Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 24
24
Orðið rómantík er í orðabók skilgreint sem
það sem varðar ástir. Við hinsegin fólk eigum
það mörg sameiginlegt að hafa fundið fyrir
skömm á svipuðum slóðum og við finnum
fyrir ást eða hrifningu. Þess vegna dýrka
undirrituð bækur sem styrkja og fagna ást (og
þrá og kynlífi) hinsegin fólks. Á dögunum
kom út íslensk skáldsaga sem tilheyrir þessum
flokki, Ljósbrot eftir Ingileif Friðriksdóttur,
og við vonum að gullöld íslenskra hinsegin
ástarsagna sé nú hafin. Við hvetjum lesendur
Tímarits Hinsegin daga því eindregið til þess að
gleyma sér í undraheimi ástarsögunnar — og
setjast svo við skriftir! Við þurfum ekki alltaf
raunsæi og fagurbókmenntir, við eigum það
líka skilið að lesa bækur sem gleðja okkur
einfaldlega og þar sem allt endar vel.*
*Hér vildi Villi Ósk koma með happy ending
brandara en Þorbjörg stöðvaði hán með harðri hendi.
Alexis Hall
Við, höfundar þessa bókahorns, erum haldin
(algjörlega venjulegu og alls ekki þráhyggju
kenndu) æði fyrir breskum höfundi sem
skrifar undir skáldanafninu Alexis Hall.
Það er óhætt að segja að hann sé gríðarlega
fjölhæfur penni, en við urðum ástfangin af
skrifum hennar þegar við lásum bókaflokkinn
Spires. Flokknum má lýsa best sem könnun á
því hvað tengir og sameinar tvo einstaklinga,
hvenær hægt er að brúa bilið á milli þeirra og
hvenær bilið er einfaldlega of stórt. Það sem
einkennir rómantískar bækur Alexis Hall
fyrst og fremst eru frábærar lýsingar á nánd,
sérstaklega góð persónusköpun og húmor
sem fær mann til þess að hlæja upphátt. Hér
eru þrjár uppáhaldsbækurnar okkar eftir
hán:
A Lady for a Duke
I cannot meet him as a stranger. But he has never
known me as myself.
Hvað þarf trans kona á 19. öld að gera til
þess að geta lifað sínu rétta lífi? Árið er 1815.
Viola nýtir sér glundroðann í orrustunni við
Waterloo, yfirgefur besta vin sinn, lætur sig
týnast og skapar sér nýtt líf sem kona — án
allra titla og auðæfa. Nokkrum árum síðar
krefst húsfreyja hennar að hún fari með
henni á setur hertogans Gracewood, til þess
eins að uppgötva að hann er fullkomlega
niðurbrotinn yfir andláti besta vinar síns.
Getur hún sagt honum sannleikann? Mun
Gracewood þekkja hana aftur? Trans aðal
persóna, heitur hertogi, neysla, þunglyndi
og sjóðheit ást — allt í 19. aldar búningi.
For Real
I want to give him everything, and the things I can't
give, I want him to take.
Laurie er bráðalæknir á fertugsaldri sem er
orðinn langþreyttur á kink-senunni í London.
Hann hefur fyrir löngu gefist upp á því að
finna ástina aftur, enda hefur hann verið í
sex ára samfelldri ástarsorg. Toby er ungur
og algjörlega óreyndur á senunni en veit ná
kvæmlega hvað hann vill. Við tekur ástar
saga þar sem BDSM spilar stórt hlutverk
í því að sýna nándina sem verður til á milli
þessara ólíku einstaklinga.* Bókin er troð
full af angist, kynlífi og ást sem brúar bil sem
virðast allt of stór í fyrstu, enda er hún hluti
Spires-seríunnar. Hinar bækurnar í þessari
laustengdu seríu heita Pansies, Waiting for the
Flood og Glitterland. Við mælum með þeim
öllum.
*Varúð, þessi bók er hot as hell.
Boyfriend Material
I think what you're underestimating here is how
much better I can get and still be a complete
disaster.
Lucien O’Donnell er sonur tveggja rokk
stjarna frá níunda áratugnum og eilíft við
fang bresku slúðurpressunnar. Eftir birt
ingu enn annarrar óheppilegrar myndar af
honum þar sem hann liggur eins og dauða
drukkinn á götunni með kanínueyru er hann
á barmi þess að missa vinnuna. Eina leiðin
sem hann sér út úr því er að kynnast manni
sem nýtur virðingar og reyna með því að
bæta ímynd sína. Úr verður að hinn kaótíski
Luc og strangi lögmaðurinn Oliver Black
wood, sem Luc hefur raunar aldrei þolað,
þykjast vera saman. En hvenær eru þeir að
þykjast og hvenær er tengingin raunveru
leg? Frábærlega skemmtileg bók með frekar
ótrúverðugum en óendanlega fyndnum auka
persónum, hinsegin vinahóp sem við viljum
vera í og ástarsögu sem er jafn fyndin og hún
er hjartnæm.
Villi Ósk Vilhjálms og
Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Ást á
prenti
Queer Love in Print
We hope that we are witnessing the dawn
of a golden era of romance novels, written
by Icelandic authors and focusing on queer
love. Presented here is a selection of queer
romance novels for readers to check out and
perhaps even get inspired to pick up the pen.