Freyja - 01.09.1900, Page 20
164
FREYJA
ur föðnr sínum í kvennafari, hann
var aldrei bendlaður við aðrar en
þessar tvær konur. Aftur vaf sagt
að faðir hans hefði fjölgað mann-
kyninu á Italíu til góðra
muna. Þessvegna var það, að ein-
hver gáskafullur náungi stakk upp
á því, að ítalir lánuðu Frökkum
hann, því, þá var mannfæð mikil á
Frakklandi.
Meðan sumir hæla Humbert kon.
fyrir það, hve vel hann hélt eiða þá
er hann sór ríkisráðinu, lasta aðrir
hann fyrir afskiftaleysi og lijárænu-
skap í að láta framfylgja ríkislögun-
um, út í yztu æsar, og ætla að meiri
strangleik i hefði komið í veg fyrir
ýins vandræði. Enværi hann afskift-
alaus í heimamálum, þá átti það ei
við í erlendum málum. Hann var
eins mikill hvatamaður og Crispa,
að Italir gengu í gamla þrenningar
sambandið, skömmu eftir að hann
tók við ríki. Það var og að hans
ráði að ítalir fóru að seilast eftir ný-
lendum við liauðahafið, sem endaði
með ósigrinum við Adowa. Þó
nægði það ekki til að sannfæra hann
um að nýlenduhugmyndir væru ekki
heppilegar fyrir ítali, því hann sýndi
tilhneiging til að ná í skanka af
Kína ef tækifæri byðist.
I stjórnmálum Italíu er Róm
þungamiðjan. Það var til að vernda
hana fyrir árásum frá Frökkumað
Italir gengu í gamla sambandið.
Engin tilraun liefur gjörð verið til
þess að saman gengi með páfanum
og konungssinnum, en tíminn hefur
dregið úr liatrinu, svo aðkoma hins
nýja konungs er þeim mun friðlegri
en var aðkoma föður hans.
Þegar litið er yflr rlkisstjórn Huin-
berts konungs verður ekki sagt, að
hann hafl gjört mikið til að hefja
þjóð sína. Ekki heldur hafa henni
viljað nein stórslystil áþví tímabili,
að undanskildum Abyssiníu ófriðn-
um og kostnaðinum við sambandið.
Sem hermaður, gjörði hann mjög
vel. Sem konungur, fullnægði hann
skyldum sínum án sérstakratilþrifa,
en með sömu samvizkusemi sem ein-
kenndi hann sem mann hvervetna.
Hann var vænn maður, hugprúður
hermaður, en ekki neitt framúrskar-
andi sem konungur.
Sonur hans, Victor Emanúel III.
sem tekur við ríki eftir föður sinn,er
fremur smár vexti.og hefur enn sem
komið er ekki gefíð sigað stjórnmál-
um, eða látið á neinn annan hátt til
sín taka, nema livað hann lét-
óánægju sína i ljósi yfir hrakförum
Crispa í Abyssiníu leiðangrinum.
Heimurinn bíður með óþreyjufuliri
eftirvænting kveðjuorða hins nýja
konungs.
Þessi hafa borgað 3. árg. Freyju:
Mrs. G Jóhannsson Winnipeg $1
miss K. M. Kri8tjáu8dóttir “ “
Þórhildur Gillis “ 50c.
mrs. O. F. Anderson “ “
Friðrik Jónsson “ 75c.
mrs.K.H.Kristjánsson Selkirk $1
Sigurgeir Stefánsson “ “
V. Yigfúsdóttir “
Th. Oddson
mis8 H. ísherg
mrs. S. Benson
Björg Vestdal
Sigvaldi Jónsson
Sigriður Jónsdóttir
mrs. M. Magnússon
50c
Wild Oak $1
Otto
Ieel. River “
Hecla “
Hnausa $1
50c