Freyja - 01.12.1909, Side 14

Freyja - 01.12.1909, Side 14
I IO FREYJA XII 5. „Komdu inn og setta þig-niður við dyrnar, þar sem ferska loftið nær til þín. Eg var einmitt að óslca eftir einhverjum rétt núna til að rabba við.“ •Jana frænka var verulega heimamannleg, brosandi af ánægju yfir gestakomunni. Hún iagaði á sér gleraugun, og settist gengt rnér við dyrnar. Golan bar til okkkar iim blómanna af Kentucky sléttunum, enda var þetta seint í júní og blágresi og smári upp á sitt hið bezta, Jana var vel við aldur og minti mig æfinlega á hverfandi tíma og kynslóðir. A gólfinu voru dúkar, ofnir úr afklippum og útslitn- um fötum. Stólarnir voru gamlir og sinn úr hverri áttinni, en all- ir höfðu þeir drif-hvíta bakdúka 0g mjúkar sessur. Rúmið var á- kaflega viðarmikið með afar háum höfðagafii. Srifborðið og mat- borðið úr skínandi eik.alt frá eldri dögum,þegar fólk hafði einungis þarflega muni í húsum sínum.en ekkert óþarfa glingur til að auka vinnu og útgjöld. Sjálf var hún partur af öllu þessu og átti þar sýnilega heima. Hún var í bláflikróttum léreftskjól með heiðarlega léreftssvuntu með stórum vasa, sem ætíð var fullur af handhægu verkefni, priónlesi eða öðru, Um hálsinn hafði hún hvítan klút, nældan með brjóstnál, sem silfurgrár hárlokkur hringaðist í, undir sléttu gleri. A höfðinu hafði hún kappa, bundinn með breiðum silkiborða. Þar var ekkert útflúr, eins og nú tíðkast svo víða. Röddin var mjúk, en þó auðheyrt að hún hafði mist nokkrar fram- íennur, því hún drap töluvertí skörðin. En skapið var ungt á- kveðið og f jörugt, og hláturinn léttur sem b irns. „Já, ég er að sauma rúmábreiðu úr afklippum — eldgömluns leifum, líklega 20 ára gömlum, sem ég rak mig á upp í geymslu- lofti, þegar ég var að taka þar til í morgun,“ sagði Jana og klipti hverja ferhyrnuna á fætur annari. „Ég hélt ég væri. búin að fá nóg af þess konar vinnu, en mér er líklega áskapað að gjörá eina enn áður en ég dey. Sumt af þessu hlýtur að vera 30 ára gamalt, og yfir þessu hefi ég setið og hugsað um löngu íiðna atburði. Þetta er,“ sagði hún og hentitil mín nokkrum pjötlum, „úr blá-hvítum léreftskjól sem ég fökk vorið áður en Abrham dó. Þegar ég fór 5 sorgarbúning og gaf Mary systur minni hann, var hann óskemdur. Nú Láta léreftin sig við fyrsta þvott og verða ónýt við þaun næsta^

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.