Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 18

Helgarpósturinn - 06.04.1979, Blaðsíða 18
18 Fostudagur 6. apríi 1979 hslgsrposturínrL. Tvær góðar fyrir fullorðna Þjóðleikhúsiö: Stundarfriður eftir Guðmund Steinsson. Leikstjórn: Stefán Baldursson. Leikmynd og búningar: Þórunn Sigriður Þorgrim sdótt- ir. Aðalhlutverk: Helgi Skúlason, Kristbjörg Kjeld, Sigurður Sig- urjónsson, Lilja Þorvaldsdóttir, Guðrún Gisladóttir. Guðmundur Steinsson teflir á tæpasta vaö i nýju leikriti sinu. Kringum mjög einfalda hug- mynd spinnur hann fábrotinn texta, og hvort tveggja verður svo grannur þráöur að maður undrast aö sýningu lokinni að Stundarfriður hann skyldi ekki slitna og að yfirleitt skyldi verða nokkur sýning — en þaö varö. Og ekki bara það, heldur ein allra besta sýning leikársins, allt f senn skemmtileg, lifandi, afhjúpandi og áleitin. Og þetta er ekki svo h'tið, eða hvað? Hugmyndin er einföld : 1 fáum og ýktum dráttum er okkur sýnd streita samtiðarinnar og hvernig hún leggur heimili og hamingju i rúst. Samræöurnar eru hversdagslegar og inni- haldslausar, einsog vera ber. í þeim skapast htil spenna og engin átök — til þess er hver of upptekinn af sjálfum sér. At- burðarásin erað visuliflegri, en þó ekki sérlega dramatisk — af þeirri einföldu ástæðu að hún hefur litil sem engin áhrif á per- sónurnar — aftur vegna þess að þær eruof uppteknar af sjálfum sér. Sjálfsmorðstilraun og dauðsföli munu ekki snerta þær — nema þær eigi sjálfar i hlut. Þaö sem riður baggamuninn er skmandi vönduö leikstjórn og sviðsetning. Samvinna leik- stjóra, leikmyndasmiðs og leik- ara hefur verið með afbrigðum góð — og ber rikulegan ávöxt. Og ekki spillir fyrir tónhstin sem Gunnar Reynir Sveinsson hefur valið og tengt leikhljóð- um. Um einstaka leikara er engin ástæða til aö fjölyrða. Þarna koma saman þrjár kynslóðir hið minnsta (Þorsteinn 0. og Guð- björg i aukahlutverkum) og samvinna þeirra er til fýrir- myndar. Þar með veröur lika framlag hvers einstaklings til fyrirmyndar. Það er sennilega engin hætta á öðru en Stundarfriður fái þá aðsókn sem hann á skilið. Hitt væri þó enn mikilvægara, ef sýningin gæti oröið okkur, is- lenskum streitus júklingum, hvöt til þess aö ganga ekki lengra á braut vitfirringarinn- ar, heldur snúa við — áöur en það er um seinan. Sá veruleiki sem Guðmundi Steinssyni tekst aö afhjúpa með satiru sinni er hryhilegur (og sannur). Afleið- ingar hans þó enn hryllilegri: andlegt skipbrot og tilfinninga- legt hrun. Megi Stundarfriöur ekki aðeins verða kassastykki fyrir leikhúsið heldur einnig lærdómur fyrir leikhússgesti. Steldu bara milljarbi Leikfélag Reykjavikur: Steldu bara milljarði eftir Fernando Arrabal. Þýðing: Vigdis Finnbogadóttir. Leikstjórn: Þórhildur Þorleifs- dóttir. Leikmynd og búningar: Steinþór Sigurðsson. Aðalhlutverk: Steindór Hjör- leifsson, Þorsteinn Gunnarsson, Soffia Jakobsdóttir, Valgeröur Dan og Guðrún Asmundsdóttir. Þaðer afskaplega freistandi að gera nokkurn samanburð á þeim nútímalegu ádeiluverkum sem leikhúsin bjóða okkur nú siðast, Stundarfriði Guömundar Steinssonar og heimsádeilu Arrabals, Steldu bara milljarði. A ýmsa lund er vitanlega óliku saman að jafna. Þótt Guðmund- ur leiki sér að ýkjum, gengur hann aldrei jafnlangt og meist- ari absúrdismans, Arrabal. Hins vegar kann aftur að verða mikill styrkur fyrir Stundarfrið að höfundur hans gengur út frá islenskum veruleik, og þess vegna horfur á að ádeila hans verði sannari og alvarlegri i meðförum islenskra leikara en hin kaþólsk-rómanska ádeila Arrabals. Arrabal 'er islenskum ieik- hússgestum reyndar að góðu kunnur. Skemmtiferð á vigvöll- inn, Fando og Lis, Bilakirkju- garðurinn (sýndur af Herranótt, ekki „leikflokki Menntaskólans viö Hamrahlið” eins og segir I leikskrá) — allt eru þetta verk sem við minnumst með ánægju — blandinni hryllingi. Þvi ein- mitt hryllingur nútimalífsins er viðfangsefni