Freyja - 01.02.1900, Qupperneq 9
FREYJA
FYRIRLESTUR
UM
KVENNFRELSI.
SAMINN AF
MRS. KRISTINU THORSON,
Marshall, Lyon Co. Minn.
[Framhald.J
Hfin sagði. að það hefði verið algengt, að systkynuin,
með jöfnum hæfileikum hefði verið skift þannig, að bróð-
irinn hefði verið sendur fi „college," en systirin hefði
setið heima. Mönnum hefði verið hulið, hver munur
væri á búskap og barnauppeídi hinnar menntuðu ogó-
menntuðu konu. Það hefur lfklega verið um saina leyti
og við vórum svo réttluíar á Islandi, að systirin m&tti
aðeins erfa helming á móti bróður sfnum. Ilún sagði
að þá hefði konan tekið þann einn þátt í guðsþjónust-
unni, að henni hefði verið leyft að singja við cinstöku
tækifæri. En nú væri þjóðin komin svo langt, að híin
vildi heldur hlusta á konu, sem kynni að prédika, en
karlmann sem kynni það ekki.
Eins og áður hefur verið á minnst og ðllum er
kunnugt, er kvennfrelsi og félagslff kvenna yfir höfuð
á háu stigi hér í landi, oger það verk þcirra sjálfra.
Þessar framtakssömu konur, sem margar hafa varið
allri æfi sinni til að bæta kjör kvenna, og ávinna þeim
frelsi og réttindi, er nú orðinn fjölmennur flokkur, og
fær um að halda kvennaþing upp á eigin hönd.
Mér barst rétt núna í hendur fyrirlestur eftir próf.
Elliott Coues, sem hann hélt í Chicago 26. apríl '88, og
var hann þá nýkominn frá Washington,og hafði einmitt