Helgarpósturinn - 06.04.1979, Side 10

Helgarpósturinn - 06.04.1979, Side 10
10 Föstudagur 6. apríl 1979 —he/garpósturinn._ Brottför kl.8 / —N f; > * Uppúr páskum er þriöja hljómplata Mannakorns væntanleg á markaðinn. Ber hún heitið Brottför kl. 8. Hinar tvær, Mannakorn og I gegnum tíðina hafa gert mikla lukku og mun láta nærri að samanlagður fjöldi seldra eintaka þeirra sé i kringum 13 þúsund. Mannakornin sem taka þátt í brottförinni kl. 8 eru Magnús Eiríksson sem, auk þess að búa til öll lögin og Ijóðin leikur á als kyns gítara og syngur, Baldur Már Arn- grímsson (Bói) sem syngur, spilar á gítar og siðast en ekki síst, sá um að hljóðupptakan færi fram eftir öllum kúnstarinnar reglum — Björn Björnsson trommuleikari — Pálmi Gunnarsson söngvari og leikur hann á bassann í titillagi plötunnar, en Jón Kristinn Cortes i öllum hinum — Eyþór Gunnarsson og Karl Sighvatsson sjá um hljóm- borðsleikinn— Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Hall- dór Pálsson blæs í saxófón og flautur. Upptökumaður var Jónas R. Jónsson. Fálkinn h.f. gefur út. band án mikils tilkostnaðar. Það gæti alveg verið sæmilegt stúdió og maður gæti hugsað sér að það jrði rekið i tengslum við tón- listarskóla. En það er eins með þessa tónlistarskóla og annað — þeir eiga vist bara að búa til fólk sem þjóna á þessum litlu 6 pró- sentum sem allt opinbert tón- listarlif snýst i rauninni um. Þessum 6 prósentum sem sinfóni- an spilar fyrir og útvarpið sendir meginhluta dagskrár sinnar út til. Hér er gerður mikill greinar- munur á — sem mér þykir al- sendis óréttlætanlegur. Ég get ekki séö að sá sem heldur á raf- magnsbassa sé neitt minni tón- listarmaður en sá sem heldur á fiðlu. Frá eigin brjósti — En svo við vikjum að öðru. Nú semur þú sjálfur textana við lögin þín, — hvernig finnst þér is- lensk textagerð almennt standa i dag? Já, ég leiddist nú úti textagerð af ilirinauðsyná sinum tima. Það er þegar fyrsta Mannakomsplat- an var I smiðum. Þá komst ég i samband við tvo textasmiði hér i bæ, en fannst þeir einhvernvegin ekkihafa sans fyrir hljómfallinu i lögunum og þar af leiðandi ekki hægt að syngja texta þeirra nema Róleg partiplata — En er eitthvað annað á döf- inni i hljómplötumálum? Miglangar mikið til að fara að gera eitthvað sem er öðruvisi en það sem ég hef gert hingað til. T.d. rólega partiplötu, — dunda við gömul lög eftir aðra sem litið hafa heyrst og taka svo upp „live” suðuri Hljóðrita með góðum kunningjum, — þetta yröi svona i Willie Neíson-stfl. Mér finnst vanta slika islenska plötu. Mig langar lika tii að semja tónlist fyrir unga fólkið i bransan- um, ýta dálitið undir það. Sem veitir ekki af, þvi það virðist allt leggjast á eitt til að drepa i’ þess- arri grein t.d. þetta nýja vöru- gjald sem stjórnin tekur af öllu þvi sem hljómlist viövikur. í beinu framhaldi af þessarri stefnu yfirvalda er ljóst að það veröur ekki lengur hægt að gera svona plötu eins og Brottför kl. 8. Það verður hreinlega of dýrt. Og það er ekki gott að sjá hvaða af- ar létt og endar þungt. Efnið er um lifiö og dauðann. Astina, hestamennsku og skólann. Við hittum fyrir islenska útgáfu af Karorá ferjumanni, —rakan kali i gúmmiskóm og ekki má gleyma fúlltrúum þjóðtrúarinnar, álfun- um I heiðinni. Einnig eru hug- leiðingar