Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 24
I-helgarpOSturinrL- Föstudagur 6. apríl 1979
Bryndis Schram mátar búninga
niöri í Þjóðleikhúsi
HP-myndir: Friðþjdfur.
Ekki vitum við hvernig Visir
fer að, þegar leikritið um prins-
sessuna á bauninni kemur á svið
Þjóðleikhússins. Gagnrýnandi
blaðsins, Bryndis Schram hefur
nefriilega gert sér litið fyrir og
tekið að sér eitt hlutverkanna í
leiknum, svo að varla kemur hún
til með að leggja blaði sínu til
leikhúspistil eftir þá frumsýn-
ingu.
Bryndfs hefur ekki leikið í' Þjóð-
leikhúsinu frá þvi veturinn 1970 i
barnaleikritinu Dimmalimm eftir
Helgu Egilsson þvi að haustið
eftir flutti hún vestur til Isafjarð-
ar, þar sem hún hefur þó reynt að
halda sér i æfingu með þvi að
leika með Litla leikklúbbnum á
ísafirði meðan hún dvaldist þar
sem menntaskólakennari og
skólameistari á stundum.
Hvernig finnst henni aö vera
horfin úr áhorfendahópnum upp á
sviðið, úr hlutverki gagnrýnand-
ans i hlutverki leikarans?
,,Er ekki stundum sagt, að mis-
lukkaðir rithöfundar reyni að ná
sér niður á kollegum sinum með
þvi að gerast bókmenntagagn-
rýnendur. Kannski ég sé engu
betri,” svarar Bryndis. ,,Ég kom
annars inn i leikhúsið aðeins 12
ára að aldri og hvarf þaðan 15
árum seinna. Þetta var stórkost-
legur timi en nú finnst mér ég
vera hálfgerð boðflenna og tima-
skekkja.”
—AB
Fréttastofu Sjónvarps hefur nú
bæst nýr liösauki þar sem er
Ingvi Hrafn Jónsson, gamal-
reyndur blaöamaður af Morgun-
blaðinu, og viðar. Hann verður
þar I þrjá mánuöi og leysir af
Sonju Diego, sem er i leyfi. Sonja
mun verða hjá Efnahagsbanda-
lagi Evrópu i Brussel.
Ingvi Hrafn sagði í samtali við
Helgarpóstinn, að sér litist ágæt-
lega á þetta. „Það er mjög
skemmtilegt að fást við nýja teg-
und fréttamennsku. Vinnan viö
Sjónvarpið er aö þvi leyti frá-
brugðin vinnu viö dagblöðin, að
fyrir sjónvarp þarf að skrifa
miklu styttra mál, en um leið
gæta þess, að kjarninn komi fram
i þvi sem lesið er. Einnig þarf að
aðlaga fréttirnar myndefni”.
Ingvi Hrafn hefur unnið sjálf-
stætt sem blaðamaður siðastliðið
ár, og gerir ráö fyrir aö halda þvi
áfram eftir að vistinni hjá Sjón-
varpinu lýkur.
„Ég hef mikinn áhuga á lax-
veiðum. Það passar þvi vel fyrir
mig aö þetta er búið 30. júni. Ég
kemst þá i laxinn i júlí. Annars á
ég nú von á því aö ég verði half-
partinn i vöðlunum hérna siðasta
daginn”, sagði Ingvi Hrafn Jóns-
son að lokum.
—GB.
Þrír framhjólodrrfnir valkostir,
allir jafn þýskir!
Pa88atinn er “stóri” bíllinn hjá Volkswagen.
Sportlegur bíll sem fæst í mismunandi gerðum:
2ja eða 4ja dyra, einnig með stórri gátt að aftan og
í “station” útfærslu.
Við erfiðu8tu akstursskilyrði bregst hann
ekki, hvort heldur í snjó, hálku, rigningu eða
miklum hliðarvindi.
Ekki 8akar útlitið: Passatinn er glæsitegur
vagn, rýmið mikið, frágangur og innréttingar
frammúr8karandi vandaðar.
BBLF®
Golfinn er léttur og lipur í umferðinni.
Hugvit8amleg hönnun hans veldur því að innra
rýmið er mikið og drjúgt en ytri mál eru miðuð við
að smjúga í umferðinni; það stœði finnst vart
sem Golfinn smeygir sér ekki inn í.
Á vegum úti er Golfinn eins og hugur manns.
Hœgt er að breyta honum í aendibíl á svipstundu.
Það vekur athygli að Loftleiðir völdu Golfinn
af öllum þeim aragrúa bíla, sem bjóðast hér á
landi fyrir bílaleigu sína.
52 VOLKSWAGENGOLFNÚíNOTKUNHJÁ
BÍLALEIGU LOFTLEIÐA !
Það er eitt að kaupa bíl,annað að reka hann:
Þú 8em vilt tryggja þér góða þjónustu,
VOLKSWAGENÞJÖNUSTU, velurþví Golf, Derby
eða Passat. Einhver þeirra þriggja er
bíllinn fyrir þig og þína.
Derby sameinar smekklegt útlit, framúrskar-
andi ak8tur8eiginleika og þýska natni í frágangi.
Aðrir helstu kostir Derbys:
Hœð undir lægsta punkt er 22,5 cm.
Sparneytinn svo af ber.
Farangur8rýmið er óvenju stórt, 515 lítrar.
Af þessu má sjá að Derby er tilvalinn ferða- og
fjöl8kyldubíll sökum aparneytni, hœðar frá
vegi og farangursrými8.
• Miðstöð 25% kroftmeirí
• Sparneytnir
• Framhjóladrifnir
• Hóirávegi
• Sérhœfð varahluta-og
viðgerðaþjónusta
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Ingvi Hrafn án vaðlanna á fyrsta
degi á skrifstofu sinni hjá sjdn-
varpinu.
I nýjasta tölublaði timaritsins
Sweden Now, sem gefið er út á
ensku um sænsk málefni mátti
lesa eftirfarandi klausu i slúöur-
dálki blaðsins: „Iceland’s For-
eign Minister Benedikt Gröndal
made an official visit to his
colleague Hans Blix and was
entertained at one of the gayest
parties of this snowiest of wint-
ers...” Sem útleggst: „Utanrikis-
ráðherra Islands Benedikt Grön-
dal kom i opinbera heimsókn til
starfsbróður síns Hans Blix
(utanrikisráðherra Svia) og hon-
um til heiðurs var haldið eitt
„glaðværasta parti hingaö til á
þessum snjóþunga vetri.”
Hið viröulega bandariska stór-
blaö The New York Times hefur
nýlega gefið út sérblað þar sem
kynnt eru ferðalög til Evrópu-
landa. Þar er fjallað um öll lönd
Stefán.
álfunnar og þeim gefin einkunn.
Farið er mjög lofsamlegum
orðum um Island, og segir aö
Bandarikjamenn séu alltaf jafn
glaðir að heyra, að við, íslending-
ar, höfum Golfstrauminn, sem
færir okkur svo gott veður.
1 sama blaði er leitað til ferða-
skrifstofumanna og þeir spurðir
hvaö þeir hafi upp á að bjóða.
Fyrir Islands hönd svarar Stefán
J. Richter. Hann nefnir lág flug-
fargjöld innanlands og ýmis sér-
fargjöld með áæltunarbilum, t.d.
hringmiðann. Meö slfitum miða
er hægt að feröast hringinn i
kringum landiö, ogtaka eins mik-
inn tima i það og hverjum
hentar.
—GB.