Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 21
—helgarpósturinrL. Föstudagur 6. apríl 1979
21
SYNG NÚ MÍN SÁLARLÚTA
„Way down yonder in
New Orleans”
Ariö 1718 fékk sá ágæti mon-
sjúr Jean-Baptieste le Mayne
Sieur de Bienville hina prýöileg-
ustu pappira uppá þaö, að New
Orleans væri orðin borg og hann
borgarstjóri. Borgin, sem var
afar mikilvæg samgöngumið-
stöð við önnur löid tengdist lat-
neskum menningaráhrifum
karabíska hluta Ameriku miklu
fremur en engilsaxneskum kúl-
túr. Hún var oft kölluð
Paris-sur-Mississippi þar sem
andlegt föðurland var ekkert
minna en sjálft Frakkland^.
Undir suðrænni sól og f góðæri
undu heimamenn gjarna við
hverskonar gleðskap — meðan
þrælarnir sáuumpúlið. Mikil og
fjölbreytt músik tilheyröi lffs-
mynstrinu og dillaði mann-
siápnum frá vöggu til grafar.
Flotastöð bandariska sjóhersins
var komiðupp i New Orleans —
og alltaf voru einhverjar deildir
flotans mátulega nýkomnar eða
réttófarnar svo að endalaus til-
e£ni voru til að halda uppá dag-
inn, kvöldið og nóttina í þeim
sjóbúðum ásamt aragrúa af
áhöfnum kaupskipaflota heims-
ins, sem brugðu sér upp fyrir
bryggjusporðinn — þvf að
hvergi f heiminum þótti sælla að
leggja skipi sinu að landi.
Jafnvel að morgni dags var
borgin engu öðru lik. A þeim
tíma dags áttu jarðarfarir hugi
manna og hjörtu. Fjölskyldur,
fyrirtæki, hagsmunafélög og
karlaklúbbar reyndu bókstaf-
lega að slá hvern annan út í
jarðarfaratiskunni sem varð
mikil og listræn keppnisgrein i
New Orleans — svona likt og
fermingarveislur á Islandi nú á
dögum, sem er keppnisgrein —
en ólistræn. (Nánar veröur vikið
að jarðarfarabransanum i New
Orleans siðar).
Frelsi litaöra manna (creola)
afkomenda Frakka eða Spán-
verja og svertingja var með
þokkalegasta móti alla^tið,
þangað til uppúr þrælastríðinu
1880, að sett voru ný ólög yfir
þetta fólk svokölluð Jim
Crow-lög, Reglugerðin „Louisi-
ana Legislative Code III.” gæti
verið frá Suður-Afriku vorra
daga, þar sem segir, að allir
sem ekki eru snjóhvitir séu vit-
anlega kolsvartir. Menntaðir og
tiltöluiega vel settir kynblend-
ingar sem ávallt höfliu með
nokkrustolti litið á sjálfa sig frá
Evrópuhliðinni og deilt geði i
sambýli við hvfta og veriö
áhrifamiklir i leikhúsum, kaba-
rettum, óperuhúsum og kon-
sertsölum sinfóniuhljómsveita
New Orleansborgar sem áheyr-
endur og flytjendur (creolar
voru yfirleitt mjög listelskt
fólk) voru nú drifnir f einum
hvelli niðurá neðsta svið mann-
legs lífs — i' sambýli viö svert-
ingjana. — t þeim suðupotti
kraumaði óhamingjusamt
mannlifið.
„ BASIN STREET IS
THE STREET”
The District — Stoiyville i
gamla franska svertingjahverf-
inu var ekki nein kotströnd eða
dottandi Búðardalur á árunum
milli 1800 og 1900.
1 gleðskaparhverfinu i New
Orleans réð ferðinni
fransk-spænskt léttlyndi og
ótæpur afríkanskur gáski. —
Einmitt þarna i Mahogany Hall
upphófst fyrir alvöru
„jam-sessionin” mikla sem
stendur yfir enn.
