Helgarpósturinn - 14.12.1979, Page 3

Helgarpósturinn - 14.12.1979, Page 3
3 halrjarpnczti irínn Föstudagur 14. desember 1979 lökin til að komast yfir fangelsis- múrinn lika, en ég varð að hnýta annan endann fastan i rimil og þegar ég hafði bætt beltinu minu við, náði þetta niður i garðinn. Það var garðurinn sem við notuðum til að hreyfa okkur i á daginn, en utan um hann var bara girðing, sem ég komst auðveld- lega yfir. Ég hafði séð múrinn á einum stað, þar sem ég hélt að auðvelt væri að komast yfir, en ég fékk nú brátt að kynnast öðru. — En þú hefur greinilega kom- ist yfir. — Já, við illan leik. — Eru engir varðmenn i garðinum, eða við vegginn? — Ekki varð ég var við þá. — Hvað gerðirðu þegar þú varst kominn út fyrir? — Ég tók nú bara leigubil fyrir utan fangelsið! — Þá hefurðu haft peninga — Já, ég átti 50 krónur (Dkr) i vasanum. — Hafði ykkur tekist að fela eitthvað af peningum frá eitur- lyfjasölunni? — Nei, við vorum teknir með allt. Nafnlausir hjálparmenn. — Hvert léstu leigubilinn aka þér? — Ég fór á stað sem ég þekkti. — Þar sem þú þekktir fólk? — Já, og þar fékk ég að sofa. — Hvernig tók fólkið á móti þér? — Það var bara hissa, annars tók það vel á móti mér — það hef- ur eiginlega verið tekið vel á móti mér alls staðar. Daginn eftir fékk ég lánaðan passa hjá manni sem er dökkhærður og á honum komst ég svo til Þýskalands. — Voru þetta íslendingar sem hjálpuðu þér? — Það segi ég ekki, þetta var bara fólk sem ég þekki. — Varstu með islenskt vega- bréf? — Það var bara vegabréf, þjóð- ernið skiptir ekki máli. — Hafðirðu peninga til Þýska- landsferðarinnar? — Ég fékk lánað fyrir farinu. — Einhvern veginn hefurðu þurft að lifa, hvernig fékkstu mat og húsaskjól i Þýskalandi? — Ég fékk nokkur þúsund krón- ur (Dkr) lánaðar i Þýskalandi. — Hver tekur áhættuna á að lána manni eins og þér nokkur þúsund krónur? — Þetta var vinargreiði og ég fékk 2000 kr, sem fóru i mat og húsnæði þennan mánuð sem ég var i Þýskalandi. — Hvar bjóstu i Þýskalandi? — Ég bjó á pensjónati. Hvar það var, skiptir ekki máli. — Ekki hafa þessir peningar enst þér þessa rúma þrjá mánuði á flóttanum. — Nei, en það er viðast hvar i Evrópu hægt aö fá ólöglega vinnu og ég var i mánuð i Þýskalandi á þessu pensjónati og fór siðan til Amsterdam og fékk vinnu. Flúði til að bjarga geð- heilsunni Nú hafði Sigurður fengið sér nokkra „smóka” af stuðinu og virtist það fara ágætlega saman með danska bjórnum, þvi hann gerðist skrafhreifnari. — Hvernig fer maður að þvi að fá ólöglega vinnu i Amsterdam? Ekki hefurðu bara bankað ein- hvers staðar upp á og beðið um eitthvert skuggastarf? — Nei, ég fékk vinnu hjá manni sem ég þekkti, sem á hótel og ég afgreiddi á barnum. — Er það Hollendingur? — Já. — Þú hefur ekki tekið til*Við fyrri iðju, að selja fikniefni? — Þegar maður er i minni að- stöðu, hefur maður. ekki efni á að vera vandfýsinn á hvað maður tekur sér fyrir hendur. Maður verður að selja það sem þessir menn hafa á boðstólnum, annars er maður bara á götunni. — Hvers vegna braustu út úr fangelsinu? — Það var eiginlega til að bjarga geðheilsunni. Ég þoldi ein- faldlega ekki við þarna inni. — Telur þú það þá vera geðbæt- andi að vera hundeltur um allar jarðir og þurfa að lúta afarkost- um alls konar glæpalýðs til að lifa? — Nei, nei, en sækja menn ekki i þann félagsskap, sem þeir hafa mesta þörf fyrir? — Hefur þú þá þörf fyrir að um- gangast glæpalýð? — Nei, ekki mundi ég segja það, en maður neyðist til að umgang- ast sorann i þjóðfélögunum. Þar er best að fela sig, en maður fær svo sem ekki mikið álit á heimin- um, eða