Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Side 92
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga.
Í henni sameinast hinsegin fjölskyldan, ásamt
stuðningsfólki, í ákalli um sýnileika, kröfu um
meiri réttindi og áminningu um þau baráttu
mál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni.
Gleðigangan dregur nafn sitt af þeirri gleði
sem við upplifum yfir áunnum réttindum og
liðsheild hinsegin fjölskyldunnar en gangan
er þó ekki síður kröfuganga þar sem barist er
fyrir hagsmunum hinsegin fólks.
Hinsegin dagar skipuleggja Gleðigönguna
en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og
einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði
og skráð sig til þátttöku í göngunni. Skilyrði
fyrir þátttöku er að atriðin miðli skilaboðum
sem varða veruleika hinsegin fólks á einn
eða annan hátt og að atriði samræmist stefnu
hátíðarinnar um þátttöku og öryggi.
Athugið að ekki er hægt að veita atriðum aðgang að
göngunni nema rafræn umsókn hafi verið send inn
og skilmálar samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu á að þau sem
vilja ganga með en hafa ekki sótt um þátttöku
og eru ekki með sérstakt atriði bíði með að
slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur
farið framhjá.
Gönguleið
Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju
stundvíslega kl. 14:00 og bíður ekki eftir
neinum. Gengið verður niður Skólavörðustíg,
Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuveg og
endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn
þar sem við tekur glæsileg útihátíð að göngu
lokinni.
The Pride Parade
Groups that wish to participate in the parade
must apply to Reykjavík Pride before August
1st by filling out a form on the website,
reykjavikpride.is. For further information
about the parade, please contact the parade
managers via gongustjorn@hinsegindagar.
is. The parade starts at 2:00 pm sharp and
goes from Hallgrímskirkja Church, down
Skólavörðustígur, Bankastræti, Lækjargata
and Fríkirkjuvegur. The parade concludes at
Sóleyjargata, near Hljómskálagarður Park,
where an outdoor concert takes place.
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir
steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki
velkomin í Gleðigöngu Hinsegin daga. Við
göngum í þágu mannréttinda og mann
virðingar og biðjum gæsa- og steggjapartí
vinsamlega að finna sér annan vettvang.
Gleðigangan
Frá Hallgrímskirkju,
Laugardaginn 10. ágúst kl. 14:00
From Hallgrímskirkja church,
Saturday August 10th at 2:00 pm
The Pride Parade