Arrabals — eins og reyndar flestra meistara fárán- leika-leikhússins. Sýning LR á Steldu bara milljarði er að sumu leyti ágæt. Þar bregður fyrir afburðaleik (t.d. hjá Þorsteini Gunnarssyni, sem enn sýnir ágæti sitt), sviðs- mynd er kostuleg, sum leikat- riði drepfyndin (t.d. dans nunn- anna og nautabanans, eða þá peningatöskurnar sem hverfa). En þrátt fyrir það er hætt við að ádeila verksins fari dálitið fyrir ofan eða neðan íslenskan garö. Eitt er þar hið kaþólska eða and-kaþólska viðhorf. Ég er hræddur um að Islenskir áhorf- endur eigi ekki auðvelt með að setja islenska trúarhræsni inn I staöhinnar kaþólskusem þarna er deilt á. Annaö er fjármögnun visindarannsókna. 1 landi þar semekkier einusinni varið fétil að kanna brýnustu viðfangsefai islenskra visinda, er hætt viö að ádeila á stórkapitalismann bak viö visindarannsóknir fari hjá garði. Það sem þá stendur helst eftir er ádeila Arrabals á bylt- ingarseggina sem láta svæfast þegar þeim er visað á að fjalla heldur um vistfræðina. Sú ádeila hittir áreiðanlega i mark. t sjálfu sér held ég llka að verk Arrabals beri I sér ofurllt- inn smiðagalla, sem hafði slæm áhrif á sýninguna. Eins og rétti- lega segir i leikskrá, er það jafnan einkenni absúrd-verka að persónur þeirra eru fremur týpur en einstaklingar. Þetta er alveg ljóst ifyrri hluta verksins. Eneftirhlébregöur Arrabalallt i einu á það ráö að birta okkur sýn i „manneskjuna” bak við týpuna. Og þar með verður á verki hans stilbrot, sem ekki tókst að sigla fram hjá i Iðnó. Afleiðingin varð m.a. sú að sýn- ingin hægðiá sér (hraðinn hafði annars verið til fyrirmyndar), og náöi sér ekki á strik fyrr en alveg I lokin. Með annars konar leikstil heföi kannski verið hægt að sigla milli skers og báru. Steldu bara milljarði er aö þessu slepptu ágætt skemmti- verk. En samanburðurinn við Stundarfriö er þvi ekki hagstæð- ur. Meginatriði er þar áreiðan- lega það sem iað var að hér að framan:- Annað verkið sækir mynd sina i islenskan veruleik. Tök islenskra leikara á þvi verða þess vegna sönn og sann- færandi. Hitt verkið er fram- andi, tökin á þvi verða miður sannfærandi. Og þá kemur fyrir ekki þótt um sé að ræða heims- frægt skáld. Leiklist hverrar þjóðar hefur ævinlega risið hæst þegar hún hefur fengist við sinn eigin veruleik. Sé nóg framboð á Islenskum leikritum er þvi eng- in ástæða til að hlaupa yfir sjó- inn eftir verkefnum. Og íslensk- ir leikhússgestir hljóta að fara að gera háværar kröfur til þess að leikhúsin einbeiti sér að þvi aðhlú aðþeirri gróskusem hef- ur komið i ljós I innlendri leik- ritunásiðustumisserum. Þegar ný lægð kemur þar, getur svo verið gott að leita h ugmynda að utan. og aðrar tvær fyrir börn (og fullorðna) Alþýðuleikhúsið — Sunnandeild: Nornin Baba-Jaga eftir Jevgeni Schwartz. Þýöing: Ingibjörg Haraidsdótt- ir. Leikstjórn: Þórunn Sigurðar- dóttir. Leikmynd og búningar: Guðrún Svava Svavarsdóttir Söngtextar: Asi i Bæ. Tónlist: Eggert Þorleifsson, Ólafur örn Thoroddsen og Asi i Bæ. Nefnið Jevgeni Schwartz er far- iðað koma býsna oft fyrir I fs- lensku leikhúslifi um þessar mundir — ogmá reyndar segja að bestu leiksýningar sem ætl- aðar hafa verið börnum á sið- ustu árum hafi tengst þvi á ein- hvernhátt. Schwartzvar reynd- ar einn þeirra listamanna sem Jósep Stalin og félagar töldu hættulega þjóöinni, og verk hans voru um skeið bönnuð, aö þvi er lesa má i handbókum. Þetta má sjálfsagt skyra. Góð lister ævinlega framsækin, leit- ar að einhverjubetra og fegurra en þvi sem kringum listamann- inn er, og þess vegna er góð list alltaf hættuleg ráðandi stétt og LEIKFÉLAG hM REYKJAVÍKUR Lifsháski: Guðmundur Pálsson ,og Sigriður Hagalin. v_______________________________ SKALD-RÓSA I kvöld kl. 20.30, skirdag kl. 20,30. næst siðasta sinn LÍFSHASKI laugardag kl. 20.30, miövikudag kl. 20.30 örfáar sýningar eftir STELDU BARA MILLJARÐI 9. sýn. sunnudag ki. 20.30, Brún kort