Freyja - 01.12.1909, Blaðsíða 6

Freyja - 01.12.1909, Blaðsíða 6
102 FREYJA XII 5. „Búa ekki Islendingar í þessu húsi?“ sagði ég á ensku. ,,Hví spyrðu að því?“ svaraði hún, nam staðar og hnykiaði augabrýrnar ofurlítið, „Þ ú ert ef til vill íslenzk,“ sagði ög á íslenzku, en þó með hálfum huga. Það var eins og henni yrði hálf bilt við. Hnyklarnir hurfu samt úr augabrúnunum ogundrunarsvipur færðist yfir alt andlitið. „ Jú, ég er íslenzk,“ sagði hún, en ég átti ekki von á því að ég yrði ávörpuð á íslenzku hér úti á götunni." Eg sagði henni nú í fám orðum hvernig á því stæði að ög væri þar í bænum, og hvernig það hefði atvikast að ög hefði orðið þess var að Islendingar ættu heima í þessu húsi. Hún sagði að sér þætti vænt um að sjá íslending, en kvaðst ekkert get-a við mig talað að svo stöddu, því hún væri að fara til vinnu sinnar, en hún bað mig að heimsækja sig eftir hádegi næsta dag, afþví þá væri sunnu- dagur og hún yrði heima, Eg þakkaði boðið og höt að koma. Svo kvaddi hún mig, hélt austur í bæinn og næstum hl jóp við fót. Um leið og ég gekk fram hjá húsinu, sá ög börnin komu út í garðinn og gamla konan með þeim.var hún að tala við þau á ensku. Eg fór heim á prestsetrið skömmu fyrir hádegið, og var þar það sem eftir var dagsins, Og svo leið dagur, að ekki kom Dan- íel heim, Fór ég þá að hugsa, að ég myndi ekki sjá hann áður en ég færi vestur, Enda varð sú raunin á, En peningana sem hann átti að afhenda mör, fengum við með góðurn skilum seinna um sumarið, þegar við vorum komin til Winnipeg. Þó vonir mínar brygðust, að því er heimkomu Daníels snerti, var ég nú rólegur á prestsetrinu fram til mánudags, af þvi ég átti von á að fá að tala við íslenzku konuna daginn eftir. Eg fór til kyrkju fyrir hádegið á hvítasunnudag, en þegar kl. var tvö.lagði ég af stað til litla hússins við lækinn, 0g var léttstíg- ur. Húsið var opið, þegar ég kom þar og stóð hin unga íslenzka kona í dyrunum og bauð mér inn. í húsinu voru aðeins tvö lítil herbergi, var annað svefnherbergi og eitt rúm í því, en hitt var bæði eldhús og borðstofa, Alt varþarfremur fátæklegt, en hreint og þokkalegt. Enga sá ég þar aðraen konuna og börnin tvö. Gamla konan var þar ekki þann dag, Ég leit í kring til að vita, hvort ég sæi nokkuð. er, benti á það, að karlmaður ætti þar heima, en sá ekkert er bæri þess minsta vott. Forvitnin brann 0g logaði í mér. Mig langaði einhvervegin n

x

Freyja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.