Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Blaðsíða 87
87
Við vitum öll að sagan okkar er mikilvæg —
en það er undir okkur sjálfum komið að varðveita hana.
Innan Samtakanna ‘78 starfar nú sjálfstæður hópur áhugafólks um
varðveislu persónulegra gagna sem varða hinsegin líf og tilveru frá
öllum tímaskeiðum. Markmið hópsins er að aðstoða fólk við að ganga
frá persónulegum munum til afhendingar og vinna að varanlegri
lausn varðandi aðgengi og varðveislu. Það er flókið að gefa persónu
lega hluti, sér í lagi þá sem fjalla um efni sem snerta hinar dýpstu
hjartarætur, en eins og við vitum er sýnileiki eitt beittasta vopnið
okkar í baráttunni fyrir bætum heimi og því er mikilvægt að verða
ekki sögulegri gleymsku að bráð. Okkur er umhugað um að vandað
sé til verka hvað varðar persónuvernd, varðveislu og aðgengi og því
er þetta hægfara verkefni sem unnið verður með fagfólki á sviði
skjalasafna og varðveislu.
Allar sögur eru mikilvægar!
Hinsegin samfélagið er margradda kór og okkur er umhugað
um að fanga fjölbreytileikann innan hópsins. Við viljum varð
veita sögur þeirra sem voru virk í pólitískri baráttu, þeirra sem
sátu á hliðarlínunni, þeirra sem ekki áttu samleið með hreyfing
unni, þeirra sem komu seint eða aldrei út úr skápnum, þeirra sem
hrökkluðust aftur inn í skápinn og þeirra sem aldrei voru í neinum
skáp.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Erla Hafsteinsdóttir
(heh@hi.is) og svo má senda fyrirspurnir á netfangið
vardveisla@samtokin78.is
ástarbréfum, dagbókum, ljósmyndum, fundargerðum, greinaskrifum,
barmmerkjum, skiltum, skúffuljóðum, plakötum sem tengjast sögu
hinsegin fólks á Íslandi?
Being your
amazing, beautiful,
authentic,
unapologetic, resilient,
free-spirited, marvellous,
extraordinary,
stereotype-shattering,
one-of-a-kind,
dazzling, creative,
fabulous,
binary-breaking,
true self :