Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.07.2024, Qupperneq 106
Hringiða hátíðarhalda Hinsegin daga verður
í IÐNÓ alla vikuna, þar sem svokallað
PRIDE CENTRE verður starfrækt annað árið
í röð. Eins og í fyrra þá mun þar fara fram
fjölbreytt flóra viðburða á sviði fræðslu,
menningar og skemmtunar. Einnig verður
Kaupfélag Hinsegin daga starfrækt í húsinu,
ásamt því sem gestir og gangandi geta keypt
sér veitingar, sest niður og spjallað um
hinseginleikann og baráttuna. Húsnæðið er
aðgengilegt hjólastólum. PRIDE CENTRE
verður opið daglega frá 5. til 10. ágúst.
hinsegin fólks á Hinsegin dögum
Félagsheimili
Litríkasta kaupfélag landsins
Enn á ný opna Hinsegin dagar litríkasta kaup
félag landsins þar sem seldar verða ýmiss
konar regnbogavörur, meðal annars fánar,
fatnaður, nælur og skraut. Þá verða vörur frá
íslenskum hönnuðum til sölu, til dæmis regn
bogakerti frá Hjartastað, handgerðar sápur
í regnbogalitum frá TitanWorks, regnboga
vettlingar og skotthúfur frá Tíru.
Pride Centre — Our Home For a Week
This year’s PRIDE CENTRE will be located at
IÐNÓ, Vonarstræti 3, by Tjörnin, and will be
filled with educational events, concerts, drag
shows and other cultural events. In addition,
the PRIDE CENTRE will house our infor
mation centre and PRIDE STORE, where we
offer a wide selection of rainbow merchandise
for sale, such as flags, pins and handmade
design items. PRIDE CENTRE will be open
daily from August 5th to August 10th.
Í samstarfi við Sky Lagoon