Eir - 01.12.1899, Blaðsíða 12
188
ávalt sé vel að því gætt, að óhreinindi nái ekki að komast
að, ef menn fá skinnsprett, hve lítill sem hann er,
Af því, sem sagt hefir verið hér að framan, má sjá, að
bakteríurnar eru harla 'mikilsverðar fyrir oss mennina og ekki
furða, þótt margir hafl beyg af þeim; en það er mikil bót í
máli, að vér þekkjum nú mörg ráð til að draga úr skaðsemi
margra þeirra og sjálfsagt mun sá tími koma, að vór finnum
ráð gegn ýmsum þeim, er vór stöndum ráðalausir gagnvart
enn þá, því vísindamennirnir halda. ótrauðir rannsóknum sínum
áfram og munu smám saman leiða margt það í ljós, sem nú
er í myrkrunum hulið. En vér niegum hins vegar ekki gleyma
því, að margar þeirra vinna ómetanlega þarft starf i náttúr-
unni, og jafnvel gera hinar skaðlegu stundum ómetanlegt
gagn með því að vekja mennina af tómlæti í barátttunni
gegn þeim.
Uppgötvanir þær, er gerðar hafa verið viðvíkjandi bakterí-
unum, má óefað telja meðal hinna merkustu uppgötvana á
þessari öld. Bjarni Sœmundsson.
t(iiþ vofnsleiðslu 03 sfiolprœsi.
Heiðruðu tilheyrendur!
Keykjavíkur-bær er þegar orðinn allstór, og húsin farin
töluvert að færast. nær hvert öðru en áður þektist, að minsta
kosti í suraum hlutum bæjarins. Ef þessu heldur áfram, og
nú sem ptendur er ekki ástæða til að ætla annað, þá getur
ekki liðið langt að því, að menn fari verulega að flnna til ýmsra
ókosta, sem þéttbýlinu fylgja. 1‘ossir ókostir geta verið
margir og margvislegir, en ég ætla mér ekki að fara að telja
þá alla upp hér; ég ætla að eins að minnast á nokkra sér-
staka af þeim, og þá eðlilega þá, sem mönnum hefir komið
saman um, að séu áhrifamestir þegar um lieill og velferð ein-
hvers bæjarfélags er að ræða.