Helgarpósturinn - 02.11.1979, Blaðsíða 7
7
Um frjálst útvarp
Helgi Sæmundsson — Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson —
Magnea J. Matthiasdóttir — Páll HeiOar Jónssonar — Steinunn
Þaö er á mörgum aö heyra aö
næst á eftir veröbólgunni sé
sinfónfan versti óvinur islensku
þjóöarinnar.
En þaö er sameiginlegt meö
sinfdnitim og brennivini, aö þeir
hata brennivlniö mest sem ekki
drekka þaö, og mest fjand-
skapast þeir viö sinfóniurnar
sem ekki hlusta á þær.
Baráttan gegn sinfónium
hefur gengiö mun betur en til
dæmis baráttan gegn verö-
bólgunni ellegar baráttan gegn
áfengisbölinu. Skoöanakann-
anir sýna, aö þótt allmargir
reyni enn aö ylja sér á brenni-
vini komnir hraktir heim af
veröbólguhafi, eru þaö tiltölu-
lega fáir sem sækja sálarstyrk i
aö hlusta á sinfóniur i Rikisiit-
varpinu.
Þettasegja skoöanakannanir.
Sumir leyfa sér þó aö hafa þá
skoöun, aöþessiniöurstaöa segi
meira um andlegan þroska
þjóöarinnar heldur en um ágæti
sinfónla.
En þaö breytir ekki þvl aö
margir eru orönir þreyttir á
sinfónium. Sömuleiöis ku
margir vera orönir þreyttir á
Rikisútvarpinu. Aö minnsta
kosti á aö fara aö stofna félag.
Fimmtudaginn 25. október
slöastliöinn var haldinn undir-
búningsfundur aö stofnun sam-
taka áhugafólks um frjálsan
rekstur Utvarps og sjónvarps.
Þar voru frummælendur þeir
Guðmundur H. Garöarsson
viðskiptafræöingur og ólafur
Hauksson ritstjóri. Fundar-
stjóri var Indriöi G. Þor-
steinsson rithöfundur.
Þetta var skemmtilegur
fundur. Nógu var hann tilbreyt-
ingarikur: Stundum var þetta
framboðsfundur fyrir Guömund
H. Garöarsson, stundum fundur
fjármálamanna sem vilja
eignast einkaútvarpsstöö til aö
þröngva sér lýöræöislega upp á
þjóðina, stundum fundur áhuga-
manna um diskómúsik, og
stundum fúndur áhugamanna
um frjálst útvarp og sjónvarp.
Ekkiergottaösegjaum, hver
veröi árangurinn af öllum
þessum fundum í einum fundi,
nema hvaö framboösfundur
Guömundar viröist ekki hafa
komið miklu til leiðar. Kannski
pólitiskur frami Guömundar
aukistekkitilmuna fyrren hann
hefur eignast sina privatút-
varpsstöö.
Alla vega rikti mikil bjartsýni
á fundinum. Ungur ritstjóri,
setn hefur öölast sérþekkingu i
útvarpsrekstri meö þvi aö
heimsækja frjálsar útvarps-
stöövar i Bandarikjunum, sagöi
aö þaö væri sáraódýrt aö stofna
og reka útvarpsstöö; þaö mætti
sem best gera I sosum' tveggja
herbergja ibúö; og úr þvi hægt
væri aö reka hér fjölda dag-
blaöa væri lika hægt aö hafa út-
varpsstöövar út um allar
trissur.
Þetta lét vel i eyrum.
Svo var lika farið aö bolla-
leggja um dagskrá nýja frjálsa
útvarpsins, og þá þótti einsýnt
aö best væri af staö fariö meö
þvi aö lesa bókina „Þjófur i
Paradis” eför Indriöa.
Þaö lofar lika góöu um aö
bókmenntirnar lendi ekki I
skammarkróknum.
Þetta viröist sem sé vera
ofureinfalt.
Aöalinntakiö I dagskrá frjáls
(og ódýrs) útvarps gæti til
dæmis veriö létt tónlist,
auglýsingar, upplestur,
auglýsingar, póiitiskt spjall
manna (sem meinaöur hefur
veriö frjáls og ótakmarkaöur
aöganguraö rikisfjölmiölunum)
og svoauglýsingarog létt tónlist
og meiri auglýsingar. Engar
sinfóniur, ekkert leiöinlegt efni.
