Freyja - 01.05.1901, Page 4
64
FREYJA
Sumarkoma.
Lag: Inn litli fnpl frá hiýjum lieim.
Nú klæðist grund í grænan kjól
og geislum skautar hlýjum,
því nú er runnin sumar-sól
á sumarmorgni nýjum.
Nú er vor á veldisstóli.
Nú vaknar allt af vetrarblund,
nú verður skógur fagur,
nú gyllir loft og láð og sund
inn ljúfl sumardagur.
Nú er vor á veldisstóli.
Nú syngur allt með unaðs hreim
sín ástarljóðin þýðu, •
og sól og blær úr suðurheim
oss sanna vorsins blíðu.
Nú er vor á veldisstóli.
Oss morgungeislar minna á
vort móðurlandið kæra
og vorrar æsku unun þá,
sem oss nam vorið færa.
Nú er vor á veldisstóli.
Vér fyllumst sælu og söknuð með,
því sérhver endurminning
fær bæði sælu og sorgir léð,
hún sýnir tap og vinning.
Nú er vor á veldisstóli.
Þó vel hér flest að unum oss,
vér oft með tár á kinnum
með suðrænunni sendtun koss
til Snælands mörgum sinnum.
Nú er vor á veldisstóli.
S. B. BENEÐICTSSOX.