Freyja - 01.05.1901, Page 6
06
PliEYJA
bæði af því að hún er málari oghef-
ur þess vegna æft auga fyrir litfeg-
urð, og af því hún kann að stjórna.
Faðir hennar og bræður voru vegg-
fóðrarar og hún lærði þ'i iðn af þeim.
Eftir það stúderaði hún allskonar
tízku um þesskonar efni og vann
svo við að skreyta leikhús fyrir leik-
fölög. Og sfðast hefur hún unnið
undirumsjón einhvers hins mesta
snillings í þesskonar efnum — þess
manns, sem fegurð sýningarinnar cr
mest að þakka.
Það var ekkert smáræðis verk að
skreyta allar þessar byggingar inn-
an, þar sem múrveggirnir voru ber-
ir og ómálaðir, þurfti að gjóra það
allt með fiöggum, tjöldum o; blóm-
um. Peningarnir voru líka takmark-
aðir. Tii þess að vita fyrir víst að
peningarnir hrykkju, þurfti fyrir
fram að útreikna verð á hverju ein-
asta fiaggi, veggtjaldi og blómi upp
áct, og mæla veggi og þakhvelfing-
ar upp if þnmlung. Þeir sem hafa
þetta starfáhendi skreyta bygging-
arnar þar til ekki eru eftir nema 20
fet til jarðar. Þann hluta skreyta
sýningardeildirnar sjálfar liver eftir
sínu höfði. Hver bygging hefursinn
sörkennilega lit, sem verður að
stemma við muni þá er sýna átti í
hverri fyrir sig. T. d. er rafurmagns-
byggingin skreytt með ljósgrænu,
svo liturinn kæmi ekki í bága við
eða dragi úr rafljósadýrðinni. Aftur
er iðnaðarbyggingin blá og gilt,
völabyggingin ijós og dökkgul og
námabyggingin rauð og gul o.s.frv.
Ungfrú Tliorp átti að sjá um allt
þctta, svo til að geta leyst það verk
velafhendi, ferðaðist hún í fyrra
snmar til ýmsra merkustu staða í
Evrópu og koin um leið við á París-
arsýningunni. Þegar hún komheim,
málaði hún uppdrætti af litum þeim
er skreyta skyldi hverja byggingu
út af fyrir sig.
Þó skrifsofa ungfrú Thorp sé lítii,
er hún engu síður eftirtektaverð. A
veggjunum úir og grúir af tjalda-
prufum og afklippum; og gólfið er
þakið af málverkum og öðrum mun-
um sem síðar voru hafðir til að
skreyta þessar byggingar með.
Verkið sjálft n. 1. að hengja tjöldin
svo vel færi og koma hverju blómi
og hverju flaggi á sinn stað, var
ekkert smáræði, enda hafði hún 40
menn í þjónustu sinni; og allir þess-
ir menn virða hana bæði sem verk-
stjóra og konu. Hún hefur engu
tapað af kvennlegheitum sínum við
að læra og relca sérstaka atvinnu-
grein. II ún er gott sýnishorn hinna
amerikönsku kvenna, sem gjöra
sinn skcrf af nauðsynjastörfum
heimsins, án þess að hætta að vera
sannar konur.
Eitt af því marga eftirtektaverða
á sýningunni eru myndastytturnar,
og einnig þar hafa konurnar lagt
sinn skerf til. „Astaguðinn og snig-
illinn“ við uppsprettu ,alsnægtanna‘
var teiknuð af ungfrú Janet Scudd-
er í New York. Og fæðing „Venus-
ar“ og „Atheuu“ voru tilbúnar af
likneskjusmiðnum Tonett og konu
hans. Þessi sama kona teiknaði líka
myndastyttu Columbusar sem stend-
ur framundan stjórnarbyggingunni
í Chicago. Einnig er þar önnur
mynd úr gibs, sem síðar var steypt
úr eirblöndnum málmi. Jlynd þessi