Eir - 01.12.1899, Page 10
186
hita og varna öðrura að komast að síðar, er nefnt bakteríueyð-
ing (sterilisering). Þannig er faiið með baðmull og bindi,
sem höfð eru í sáraumbúðir, og öll niðursuða á matvæl-
um byggist á hinu sama. Þegar t. d. ket er soðið niður,
eru bakteiíurnar drepnar með suðu, áður en loft.inu er hleyft
úr dósinni. En þegar gatinu, sem loftinu er hleyft út um, er
lokað, komast engar bakteríur að ketinu og rotnun heldur
ekki. Þannig má geyma ketið óskemt árum saman. En só
dósin opnuð, byijar rotnunin fljótt.
Nýlega er farið að hita vín, öl og mjólk upp í 60—65°
0. til þess að þau geymist betur (súrni ekki). Þessi aðferð er
nefnd pasteurisering, eftir Pasteur (sjá síðaij.
Alt frain yfir þessa öld miðja áttu læknar við mikla
erflðleika að stríða, þegar gera þurfti stóra skurði, einkum
holskurði innan úr lifhimnunni, því ávalt var hætt við, að
sárin vildu ekki gróa, en að spilling hlypi í þau, sem gat,
leitt sjúklinginn til bana. En rannsóknir Louis Pasteur’s (frb.
Lúi Pastör) i Paris á rotnuninni (eftir 1860) leiddu til þess,
að menn gengu úr skugga um, að vandkvæðin við sáragræðsl-
una og spillingin i þeim stöfuðu frá rotnunar-bakterium, ígerðar-
baktei ium, sem komast í sárin. Englendingurinn Joseph Lister
fann þá (um 1870) upp nýjar vaniðarreglur við lækninga-
skurði og græðslu þeirra. Uppfundning Listers er sú, að við-
hafa efni, er drepa igerðar-bakteríurnar, rotvarnarmeðul (anti-
septisk meðul), t. d. karbólvatn og súblímatvatn, meðan verið
er að gera skurðina og á eftir i umbúðum sáranna. Þessi
meðferð á sárum er nefnd rotvarnarmeðferð (antiseptisk meðferð).
En vegna þess að rotvarnar-meðulin eru skaðieg fyrir lifandi
hold, hafa menn á siðari árum farið að brúka bakteríulaus
efni, t. d. bakteriulaust vatn, ti) þess að þvo sárin með, og
bakteríulausar umbúðir. Þetta er nefnd aseptisk aðferð.
fessar nýju aðferðir hafa gert algerða breyting á hand-
lækningalistinni, og síðan þær voru teknar upp, heflr hún
unnið eitt afreksverkið öðru meira i baráttunni við mein-
Semdir maunanna. pvi nú má naumast heita, að nokkur hol-