Freyja - 01.05.1901, Page 3

Freyja - 01.05.1901, Page 3
FIiEYJA l>3 Þá mun sá guð, er veitti frægð til forna, fósturjörð vora reisa endurborna, þá munu bætast harmasár þess horfna, hugsjónir rætast. Þá mun aftur morgna. Vetrarlok. [Þessi tvö eftirfarandi kvæði voru flutt á samkomu Safn - aðarkvennfélagsins í Selkirk á sumardaginn fyrsta 1901.) Lap: Oft kallar liugur á þig blídum rómi. Að segulási svífur liæruskotinn inn svalbrjóstaði — vorum byggðum frá— Vindlónason, með hrukkur, herðalotinn, með hjarta kalt og svelli krýnda brá, um hálfs árs dvöl, að fyllast fjöri nýju við frost og Is, við norðurhjara skaut; á meðan sumar fórnar hjarta hlýju og huggar, gleður, eyðir sorg og þraut. Hvert auga gleður geisli vorsins hlýja og glæðir nýja von í hverri sál þá vetur verður fyrir sumri’ að flýja með frost og snjó og gadd, um sumarmál. Ó, blessuð stund, er bjartir lækir renna og blikar lundur, vorskrýddur á ný. Ó, signuð stund, er sólarkindlar brenna og senda nýjan lífskraft byggðir í- Ó, far þö, vetur, vel til Jötunheima, svo vorsins ylur komist til vor lieim, og hinnig nái’ úr hjörtuin vorum streyma liver heiptar fs sem kann að bfia’ í þeim. Iæyf vorsins sól að yla allt hið kalda, leyf ástarblómi að gróa í hverri sái, og heyg í rústum hinna liðnu alda hvern hatursbólstur, öll um sumarmál. S. B. BENEDICTSSON.

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.