gilda 10. sýn. þriöjudag uppselt SÍÐUSTU SÝNINGAR FYRIR PASKA Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30. Simi 16620. RÚMRUSK RÚMRUSK RÚMRUSK MIÐNÆTURSÝNING I AUSTURBÆJARBIÓI LAUGARDAG KL. 23.30 NÆST SIÐASTA SINN MIÐASALA I AUSTURBÆJ- ARBIÓI KL. 16-21. SIMI 11384. hugmyndafræöi. Og þar eru Sovétriki Stalins engin undan- tekning. Sagan um nornina Baba-Jögu er ævintýri af gámalli og góðri gerð. Schwartz tókst hins vegar að gefa þvifélagslegaviðmiðun, jarðneska hlið, með þvi aö gera nornina að tákni arðræningians og Vassilisu vinnusömu að full- trúa hinna heilbrigðu einstakl- inga. Þetta er svosem ekki af- skaplega frumlegt, en þegar vel er úr unnið virðist einmitt auð- veldara að gera börn meðvituð um umhverfi sitt og veruleika fyrir tilstyrk ævintýrisins en með hinum harðhnjóskulegu raunsæisbókmenntum sem nú um skeið hafa verið i mikilli tisku. Þess vegna eiga ævintýr- in i myndbreytingum Schwartz fullgiit erindi við okkur hér og nú, þó svo þar hafi upprunalega verið miðaö viö annan veruleik en hér. \ I ljósi þessa er verkefnaval Alþýöuleikhúss harla gott. En betur má : Liggur ekki næst fyr- ir að fá til snjallan islenskan höfund að snúa islensku ævin- týrunum i leikrit með sama hætti. Hvernig væri t.d. að velta fyrir sér Loðinbarða-sögninni? Hverter það afl nú sem heimtar börnin af fátækum foreldrum? Hvernig verður sigrast á þvi? Það hefur stundum verið slæmur galli á leiksýningum fyrir börn hér sem annars stað- ar, að menn hafa likt og gefiö sér að um börn sem áhorfendur gildiallt aðrar reglur en fullorK ið fólk. Þetta hefur leitt af sér hávaðasamar og ýktar sýning- ar, sem oftast hafa verið býsna sneyddar öllu listrænu gildi. Það er vel, ef þetta viðhorf er að Nornin Baba-Jaga breytast, eins og sumt bendir til. Eg nefni aðeins skemmti- lega sýningu Þjóöleikhússins i fyrra á öskubusku, sýningu Leikfélags Kópavogs á Snæ- drottningunni — og nú sýningu Alþýðuleikhúss á Norninni Baba-Jaga. Það er engin ástæða til aöfara i mannjöfnuð eða sýn- ingajöfnuð hér, til þess eru allar aðstæður of ósambærilegar hjá þeim þrem leikhúsum sem um ræðir. En öll áttu þau þaö sam- eiginlegt i þessum dæmum að leggja áhershi á viröingu fyrir börnum sem áhorfendum, taka þau alvariega sem njótendur listarinnar — og þar skilur milii feigs og ófeigs. Listræn fágun er meginstyrk- ur sýningarinnar á Norninni. Þar hafa allir lagst á eitt, og út- koman er öllum aðstandendum til mikils sóma. Leikararnir eru samtaka um að sýna stillingu, hversu mjög sem hlutverk bjóða upp á ærsl og afkáraskap. Tón- list og flutningur hennar er á sama báti, þar er hófstillingin látin ganga fyrir. Og þegar við bætast listaverk Guðrúnar Svövu i búningum og sviðs- mynd, verður allt harla gott. Þessisýning er mikiil sigur fyr- ir Alþýöuleikhús — Sunnan- deild, og þar með sýning sem á erindi við alla, jafnt börn sem fullorðna. Og þá er sjálfsagt að taka undir það sem oft hefur verið sagt: Barnasýning sem ekki á erindi við fulloröið fólk er aldrei góð sýning. Leikbrúðuiand sýnir að Fri- kirkjuvegi 11: Gauksklukkan eftir Soffiu Pró- kofievu. Þýðing: Hailveig Thorlacius. Leikstjórn: Briet Héöinsdóttir. Brúður: Hallveig Thorlacius og Helga Steffensen. Fyrst veriðer að tala um barna- leikhús, er sjálfsagt aö benda mönnum á að sýning Leik- brúðulands að þessu sinni á Gauksklukkunni er snoturt listaverk, sem uppfyilir eínmitt þær körfur sem að framan voru gerðar um hófstillingu og vönd- uð vinnubrögð. Brúðuieikhús á sér að visu skamma sögu hérlendis, en þróun þess hefur veriö þeim mun örari á siðustu misserum. Það er verulega ánægjuleg framför i sýningum þeirra félaga I Leikbrúöulandi, og með þessari syningu fæ ég ekki betur séö en þær séu að gerast fullgildir listamenn á sinu sviði. Og ekki spillir bráð- faileg umgjörð sem Snorri Sveinn Friðriksson hefur gefiö verkinu.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.