Helgarpósturinn - 06.04.1979, Page 14
Grétar og hátalarnir stóru I Laugarásbiói.
„Hristist ailt og
Laugarásbíó setur upp
„sensurround”-tæki
,,Við höfum veriö I þvl undan-
farna dag aö styrkja hliöar bfós-
ins, enda hristist hér allt og skelf-
ur”, sagöi Grétar Hjartarson,
blóstjóri i Laugarásbiói i samtaii
viö Helgarpóstinn. Astæöan fyrir
hristingnum er aö nú hafa veriö
sett upp ný tæki i bióinu, svoköll-
uö „sensurround" tæki.
..Þetta eru 12 stórir hátalar”,
sagði Grétar, „átta eru fyrir
framan áhorfendur en fjórir fyrir
aftan, I hornunum”
„Tækni þessi, sem viö höfum
kallað alhrif á Islensku, er i aöal-
atriðum fólgin i hljóðbylgjum
með mjög lágri tiöni, sem hefur
þau áhrif á áhorfendur aö þeir
finna fyrir hljóðunum um leiö og
þeir heyra þau. Hátalararnir
sem notaðir eru, eru knúnir með
þrem 600 Watta aflmögnurum, en
til samanburðar má geta þess að
við sýningar á venjulegum
myndum er aldrei notast við
meira en svona 80 wött”, sagði
Grétar.
Tækin voru fengín frá Belgiu,
og einnig tæknimaður til að setja
þau upp. Heildarkostnaðurinn við
uppsetninguna er um tvær
milljónir, en tækin verða i bióinu i
6 til 8 mánuði.
Fjórar kvikmyndir hafa verið
gerðar með þessa tækni i huga,
„The Battle of Midway”,
„Rollercosster”, „Earthquake”
Hótel Borg <4
á besta stað í borginni.
Föstudagur: Opið til kl. 1
f? Diskótekið Disa — plötusnúður Óskar Karlsson
Laugardagur: Lokað v/einkasamkvæmis (hið
síðasta í vetur)
Sunnudagur: Gömlu dansarnir 9-1. Hljómsveit
Jóns Sigurðssonar ásamt söngkonunni Mattý
Sími 11440 Hótel Borg Sími 11440
skelfur”
og „Battlestar Galactica”, sem
verður páskamynd biósins i ár
(sjá umsögn i listapósti). 1 bigerð
er að endursýna eitthvað af hin-
um myndunum áður en tækin
fara aftur út, en þær hafa allar
verið sýndar i Laugarásbiói áöur.
Annars er kvikmyndahúsið að
festa kaup á svokölluðu Dolby-
kerfi til hljómflutnings, en það
bætir mjög hljómburð. Að sógn
Grétars vonast hann til að búið
verði að koma þvi upp fyrir jólin
þegar „The Wizard of OZ” verður
væntanlega sýnd.
—GA
Hresst upp á
miðbæjarbraginn
Forsvarsmenn Nessy eru meö
skemmtilegar hugmyndir I koil-
inum, sem gætu oröiö til aö
hressa upp á miöbæjarbraginn ef
nauösynlegt leyfi fást. t bigerö er
aö iáta koma upp á Torginu veg-
vlsi fyrir miöbæinn. Þegar liggur
fyrir leyfi borgarráös en máliö er
nú tilathugunar i umhverfismála-
ráöi. Mesta nýlundan er þó aö
þeir Nessymenn eru aö gæla viö
þá hugmynd aö hressa upp á
gamla Rosentahlkjaliarann undir
Nýja bió, sem hér áður fyrr var
vinsæll samkomustaöur i borg-
inni. Þarna er tiivaliö aö koma
upp einhvers konar „stúdiói” eöa
vinnustofu sem Hstamenn gætu
fengiö til afnota gegn þvi aö al-
menningi gæfist kostur á aö
fylgjast meö vinnu þeirra auk
þess aö efna mætti til uppákoma
ýmis konar. Hugmyndir Nessy-
manna munu einnig vera eitthvaö
I þá veru.
A.Þ.
Föstudagur 6. apríl 1979 _he/garpústurinn_
Franslti matreiöslumaöurinn Eric Paul Calmon — hæstráöandi I
Nessy. HP-mynd: Friöþjófur
Vestrakjúklingar
við Innstræti
Nessy er íslenskur veitingastaður í skoskum stíl
þar sem franskur kokkur matreiðir kjúklinga
á ameriska visu
Nýjasti veitingastaðurinn á höfuðborgarsvæðinu er
í gamla miðbænum og heitir Nessy. Þetta er heldur
huggulegur grillstaður í skoskum stíl, enda er nafn
hans sótt í gæluheiti skrímslisins annálaða í Loch Ness
vatni og þegar staðurinn opnaði með pomp og pragt
var pantaður sekkjarpípuleikari frá Skotlandi, sem
þrammaði niður allan Laugaveg til að vekja athygli
vegfarenda á staðnum.