Þó að lyfturnar hjá Lulu væru
aðeins fyrir tvo, — spiluðu þeir
þarna hver um annan þveran
allir þessir gömlu góðu gaurar,
sem manni er svo endalaust
hlýtt til, svo sem „Big Eye”
Nelson, Buddyarnir King Bold-
en sem var spámaðurinn en ent-
ist illa og Petit sem haföi 20
hljómsveitir eins og Pétur rak-
ari á sfnum skærum, Bunk
Johnson, sem gleymdist illa en
lifði þá alla og fannst um sjö-
tugt, hann spilaði menn hissa
fram yfir áttrætt.
Bechet á horni Bechetstrætis og
Armstrongstrætis
Dodds bræöurmr Baby og
Johnny sem urðu klassik og
Krupa og Goodman lærðu sitt
af, Freddie Keppard sem varð
um siðir frægur fyrir það sem
hanngerði ekki, þ.e. að neita að
spila inná fyrstu grammófón-
plötuna: ,,I didn’t want anyone
to steal our stuff” útskýrði kall
og hneggjaði i hornið.
Kornettistinn Nick La Rocca
sem varð heimsfrægur á þver-
öfugan hátt, klarinettleikararn-
ir Jimmy Noon sem þótti meir
en góður og Sidney Bechet sem
dó i lukkulegri elli sem heiðurs-
borgari Parisar 1959, trombón-
spilarinn Kid Ory sem skóp bá-
súnustilinn, p.__'séníið Jelly
Roll Morton sem laug þvi til, að
hann hefði sjálfur fundiö upp
jazzinn, þaö fann hann út ein-
faldlega með þvi að sleppa öll-
um hinum, aftur á móti gerði
hann píanóið að jazzhljómsveit-
arhljóðfæri, svo var það auðvit-
að sjálfur kóngurinn — allt var
alveg sér á parti hjá King Oli-
ver. — Og svo allir hinir...
Arið 1906 gefur súljúfa Count-
ess, miss Wille Piazza (sem ekki
var kvenrithöfundur) út hina
ágætu Blue Book sem er meö
eldri feröamannahandbókum
þar vestra og visar veginn
gegnum klassana i hverfinu alla
leiðuppí eigiö hús beint ifangið
á Crying Emmu, Gold Tooth
Gussie, Bird Leg Noru eða
Three Finger Annie og Tender
LionThelmu—eða einsogsegir
i bláu bókinni „The shot up-
stairs, Theshot downstairs, And
the shot in the room”. Ennfrem-
ur stendur i þeirri bláu „If you
have the blues —just ask for the
countess”.
Loft var að visu lævi blandið á
þessum slóðum og lifsháski
mikill, (það var tekið sérstak-
lega fram, ef menn dóu eðlileg-
um dauðdaga), — en það var
lika opið hús hjá Lulu dag og
nótt þar sem haldið var uppá
jólin — árið og öldina út — eða
til ársins 1917 — þá kom ný
harðsnúin reglugerð. Fljótlega
uppúr þvi var Basin Street og
Storyville aðeins til i ljúfsárri
minningunni.
Nokkrar ábendingar um fáan-
legar LP með leik ómengaðra
New Orleans kappa.
1. Bunk Johnson (trompet)
Echos from New Orleans,
Storyville 670 203 (með Georg
Lewis klarinett o.fl.)
2. Jimmy Noon (klarinett) At
the Apex Club, Decca D1 79 235.
3. Doddsbræðurnir (Baby
trommur, Johnny klarinett).
Johnny Dodds and.Tommy
Ladnier, BiographBLP —12024.
4. Jelly Roll Morton (piano).
Stompsand Joys, RCA LPY 508.
Heinesen fær
H.C.
Andersen-
verðlaunin
Færeyska skáldið William
Heinesen hlaut bókmenntaverö-
laun H.C. Andersen sjóðsins síð-
asta mánudag, en einmitt þann
dag, 2. april, fæddist hið dáða
danska skáld.
Heinesen er 79 ára gamall og
hefúr verið afkastamikiö og mik-
ilsvirt skáld um langt skeiö.
