hamraborgarsvæðinu, þar sem listin leikur lausum hala og öll eru hjartanlega velkomin! Upphaf hátíðarinnar má rekja til listamanna­ rekna rýmisins Midpunkt, sýningarrýmis í Hamraborg, en Midpunkt var stofnað og rekið af þeim Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnason og Snæbirni Brynjarssyni frá árinu 2018 til 2021. Þá var Hamraborg Festival fyrst haldið árið 2021 en þrátt fyrir að hátíðin sé runnin undan rifjum sýningarrýmisins var eitt meginmarkmiðið að breikka svið þess og möguleika til sýningarhalds með því að búa til vettvang fyrir fleiri listamenn og enn fjölbreyttari verkefni, ásamt því að auðga menningarflóruna utan Reykjavíkur. Nú er hátíðinni svo stýrt af hópi hinsegin listafólks, þeirra Agnesar Ársælsdóttur, Joönnu Paw­ łowska og Sveins Snæs Kristjánssonar. Frá því að hátíðin hóf göngu sína hefur markmiðið verið að fagna mannlífi og menn­ ingu Hamraborgar, sérkennum hennar, sögu og arkitektúr, auk þess að efla tengsl við nærsamfélagið og íbúa svæðisins. Þá hefur frá upphafi verið lögð áhersla á að bjóða fjöl­ breyttum hópi listafólks tækifæri til að taka þátt, ekki síst með tilliti til þess að svæðið sjálft einkennist af miklum fjölbreytileika, en þannig er jafnframt leitast við að styðja við listafólk sem hefur mögulega átt erfitt uppdráttar innan senunnar og tryggja á þann veg að öllum líði vel á Hamraborg Festival. Eins er þetta í samræmi við stefnu hátíðar­ innar um að sýna verk hinsegin listafólks og gera tilraun til að hinsegja ólík rými. Í ár eru leiðarstef hátíðarinnar samvinna, samtakamáttur og sameiginlegir draumar — stef sem gera okkur kleift að byggja brýr og sjá fyrir okkur mismunandi framtíðarmögu­ leika sem rúma hinseginleikann. Listafólk sem tilheyrir hinsegin samfélaginu setur því sinn lit á dagskrá hátíðarinnar með fjölda viðburða og sýninga. Að sama skapi munu ýmsir listahópar eða listamannatvíeyki taka þátt í hátíðinni, auk þess sem þar má sjá sam­ starfsgjörninga. Meðal hinsegin þátttakenda í hátíðinni eru: Kamil Wesołowski, Sadie Cook, Ynda Eldborg, Rakel Andrésdóttir, Birkir Mar Hjeltested, Veðurvinir (Logn og Regn Sólmundur), Emil Gunnarsson og Sigtýr Ægir Kárason. Joanna Pawłowska, sem er einnig þekkt sem Jo, segir um möguleika hátíðarinnar: „Þegar við komum saman og lítum til framtíðar höldum við mikilvægu samtali um sögu og sérkenni Hamraborgar gangandi. Með þetta í huga vildum við búa til vettvang fyrir áfram­ haldandi samtal, sem er jafnt til þess fallið að varpa ljósi á drauma okkar og hvaðan við komum — á töfrana sem við búum yfir hérna mitt í hjarta Kópavogs.“ „Hamraborg er full af sköpunarkrafti og við njótum mikils stuðnings frá Kópavogsbæ, sem skiptir sköpum. Við erum einnig svo lánsöm að eiga sterkt bakland, þ.e. öflugan hóp af fólki og samstarfsaðilum sem telja það mikilvægt að styðja við hátíðina, að sýna stuðning við listræna tjáningu í ótal myndum, og hafa trú á gildi samtaka­ máttarins og getunnar til að láta sig dreyma,“ segir Jo. Fyrir sitt leyti bætir Jo einnig við: „Ég flutti hingað til lands frá Póllandi en ég tilheyri hópi þeirra sem eru hinsegin og kynsegin, auk þess sem ég er listamaður. Mín helsta ósk um að skapa, taka virkan þátt og virkja aðra listamenn og þenkjandi fólk grundvallast á vissu um það að ef við gerum eitthvað saman og styrkjum hvert annað, þá muni það gagnast okkur öllum á svo marga vegu og blási lífi í nýjar hugmyndir. Enn sem fyrr er hátíðin því rekin í því markmiði að styðja við ólíka listamenn og efla samstarf.“ Varðandi það hvernig sjá má hinseginleikann í almannarýminu á Hamraborg Festival hefur Jo þetta að segja: „Hinseginleikinn birtist í alls konar myndum. Þegar við virkjum al­ mannarýmið sem sýningarrými verður listin aðgengileg öllum án takmarkana, þar sem við fáum öll að njóta hennar, óháð aldri, kyn­ vitund, samfélagsstöðu, eigin bakgrunni eða lífsreynslu. Þegar við virkjum hversdagsleg rými — verslanir, skrifstofur, veitingastaði — ýtum við undir þá hugmynd að þessi rými tilheyri okkur öllum og séu staðir fyrir öll til að koma saman. Með því að hinsegja rýmin brjótum við í bága við hefðina og litum út fyrir línurnar, sem er alltaf spennandi. Jo bætir við að lokum: „Það sem mér hefur alltaf þótt áhugavert er að skoða hvernig við notum eiginlega almannarými. Hvað er eiginlega rými? Hvernig getum við nálgast og notað almannarými á nýjan hátt sem lista­ menn? Hvernig getum við stofnað til sam­ tals og búið til nýjar tengingar þar sem við bjóðum öðrum að fást við þetta samhengi og kanna sögu Hamraborgar? Með því að bjóða fjölbreyttum hópi listamanna að takast á við almannarýmin í Hamraborg fáum við að fylgjast með því hvernig þau nálgast rýmin og endurtúlka þau út frá eigin aðferðafræði, þar sem það eru óteljandi möguleikar til að vera skapandi og vinna saman.“ Hægt er að kynna sér Hamraborg Festival á heimasíðu hátíðarinnar hamraborgfestival.is. Hamraborg Festival: An Attempt at Queering Hamraborg Hamraborg Festival is an annual celebration of arts and togetherness in the heart of Kópavogur. The fourth edition, taking place between August 29th and September 5th, will showcase a variety of queer artists and workshops that deal directly with being queer and the act of queering as transgressive practice. The festival’s artists show their works in local shops, offices, restaurants, culture houses and public spaces located in Hamraborg, where art is everywhere and everyone is welcome! For more information about Hamraborg Festival, please visit hamraborgfestival.is. Viðtal við Joönnu „Jo“ Pawlowska Sveinn Snær Kristjánsson Hamraborg Festival Tilraun til að hinsegja Hamraborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.