Helgarpósturinn - 14.12.1979, Page 4
Föstudagur 14. desember 1979
—he/garpústurínrL.
NAFN: Guðjón Jónsson STARF: Formaður Málm- og skipasmiðasambandsins HEIMILI: Breiða-
gerði 23, Rvik HEIMILISHAGIR: Eiginkona, Unnur Benediktsdóttir og eiga þau tvö börn
BIFREIÐ: Lada 1600 árg. '68 ÁHUGAMÁL: Félagsmál, ferðalög og sundiðkun
„ALGJÖRUM LAUNAJÖFNUÐI
VERÐUR ALDREI KOMIÐ Á"
Ekki náðist samstaða um láglaunastefnu á kjaramálaráðstefnu Alþýöusambands tslands, sem
haidin var fyrir skömmu. Verkamannasambandið bar fram tillögu sem fól þaö i sér, aö veröbætur á
taun yrðu i kronutölu ýmissa samtaka mótfallnir. t loftinu liggur ákveðin togstreita milli þeirra
verkalýðsfélaga sem hafa innan sinna vébanda launaiægsta fólkið og svo aftur þeirra félaga sem
sinna hagsmunum t.d. iönaöarmanna.
Margir hafa haldið þvi fram, aö verkalýöshreyfingin á tsiandi sé i raun margkiofin. Þar starfi
undir einu nafni, aðiiar sem í veigamikium máium séu ósammála. Þá er og stundum sagt aö forystu-
menn verkalýðshreyfingarinnar séu duglausir metoröaklifurkettir.fjarstýrðir af ákveðnum stjórn-
málaflokkum.
Guðjón Jónsson formaöur Málm-og skipasmfðasambandsins er yfirheyrður um þessi mál.
Er Alþýöusamband tsiands að
klofna upp f ósamstæðar ein-
ingar i afstöðunni til jafnlauna-
mála?
„Nei, það held ég að sé fjarri
lagi. Alþýðusamband íslands
var tii og starfaði áður en hin
stóru samningasamflot komu til
við gerð kjarasamninga. ASl
hafði verkefni aö gegna þá og
myndi hafa það i dag, enda þótt
samningssamflot væru ekki inni
i myndinni. Það eru margs
konar verkefni önnur sem ASl
þarf að vinna að, eins og ýmis
félagsleg réttindamál, hiis-
næöismál, lifeyrissjóösmál,
vinnuverndarmál og fleiri mál-
efni sem ASI myndi sinna þó aö
það sleppti samflotinu i
samningunum um kaup.”
Ertu þeirrar skoðunar að ASt
eigi að snúa af þeirri braut, að
hafa meðhöndum samningamál
allra aðildarfélaganna?
,,Já, ég er á þeirri skoðun full-
trúa prentarafélagsins að það
ætti að afmarka verksvið
Alþýðusambandsins betur i
sambandi viö þessi samflot.”
Sýnir þessi afstaða þín ekki
giögglega hvað ASt er raun-
verulega ósamstætt og hvað
aðildarfélöginhafa mismunandi
hagsmuni? Eru þeir launahærri
innan sambandsins með þessu
að fá frjáisari hendur meö það
að hifa upp sin eigin laun?
„Nei, Alþýðusambandiö er
ekki ósamstætt. Meginhópurinn
i Alþýöusambandinu er lág-
launafólk. Ég býst viö þvi að
meginhlutinn þiggi laun á bilinu
frá 230 sem eru lægstu umsamin
laun verkamanna og svo aftur
280 þtísund sem eru hæstu laun
iðnaðarmanna nú 1. des. Þetta
eru að minu viti allt saman lág
laun. Það er i sjálfu sér ekki stór
hlutur að jafna þetta innbyrðis.
Öréttlætið i launamálum liggur
ekki innan Alþýðusambandsins
heldur utan þess.”
Þú talar um iág laun iðnaðar-
manna, en eru þessi föstu laun
nema hluti raun veruiegra
heildarlauna?