um hvernig best sé að sigla I gegnum þetta þjóðfélag san við búum viö án þess að verða fyrir andlegu stórslysi og sagt frá einmana konu. Þetta endar svo allt á Guðsblús einum miklum. Titillag plötunnar er _ „instrumental” þ.e. án söngs og þar er Pálmi i bassasólóhlutverki og þú mátt til með að skrifa það hjá þér að mér finnst hann skila þvi alveg frammúrskarandi vel. — rætt við Magnús Eiríksson um nýjustu plötu Mannakorns og sitthvað fleira Sami kjarninn — Eru mannakornin ekki nokk- uð önnur nú en áður? Nei, nei, þetta er alltaf sami kjarninn en þó smábreyting. Hlutur Pálma er t.d. heldur minni en áður ihljóðfæraleiknum ognýr bassamaður kominn i spilið, Jón Kristirin Cortes og Ellen Kristjánsdóttir söngkona kemur fram sem gestur. — Var þessi nýja plata lengi i smiðum ? Nei, það er ekki hægt að segja það. Við vorum langt komnir fyrir jólin og það hefði sosum verið hægt aö koma henni út þá. Það hefði hins vegar orðiö á kostnað vandvirkninnar og þar sem okkur þótti jólaflóðið meir en nóg, þá var ákveðið að platan kæmi út með vorinu. 1 þetta sinn tókum við einnig upp fleiri lög en komast fyrir á einni plötu og völdum siðan þau bestu úr en það höfum við aldrei áöur verið i aðstöðu til að gera. Ætli við höfum ekkieytt u.þ.b. 300 timum I stúdióinu. Um lifið og dauðann — Mynda lögin einhverja heild eða stendur hvert og eitt sér? Já, prógrammið hangir nú saman ef vel er að gáð. Það byrj- Land undir fót — Eru Mannakorn farin að huga að næstu plötu? Nei,þetta verður siðasta platan a.mk. ibili. Viðhöfumnú gefið út plötur nokkuð reglulega og það liða nokkur ár þangað til við ráðumst aftur i plötugerð. Mannakorn munu þó leggja land undir fót i byr jun sumars og spila svolitiö fyrir kunningjana. — Verður þú eitthvað meira með Brunaliðinu? Ég gerði nú bara nokkur lög fyrir fyrstu plötu Brunaliðsins og hef lítið s pilað með þvi i rauninni. Og er alveg steinhættur þvl núna. „Við hittum fyrir islenska útgáfu af Karoni ferjumanni, — rakan kall 1 gúmmiskóm” leiðángar þetta kemur til með að hafa en mig grunar aö tónlistar- tilraunum muni fækka og ein- göngu verði gefnar út söluplötur og allt fari að snúast um þær — menn hætti aöbúa tilannaö en lög sem þeir halda að seljist og þar fram eftir götunum. 6 prósentin — Hefuröu einhverjar hug- myndir um hvernig mætti snúa þessarri þróun viö? Þaö er náttúrulega fyrst og fremst að fá stjórnvöld til að hætta að h'ta á tónlist sem lúxus. Nú, svo er ýmislegt hægt að gera — t.d. þyrfti að setja upp ódýrt prufustúdió hér i höfuðborginni þarsem fólk gæti komiö tónlistar- hugmyndum sinum inná segul- meðhrykkjum og skrykkjum. Þá reyndi ég að gera textana sjálfur. Og hef gert það siðan. Hvaö textagerð annarra varðar, þá verð ég að viðurkenna að ég hef litið fylgst með henni uppá síðkastið. En það litla sem ég hef séð bendir til þess að is- lensk textagerð sé nú loks á á réttri leið, — æ fleiri gera tilraun til aö segja eitthvað frá eigin brjósti. — Eitthvaö að lokum Magnús? Að lokum! Það má náttúrlega segja aðlokum, að við erum mjög ánægðir með að hafa komist upp meðað gera plötur sem innihalda svotil eingöngu frumsamið efiii og að fólki hafi likað þær vel. Og vonum bara að nýja platan falJ.i einnig i kramið.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.