Nessy er i sundinu, sem liggur
úr Austurstræti inn að Nýjabiói,
og eigendur veitingastaðarins,
þeir Jón i óðali og Bjarni i
Brauðbæ, hafa fengið leyfi
borgaryfirvalda til að kalla
sundið Innstræti. óðalsbóndinn
og Brauðbæjarvertinn hafa ekki
áður lagt saman krafta sina, svo
aö við vitum til, en ekki mun
hafa veitt af samstilltu átaki
þeirra til að koma upp starfsemi
af þessu tagi i jafn gamalli
húsaþyrpingu og er þarna á
horni Austurstrætis og Lækjar-
götu, þvi að áður þurfti að sigr-
ast á alls kyns samþykktum
heilbrigðisyfirvalda, bruna-
málastjóra, bygginganefndar,
skipulagsnefndar, umhverfis-
nefndar og hvað þetta nú heitir
allt.
Innan dyra i Nessy er mat-
reiðslumeistarinn Eric Paul
Calmon æðstráðandi. Hann er
ættaöur frá Suður-Frakklandi
en hefur verið búsettur hér sið-
ustu sex árin, réðst upphaflega
að Hótel Esju en siðan að Óðali,
þar sem hann var þar til Nessy
opnaði. Eric býst við að dveljast
hér enn um sinn, þvi að hann er
nú giftur islenskri konu.
Eric leggur á það áhersiu i
spjalli við okkur Helgarpósts-
menn að i Nessy leggi hann
áherzlu á sérstaka matreiðslu á
kjúklingum, þ.e. á bandariska
visu i anda Kentucky Fried
Chicken og Southern kjúklings-
ins og kalla Nessy-menn kjúkl-
inga sina „vestra”. Eric tók
fram, að kjúklingarnir sem
þafna væri um að ræða væru
Helgarrétturinn:
Piparsteik í sinnepssósu
Eric Paul Calmonlagðiokk-
ur til helgarréttinnlogandi
píparsteik sem hann kvað
hafa gert mikla lukku, og
Bjarni i Brauöbæ mælti raun-
ar mjög með. Uppskriftin er
svohljóðandi:
1 kg. nautalundir eöa nauta-
fillet
40 gr. (u.þ.b.) af heiium pipar
(gjarnan hvitum)
Sterkt sinnep (ósætt)
1/4 l. rjómi
Dós af Cream fresh
Salt eftir smekk
Koniak (9 sentilitrar)
Skerið kjötiö i fjóra
skammta 250 gr. hvern
skammt Berjiö kjötið lítillega
en gætið þess þó aö fletja þaö
ekki út. Myljið piparinn gróft
(ekki í piparkvörn þar sem
hún mylur of smátt) og stráið
siöan piparnum vel yfir
sneiðarnar en þó aðeins aðra
hliöina.
Steikiö kjötiö á pönnu I
smjöri en ávalt fyrst þá
hliðina sem piparinn er á.
Steikinni er síðan snúið við og
steikt hin hliðin. Gætiö þess
jafnan að snúa kjötinu áður en
piparinn byrjar aö brenna.
Saltið eftir smekk.
Þegar steikin er nær tilbúin
er koniakinu hellt yfir pönn-
una og kveikt I þvi þar til það
logar en þá er 3/4 af rjóman-
um strax hellt yfir. Snúið
steikinni nokkrum sinnum en
siöa n er hún tekin a f pönnunni.
Nú er cream fresh bætt út i
sósuna en hún siðan látin siga
litið eitt. Bætiö út i sinnepi
eftir smekk, afganginum af
rjómanum salti ogpipar og þá
er sósan tilbúin. Helliö henni
að lokum yfir steikina. Berið
hana slöan fram meö salati úr
þvi grænmeti sem völ er á á
hverjum tima. ,
Uppskriftin er fyrir fjóra.
nýir og hefðu aldrei I frysti
komið.
Verðið á kjúklingunum er á
bilinu 1.200 kr. til 3.650, allt eftir
*þvi hversu stóran skammt þú
færð þér en einnig er hægt að fá
fjölskyldubox fyrir 5.500 kr. og
samkvæmisbox fyrir liðlega 10
þúsund krónur. Þá er unnt aö fá
5-6 tegundir af venjulegum
hamborgurum, sem kosta á frá
750 kr. og upp i 1300 kr. auk
Haggis-borgara, sem er gerður
eftir leyniuppskrift franska
matreiðslumannsins og er hið
mesta lostæti. Þá er á boðstól-
um djúpsteiktur fiskur, rækju-
karfa, hrásalat og ýmsar teg-
undir af sósum.
Nessy verður væntanlega
frekar i sviðsljósinu i næsta
mánuði, þvi að þeir Bjarni i
Brauðbæ og Jón I óðali hyggjast
um miðjan mai fá skoska sekkj-
arpípuleikarana aftur til lands-
ins en nú kemur hann með lið-
safnað, annan pipara til,
trommara og dansara, sem
væntanlega munu fremja listir
sinar á Torginu. Þá hyggjast
þeir Nessymenn vera búnir að
flikka enn frekar upp á Inn-
strætið.
En þar til verður Eric Paul
Calmon i fullu fjöri innan
veggja Nessy með vestra sina
og borgara — franskur kokkur i
skoskum matsölustað á tslandi,
sem sérhæfir sig i ameriskri
matreiðslu. Mótsagnakennt?
„Já, óneitanlega”, svara Eric,
„en hins vegar er þetta ný
reynsla fyrir mig og mér finnst
að maður eigi að reyna allt/'