Hann hefur verið búsettur i Fær-
eyjum mest allan hluta ævi sinn-
ar. Ekki aðeins hefur skáldsagna-
formið verið honum hugleikið, þvi
mörg ljóð eftir Heinesen hafa
birst á prenti. Þetta er ekki i
fyrsta sinn, sem Heinesen hlotn-
ast heiður af þessu tagi, til að
mynda hlaut hann bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs árið
1965.
H. C. Andersen verðlaunin hafa
ýmis nafntoguð skáld hlotið. Má
þar nefna Tove Ditlevsen, Tom
Kristensen og fleiri.
Trend Rafritvélar
Japönsk völundarsmíð.
Ódýrar, liprar, sterkar og fallegar.
Skrifvélin h.f.
Suðurlandsbrairt 12. Sími 8 52 77. Pósth. 1232.
Til suðurs með Surtnu
Sunna býður bestu fdanlegu hótelin og íbúðirnar.
Þjónustuskrifstofur með íslensku starfsfólki
MALLORCA
ibúðahótel:
TRIANON, PORTONOVA, VILLA
MAR, ROYAL MAGALUF
Hótel:
GUADALUPE, ANTILLAS/BARBA
DOS, HÖTEL 33.
Dvalartimi 1-3 vikur.
Brottfarardagar: 4. apr. - 6. apr. —
20. apr. - 11. mai 1. júni - 22.
júni - 13. júli — 27. júli — 3. ág. —
17. ág. - 24. ág. og 31. ág. - 7.
sept. - 14. sept. og 28. sept. - 5
okt.
COSTA DEL SOL
ibúðahótel:
PLAYAMAR, LA CASCADA
Hótel:
DON PABLO
Dvalartimi 1-3 vikur.
Brottfarardagar: 11. mai 1. júni -
8. júni - 22. júni og 29. júní 6. júli
- 13. júli — 20. júli og 27. júli — 3.
ág. - 10. ág. 17. ág. 24. ág. og
31. ág. - 7. sept. - 14. sept. og 22.
sept.
COSTA BRAVA
ibúöahótel:
TRIMARAN og ROYAL LLORET
Hótal CARIBE
Dvalartimi 3 vikur. Brottfarardagar:
H.mai 1. júniog22. juni 13. júli
— 3. ágúst og 24. ágúst - 7. sept.
KANARÍEYJAR
Ibúöahótel á PLAYA DEL INGLES:
KOOKA, ROCA VERDE, CORONA
ROJA og CORONA BLANCA
Dvalartími: 18 26. dagar.
Brottfarardagar: 11. mai 5. júni
26. júni — 17. júli — 7. ágúst - 28.
ágúst - 18. sept. - 9. okt.
LONDON
Brottför alla laugardaga.
Hótel: GLOUCESTÉR, CUMBER
LAND, REGENT PALACE og
RUSSEL
PORTÚGAL
ESTORIL
Hótel ALBERGARIA VALBOM og
LONDRES
Ibúðir VALE DO SOL
Dvalartimi3vikur.
Brottfarardagar: 5 júni - 26. júni
17. júli - 7. ágúst 28. ágúst - 18.
sept.
GRIKKLAND
Hótel FENIX, REGINA MARIS og
VRAONA BAY
OASIS ibúöir
Dvalartimi 2 og 3 vikur.
Brottfarardagar: 16. maí 6 júni og
27. júni 18. júli - 8. ágúst og 29.
ágúst - 12. sept.
ÍSRAEL
- GRIKKLAND
17. mai verö hr. 187.000.
Dvalartimi3 vikur.
KANADA
WINNIPEG og VANCOUVER.
Brottfarardagar: 3. júni - 3 vikur, 24.
júni — 4 vikur. 22. júli - 3 vikur.
FARSEDLAR ÚT UM ALLAN
HEIM
FJÖLSKYLDU OG ONNUR
SERFARGJOLD í AÆTLUNAR
FLUGI
ÖLL ÓDYRUSTU FLUGFAR
GJOLDIN
STÆRRI FLUGVÉLAR OG '
HAGKVÆMIR HÓTEL-
SAMNINGAR LÆKKA
FERÐAKOSTNADINN
REYKJAVÍK: BANKASTRÆTT 10 - SÍMI 29322.
*