Engar fréttir nema góöar frétt-
ir. Og auglýsingar. Ekkert
nöldur og þras, heldur létt og
skemmtilegt efni. Og
auglýsingar.
Engar sinfóniur, engin veður-
skeyti, engin framburöar-
kennsla I esperanto... Frjálst
útvarp gefur óendanlega mögu-
leika þegar um er aö ræöa aö út-
rýma leiöinlegu efni.
Ogþáerekkiannaöeftiren aö
skaffa nóg af léttu og skemmti-
legu efni. Og nóg af
auglýsingum.
Ekki kom til tals á fundinum
aö ieggja niöur Rikisútvarpiö,
hvorki útvarp né s jónvarp, enda
eru menn ekki búnir aö gefa upp
alla von um aö þessir rikisfjöl-
miölar taki fjörkipp þegar
Ctvarpslögunum hefur verið
breytt. Þau eru úrelt og þeim
þarf aö breyta. Um það held ég
að allir hafi veriö sammála á
fundinum.
Þetta var nefnilega ágætur
fundur. Og fjölmennur.
Enda haldinn á fimmtudegi.
Stína segir...
Súövikingur nokkur fór i
skógarvinnu austur i Hailorms-
staö og átti aö grisja meö mótor-
sög birkisskóg i akkorði. Þegar
hann fékk fyrstu vikulaunin
fannst honum þau með ólikindum
lág, en ákvaö aö taka sig á, og
hamaöist eins og hann gat næstu
viku. En allt kom fyrir ekki, þaö
var grunsamlega litiö i launa-
umslaginu næsta föstudag lika.
þá brá hann sér til Reykjavfkur
og fór i búöina þar sem mótor-
sögin var keypt. „Þessi sög er
handónýt, þaö gengur ekksrt aó
vinna með henni”, sagði Súövik-
ingurinn. Búöarmaðurinn kippti i
spottann, og vélin fór i gang.
„Hvaöa hljóöerþetta?”, sagði þá
Súðvikingurinn undrandi.
Tveir hundar hittust á landa-
mærum Póllands og Tékkóslóva-
kiu. Þeir urðu mjög undrandi á aö
sjá hvorn annan. Þá segir tékk-
neski hundurinn við þann pólska:
Hvaö ert þú aö gera hér?
Ég ætla að fá mér að éta,
svarar sá pólski, og bætir viö: en
þú, hvað ert þú að gera hér?
Ég ætla að fá mér að gelta,
svaraöi sá frá Tékkó.
Spælingar
Uppáhaldssetningin hans er:
„Ég er búinn aö gera upp hug
minn, svo vertu ekki aö rugla mig
rheö staöreyndum”.
Hann er svo einstrengingslegur
aö konan hans sagöi viö hann: 1
dag er sunnudagur og á morgun
er mánudagur ef þú hefur ekkert
við þaö aö athuga.
Þú getur ekki annað en dáöst aö
honum ef þú vinnur hjá honum.
Ef þú gerir það ekki, ertu rekinn.
miUiónir króna.
t J
I þmam hándam eftir
12 miimW.
Dæmi uiti noMo?aúaIkDSti af möigum æmt)jóÖasb.
SPARNAÐAR- TÍMABIL DÆMIUM MANAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR í LOK TÍMABILS IÐNAÐARBANKINN LÁNAR ÞÉR RÁÐSTÖFUNAR- FÉ MEÐ VÖXTUM MÁNAÐARLEG ENDURGREIÐSLA ENDURGR. TÍMABIL
3 . man. 30.000 70.000 100.000 90.000 210.000 300.000 90.000 210.000 300.000 182.650 425.850 609.000 31.515 73.536 105.051 3 . man.
6 , man. 40.000 70.000 100.000 240.000 420.000 600.000 240.000 420.000 600.000 495.000 866.375 1.238.350 43.579 76.264 108.948 6 , man.
12, man. 50.000 70.000 100.000 600.000 840.000 1.200.000 600.000 840.000 1.200.000 1.272.750 1.781.950 2.545.500 58.510 81.914 117.020 12, man.
Gerum ekki einfalt dæmi fiókið:
Það býður enginn annar IB-lán.
BaiMþeirpa sem hyggja aö framtíönmi
Iðnaðaifiankinn
AöalbanM og útíbú
I
I
ÍT
ES