Freyja - 01.05.1904, Side 5

Freyja - 01.05.1904, Side 5
VL jo. FREYjA 209 um fegnir að rí&a með afturluktumaugum svo viö sæum ekki niöur í hyldýpiö, sem gapti undir fótum okkar, en treysta eingöngu á fót- heppni reiöskjótanna. Um nónbilið hvíldum við okkur í kofa hjá Indíána nokkrum, sýndi hann okkur hina mestu gestrisni og vildi ekkert fyrir taka. Eftir þetta lá leið okkar í ótal krókum fram og aftur yfir Daguaána. A þriðja degi frá því að við fórum frá Hauntus, áðum við rétt fyrir sólsetrið á hæstu hœðinni sem vegur- inn lá um, hvaðan við sáum yfir hið undurfagra og frjóa hérað— Cíuua-áa.\inn, þar sem borgin Cale (eða Carli) liggur í sinni ei- lífu kirrð með sín fögru hvolfþök, fornhelgu turna og sígrœnu skógargöng. Snemma um morguninn héldum við af stað of- an af fjallinu, komum til borgarinnar kringum kl. 2 og fórum í gegnum hana án þess að sjá nokkra hreyfingu nokkurstaðar. Kom það til af því, að öll störf eru þar æfinlega lögð til síðu frá kl. 10 á morgnana til kl. 4 eftir miðdag. Þessi tími er sannkallaður hvíldartími allra þar. Verzlun og önnur störf eru þar rekin á morgnana fyrir kl. 10 og eftir kl. 4 á dagin. Cali var byggð í kringum 1556 og taldi á sínum beztu árum 15,000 íbúa. Nú telur hún þó ekki nema 7,000, stafar sú fólks- fœkkun af sífelldum innbyrðis ófriði. Borgin sténdur á austur- bakka Cali árinnar. Hún er skipulega byggð, göturnar stein- eða hellulagðar. Eftir beztu götum borgarinnar rennur gnœgð af silf- urtæru vatni í lokuðum skurðum. Allar gangstéttir eru á tveggja feta háum stólpum, en meðfram þeim og flestum gangstígum eru stórvaxin, yndisleg aldintré alþakin suðrænum aldinum, en mest er þó af appelsínutrjám. Flest eru húsin úr mjúkum múrsteini, kölk- uð utan og innan, með háreist hvolfþök úr tigulsteini. Gluggar og vindaugu eru á þökum uppi, var sú aðferð tekin upp á ófriðartím- um til að komast hjá því að vera skotinn gegnum gluggana eins og þá var títt. Fyrir þessum gluggum og vindaugum voru járn- eða tré grindur. Gólfin eru annaðhvort hellulögð eða ber bálkurinn. Húsmunir eru annaðhvort engir eða 1-2 trébekkir og 1 rúm úr bambusreyr. Auk þessa eru hengirúm tíð í húsum efnafólksins. Kringum húsin eru stórir listigarðar, fram undan hverju húsi, fram að brautinni veit aðal hliðið og er það svo breitt að tveir ríðandi menn geta farið samhliða inn um það. Kringum hús þessi eru há- ir og sterkirveggir, endahafaþeir á ófriðartímum verið notaðir fyrir vígi. I hengirólum sínum eyðir ríka fólkið mestum hluta æfi sinn-

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.