þjóðfélögunum i heild, þegar maður þarf að lifa eins og rotta — velta sér upp úr sorpinu til að lifa. Kaupmannahöfn — ekki ferö til f jár — Hefur þér aldrei dottið i hug að breyta um liferni — að verða nýtur þjóðfélagsþegn? — Það er nú alltaf á stefnu- skránni, en það er svo sem ekkert auðvelt, þegar maður er talinn hafa brennt allar brýr að baki sér. Það er náttúrulega réttast að borga skuld sina viö hvern sem er, i þessu tilfelli samfélagið, en mér finnst bara skuldin ansi stór. — Þú gerir þér væntanlega grein fyrir, að þú næst fyrr eða seinna. Væri ekki skynsamlegra tekið fyrir, fyrr en rétt fyrir jólin og ég hafði ekki þolinmæði til að biða. — Hvers vegna komstu aftur hingað til Kaupmannahafnar? — Ég þurfti að sækja hingað verðmætan hlut sem ég átti og koma honum i peninga. — Hvað var það? Voru það fikniefni? — Nei, það var bara eins og ég segi, verðmætur hlutur. — Var það heiðarlega fenginn hlutur? — Já, hann var það, en mundi þó vera talinn óheiðarlega feng- inn ef út i það væri farið. — Af hverjum? Lögreglunni? — Já kannski löggunni. — Hvað fékkstu svo mikla pen- inga fyrir hlutinn? — Ég fékk 5000 danskar krónur, en það dugði mér nú skammt, þvi vinur minn stal þeim frá mér. — Þokkalegir vinir sem þú átt. Þú getur náttúrulega ekki kært þjófnaðinn til lögreglunnar. — Nei — ég á nú óhægt um vik með það, en svona getur það verið Siguröur Þór: „Ég flúði úr fangelsinu til aö bjarga geðheilsunni. Ég þoidi einfaldiega ekki viö þarna inni”. gagnvart öðrum eiturlyfjum sem ég tel mig ráða við. — Finnst þér enginn stigsmun- ur á að selja hass eða kókain? — Nei, eiginlega ekki, sjáðu, þegar maður er búinn að vera háður efni sem selt er i einkaleyfi rikisins og dettur svo niður á efni eins og hass, sem er miklu ómerkilegra finnst manni allt i lagi að nota hassið. Svo kemur það bara af sjálfu sér, að maður fær sér eina litla „nös” og finnst það bara ágætt. Þannig missir maður móralinn gagnvart hverju efni fyrir sig. — Finnst þér þá ekkert athuga- vert að selja t.d. heróin? — Sko, Hesturinn er bara stigs- munur frá kókaininu — og ég verð eiginlega að svara þessu neitandi. Alla vega ekki eftir að ég var i Hollandi. Þar nota menn Kók og Hestinn jöfnum höndum. — Hesturinn, er það heróin? — Já, það er það vist kallað. — Hefur þú sjálfur prófað að nota heróin? — Einu sinni já, i fangelsinu. Ahrifin voru ósköp notaleg , en með þvi að fá eiturlyf til að selja i umboðssölu. — Annars er helsta óskin að fá að vera i friði. —- 1 friði með hvað? — Bara að lifa. — Hefurðu hugsaö út i, að þú átt kannski eftir að lifa i 50 ár i við- bót? Eru 50 ár i og úr fangelsi eftirsóknarverð? — Æ, ég veit ekki hvað ég á að gera, kannski gef ég mig fram fyrr eða seinna, það snýst ein- hvern veginn allt fyrir manni. Ég á bara s vo bágt með að sætta mig við að fara i' fangelsi næstu árin. Ég vil lifa, það gerir maður ekki i fangelsi. — Það gæti nú verið að þú ættir fangelsisvistina skilið. — Já, já, sennilega á ég hana skilið, en ég hafði bara gert mér vonir um vægari dóm — svona tvö ár. Annars á ég að vera farinn i sólina fyrir löngu, ætliégfari ekki þangað við fyrsta tækifæri. — Hvert ferðu héðan? — Ég veit það ekki, eitthvað suður á bóginn reikna ég með. — Þú gerir þér væntanlega Fióttamanni veröur tamast aö lfta um öxl, — hann getur alltaf búist við aö veröa gripinn. að gefa sig fram sjálfviljugur og reyna að verða þér út um ein- hverjar málsbætur á þann hátt. — Ég tel mig hafa jafn mikla möguleika, hvort sem ég gef mig sjálfur fram eða verð tekinn. Það eru náttúrulega til lúxusfangelsi i Danmörku. Opin