Freyja - 01.05.1910, Side 15
XII io.
í
FREYJA
255
augum hans brann eldur réttlátrar reiSi.
“Hvar er þessi samfangi? er hægt aö fá hann hingaö?”
spuröi forsetinn.
“Ég er hræcWur um aö hann hafi síðan fengiö lausn í náö,”
sagö, vitniö, og þá hló Brúnó hátt og sagöi: — “Nei, þarna
er hann — Charles Minghelli. Kallið hann fram, — fallega
manninn í herramannsfötunum.”
Forestinn lét 'kalla Minghelli og lét hann svo taka hirin
vanalega vitnaeiö.
“Þú varst til skamms tíma fangi í Regina Cæle og hefir
rétt verið fyrirgefrð vegna dyggilegrar þjónustu í ríkisins
þarfir?” sagði forsetinn.
“Ré'tt, yðar excellency,” sagði Minghelli.
“Lýgi!” hrópaði Brúnó.
Minghelli hallaðist fram á stólbrí’kina í vitnaklefanum,
strauk ástúðlega varaskegg sitt og sagði sögu sína. Hann hefði
verið i næsta klefa vi'ð fangann og talað við hann á vanalegu
fangamáli. Fanginn hefði tadað um vist mikilmenni, af sér-
stöku stórvirki og að þetta mikilmenni hefði farið til Englands
til að> undirbúa veúkið. Hann áliti manninn vera Rossi, verkið
vera svikiráð við stjórnina, og tilganginn að irnyrða konunginn.
“Ó, þú prestssonur — lýgur!” hrópaði Brúnó.
"Brúnó' Rockl!” sagði forsetinn. “Þér eruð undir vernd-
arhendi laganna, verið þér rólegir og segið sögu' yðar.”
XVII.
“Yðar excellency,” sagði Brúnó. “Þessi maður gjörir sér
það að atvinnu að vitna, og var settur næstur mér til að veiða
mig. Sjálfur laug hann því að mér að hann væri prófarkales-
ari við Gazette, og vissi því um allar fréttir. Þegar hjarta mitt
var sundúr tætt af söknuði eftir drenginn minn — einungis. 7
ára, bláeygðan o|g hrokkinhærðan, sem dó eins snögglega og
sólargeislinn semi þokau læðist yfir—var drepinn í upphlaupinu
um nóttina — Excellency, taldi hann mér trú um að bezti vinur
minn, Rossi, hefði stolið ástum konunnar minnar, og strokið
með hana. Það var lýgi, en ég var eyðilagður af sorg og illri
tneðferð og trúði. En jafnskjótt og ég vissi hver hann var,
reyndi ég að afturkalla j'átningu mina, en var neitað1. Ég segi
yður satt, — ekkert nema satt, Excellency. Allir ættu að segja
satt. — Ég er sekur eins og aðrir — sekur um að hafa trúað
og látið flækja mig inn í þessa iátningu. n p-btn o--x