Eir - 01.12.1899, Side 11
187
skurðnr, hve raikill sem hann er, hafl neinar hættulegar afloið-
ingar, ef allrar varúðar er gætt (sjá „Eir“ óls. 89—90).
Bólusetning (vaaccination) er ein vörnin gegn bakteríu-
sjúkdóraum. Englendingurinn Jenner fann hana upp 1796
gegn bólusótt (sjá: Um bólusótt og bólusetningi Júli-blaði „Eir-
ar“). Tilraunir þær er Jenner geiði, vóru aðallega þessar:
Mjaltastúlka hafði fengið bólu af kú. Jenner tók bóluefni úr
stúlkunni og setti í dreng. 8 dögum síðar setti hann bólu-
efni úr bólusjúkum manni í drenginn, en drenginn sakaði ekki.
Nú hafa menn fengið vissu fyrir því, að sóttkveikjan að kúa-
bólu og mannabólu er hin sama (bólu-bakteriu hafa menn þó
eigi fundið enn). Það lítur þvi út fyiir, að sóttkveikjan veiklist
við að vera i kúm og bíti ekki á menn, komi hún eftir á i
þá, og merkilegast er það, að hin skæða mannabóla sakar
menn eigi, ef þeir hafa haft hina veikluðu bólusóttkveikju í
sér áður. Aðalatriði hinnar vanalegu bólusetningar eru því
þessi: Bóluvessi úr kálfum er settur i monn og heflr hin
skæða bólusótt þá engin háskaleg áhnf á þá, fái þeir hann á
eftir, innan ákveðins tímabils.
Nú hafa menn samkvæmt þessu tekið fyrir nokkrar
hættulegar bakteríu-tegundir og ræktað þser á þann hátt, að
þær veiklist við ræktunina. Séu þessar veikluðu bakteríur
settar í menn eða skepnur, þá hafa óveiklaðar bakteríur sömu
tegundar ekki hættuleg áhi if á þau, ef þau fá þær i sig. Ekki
er enn fengin fulivissa fyrir, hvernig á þessu stendur.
Menn eru nú á síðari árum teknir að bólusetja með góð-
um árangri gegn hundaæði, hænsna-kóleru, miltisbruna og
bráðasótt í sauðfé. — Blóðvatnslækningarnar (sjá „Eir“,
Maí-blaðið) eru líka nokkurs konar bólusetning.
Auk hinna ýmsu ráða, er nú hafa verið talin, eru enn
nokkur injög mikilsverð ráð gegn árásum skaðvænna baktería yfir-
leitt, ráð, sem eru í hvers manns hendi, ef hanri vill nota þau,
bæði einstaklinga og heilla mannfélaga. Káðin eru: áð sjá
um að híbýli manna og alidýra séu hrein, bjórt og loítgóð,
og hreint i kring um þau; að neyzluvatnið sé hreint, og• að