Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 7

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 7
Ástin er að mínu mati sterkasta aflið í litrófi tilfinninganna. Hún tekur á sig ýmiskonar form og er hreyfiafl til góðs hvort sem maður elskar maka sinn og börn, fjölskyldu, vini eða aðra. Mikilvægast er að elska sjálfan sig eins og maður er. Ástin er það sem gerir okkur að manneskjum og það eru mannréttindi að fá að elska í friði. Það er óskiljanlegt að hinsegin fólk hafi þurft að berjast fyrir rétti sínum til að elska. Í Hávamálum segir: Hrörnar þöll sú er stendur þorpi á. Hlýr-at henni börkur né barr. Svo er maður sá er manngi ann. Hvað skal hann lengi lifa? Þetta þýðir í stuttu máli að enginn þrífist án ástar. Fyrir mér er hinsegin baráttan mannréttindabarátta sem við öll njótum góðs af og ég er þakklátur þeim sem standa þar í stafni. Hinsegin dagar hafa fest sig í sessi sem mikilvægur hluti af borgarmenningu Reykjavíkur á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá fyrstu hátíðinni 1999. Hátíðin fyllir borgina af lífi og lit og óneitanlega er hápunkturinn sjálf Gleðigangan — þegar um þriðjungur íbúa landsins safnast saman í miðborginni til að fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð. Hinsegin dagar gegna óneitanlega stóru hlutverki í réttindabaráttu á Íslandi — réttindabaráttu sem sannarlega hefur borið árangur. Á þessu ári fögnuðum við góðum árangri í málefnum hinsegin fólks þegar Ísland náði öðru sæti á Regnbogakortinu. Þó er ljóst að enn er verk að vinna við að berjast gegn fordómum og fyrir fullum réttindum hinsegin fólks í samfélaginu. Baráttunni er ekki lokið og við öll þurfum að vera á varðbergi þegar bakslags verður vart í samfélaginu. Hinsegin dagar eru einstök menningarhátíð með glæsilegum dragsýningum og glitrandi tónleikum ásamt fjölda annarra fjölbreyttra lista- og menningarviðburða sem glæða borgina lit. Í ár er það einmitt hinsegin menning sem er þema Hinsegin daga 2024. Þá fimm daga sem hátíðin stendur yfir gefst okkur öllum tækifæri til að fagna saman og njóta hinsegin menningar á margvíslegum viðburðum. Fyrir hönd Reykjavíkurborgar óska ég ykkur til hamingju með farsæla réttindabaráttu og glæsilega hátíð og menningu sem við öll megum vera þakklát fyrir. Gleðilega Hinsegin daga 2024! The pine tree wastes which is perched on the hill, nor bark nor needles shelter it; such is the man whom none doth love; for what should he longer live? (from Hávamál) In short, what is life without love? Also — love is love. This is a value I hold deeply, and I strongly believe that the campaign for equality and human rights for all is for the benefit of everyone. Reykjavík Pride has had an important role in Reykjavik City culture ever since the first festival was held 25 years ago, in 1999. Reykjavík Pride transforms the city with vibrant colors and an abundance of joy each year and the festivities culminate with the very special Pride parade — when a third of the population of our island nation gathers in the capital city to celebrate diversity in all its hues. It is important to recognize the large role Reykjavík Pride has had in the campaign to secure the rights we all deserve. We have many reasons to celebrate the achievements of the trailblazers who fought for recognition and civil rights. This year Iceland is proud of the recognition that accompanies reaching 2nd place on the Rainbow Map. Nevertheless, there is still important work to be done to ensure civil rights for all and to combat the rise of prejudice and discrimination. It is as important, if not more important than ever for all of us to show up and be vigilant to any relapses in society. We should also remember that Reykjavik Pride is a fabulous cultural festival in its own right, with amazing drag shows and glittery concerts amongst other diverse art and cultural events. This year, the theme of Reykjavik Pride is LGBTQ+ culture. On behalf of the City of Reykjavik I congratulate you for the resilience, beauty and joy you have brought to the celebration of LGBTQ+ culture and for the hard-won battles to secure equal rights for all. Happy Reykjavík Pride 2024! Kveðja frá borgarstjóra Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Einar Þorsteinsson, mayor of Reykjavík
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.