fangelsi, þar sem maður fær helgarleyfi o.s.frv. en sem útlendingur gat ég aðeins fengið að velja um lokuðu fangelsin. Ég sótti um að fá að af- plána á íslandi og var reyndar búinn að fá leyfið, þegar ég strauk. — Var þá ekki fljótræði að strjúka? — Ég nennti bara ekki aö biða eftir að málið yrði tekið upp að nýju. Við vorum búnir að áfrýja, en mér skildist að málið yrði ekki að vera upp á alls konar fólk kom- inn, maður getur engum treyst — það eru eins konar frumskógalög, sem gilda i þessum heimi. Kynntist fikniefnum i Kristjaníu — Hvenær byrjaðir þú að neyta fikniefna? —- Ég kynntist þeim ekki af al- vöru fyrr en hér i Kaupmanna- höfn. Það var i Kristjaniu, eins og allir hinir. Reyndar hef ég verið háður einkaleyfiseitrinu i mörg ár. Brennivinið hefur eiginlega verið stærsti þátturinn i minu lifi. Allir minir smáglæpir heima á Is- landi voru framdir til að útvega meira vin, þannig að ég hef nú ekki miklar móralskar skoðanir þó er ég nú dálitið hræddur við það. Framtíðin er ekki björt Þegar Sigurður er spurður um framtiðaráætlanir sinar, vefst honum tunga um tönn. Helsti draumur hans er að komast eitt- hvað suður á bóginn, eða til austurlanda. Þar gerir hann sér vonir um að geta horfið i mann- fjöldann. Þó togast á löngunin til að snúa aftur til eðlilegs lifs, sem hann getur þó ekki án þess að borga skuld sina við samfélagið og taka út sinn fangelsisdóm. — Annars getur maður ekki gert miklar framtiðaráætlanir, segir hann. Helst dettur honum i hug að fjármagna samfélagsflótta sinn grein fyrir að ég verð að tilkynna lögreglunni að viö höfum hist. — Ætli það ekki. Ætli maður fari þá ekki að drifa sig af stað. Eftirmáli Að vera afbrotamaöur á flótta, gctur vægast sagt ekki veriö eftirsóknarvert hlutskipti. Óttinn viö að verða handtekinn, verður liluti af dagiegri tiiveru og maöur verður að blanda geði við mestu úrhrök mannfélagsins. Fólk sem hefur litla sem enga siögæöisvit- und og stelur síöasta eyri frá besta vini sinum, vegna þess aö það veit að hann getur ckki kært þjófnaðinn. Ég reyndi árangurs- laust að telja Sigurð á að gefa sig fram við yfirvöldin, en hann kaus að vera hundeltur eins Icngi og mögulegt væri. Texti og myndir: Magnús Guömundsson, Kaupmannahöfn PER HANSSON: TEFLTÁ TVÆR HÆTTUR Þetta er ekki skáldsaga, þetta er skjalfest og sönn frá- sögn um Norðmanninn Gunvald Tomstad, sem axlaði þá þungu byrði að gerast nazistaforingi og trúnaðarvinur Gestapo, — samkvæmt skipunum frá London, — og til þess að þjóna föðurlandi sinu varð hann að leika hið sví- virðilega hlutverk svikarans, gerast foringi í einkaher Quislings. En loks komust Þjóöverjar að hinu sanna um líf og störf Gunvalds Tomstad og þá varð hann að hverfa. Og þá hófst leitin að honum og öðrum norskum föður- landsvinum. Sú leit, framkvæmd af þýzkri nákvæmni, varð æsilega spennandi og óhugnanleg. K. SÖRHUS OG R. OTTESEN: BARÁTTA MILORG D 13 Þetta er æsileg og spennandi frásögn af norskum föður- landsvinum, harðsoðnum hetjum, sem væntu þess ekki að frelsið félli þeim í skaut eins og gjöf frá guðunum. Þeir stóðu augliti til auglitis við dauðann, lifðu í sífelld- um ugg og ótta um að upp um þá kæmist, að þeir yrðu handteknir og skotnir eða hnepptir í fangabúðir og pyndaðir. — Þessir menn börðust af hugrekki og kænsku, kaldrifjaðri ófyrirleitni og ósvífni, en einnig skipulagi og aga, fyrirhyggju og snilli. — Þessi bók er skjalfest og sönn, ógnvekjandi og æsilega spennandi, — sannkölluð háspennusaga. PiRHANSSON HAETTUR KJfU SORHUS ÐG RDlf OÍTISfN BARÁTTA

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.