„Þetta er ágæt spurning og ég
er ánægður með að fá tækifæri
til að svara henni. Það er ekki
nema hluti iönaðarmanna sem
býr við tekjur samkvæmt
ákvæðisvinnu. Það eru fyrst og
fremst byggingariönaðarmenn,
sem geta aukið tekjur sinar i
ákvæðisvinnu, en svo er aftur
annar hópur iðnaðarmanna sem
ekki á kost á afkastahvetjandi
launakerfi, Þar má t.d. nefna
málmiönaðarmenn og prentara,
semhafaeinungisföst umsamin
iaun og geta ekki aukið við þau
nema með þvi aö vinna yfir-
vinnu"
Þú segir raunverulega launa-
misréttið alls ekki vera innan
Alþýðu sa m bandsi ns, heidur
utan þess. En er ekki rétt að
sýna viljann i verki með því að
hreinsa fyrsttil á heimaslóðum
og jafna þá iaunin i upphafi
innan ASl?
„Við erum hluti af þjóðfélag-
inu. Aðilar innan ASt eru ekki
sérpartur, sem á aö meðhöndla
á einhvern sérstakan hátt. Og
þegar talað er um launajöfnuð,
þá þýðir ekki að tala um launa-
jöfnuð einungis hjá hluta þjóð-
félagsþegnanna.Slikt verður aö
ná til allra. Það er hins vegar
rangt að stilla málinu þannig,
aö ég sé á móti launajöfnuöi
innan Alþýðusambandsins. Ég
tel aö slikur jöfnuður verði helst
framkvæmdur, þannig að strik-
aöir verði Ut tveir lægstu taxtar
verkamanna oghækka það fólk.
Þarnakæmu þar með hækkanir
til þeirra sem eru allra lægstir.”
Nú telja ýmsir þetta óraun-
hæfa leið, þarsem siikar hækk-
anir fáist ekki nema dregið
verði af öörum. Verkamanna-
sambandsmenn viija að sama
krónutala komi á allar verð-
bætur launa, en ekki htutfails-
hækkanir eins og nú er. Þú og
fleiri innan ASl eru á moti þess-
ari launajöfnunarstefnu. Hvers
vegna?
„Þessi leið hefur verið reynd
áöurog gerði það aö verkum aö
launamismunur innan ASl
minnkaði,ená sama timafengu
allir aðrir þjóðfélagshópar visi-
töluhækkanir i hlutfalh. Þetta
haföi þær afleiöingar einar að
mismunurinn á kjörum fólks i
Alþýðusambandinu og t.d.
BSRB jókst. Þannig að þegar
talað er um að rétta hag þeirra
launalægstu að stefna að launa-
jöfnuði, þá verður að gera það i
þjóðfélaginu iheild. Nei, ég held
að aðrar leiðir yrðu mun happa-
drýgri i þessum efnum.’
Ertu hlynntur algjörum
launajöfnuöi milli alira þegna
þjóöfélagsins?
„Égheld að það sé ócaunhæft
að tala um algjöran launajöfnuð
bvi verður aldrei komiöá. Stört
manna eru svo mismunandi,
jafnvel innan eins félags. Litum
til dæmis á Dagsbrún. Þar eru
störf. manna svo mismunandi
að það verður að hafa mis-
munsndi taxta.Störfin geta verið
mjög misjöfn. Sum eru vanda-
samari, óþrifalegri en önnur.
Meðferð á vélum og tækjum
kallar á ábyrgð. Þaö segir sig
sjálft að það er óeðlilegt að láta
þá sem starfa við ólikar
aðstæður og að mismunandi
verkefnum vera á sama kaupi.
Það er eðlilegt að það sé einhver
launamismunur. Verkalýðs-
félög hafa i' mörgum tilfellum
komið sér saman um eðlileg
launahlutföll einfaldlega vegna
þess að störfin eru mismunandi’.''
Þú réttlætir þarna ákveðinn
launamismun m.a. með þvi að
tala um mismikla ábyrgð
manna. Eru þetta ekki
nákvæmlega sömu rök og t.d.
atvin nurekendur nota, þegar
þeir sýna fram á réttmæti sinna
háu launa?
„Ég á við ábyrgð verkafólks
við verkefni og framleiðslu. HUn
er misjöfn”.
Þú nefndir i upphafi að þú
viidir rjúfa samstöðu aöildar-
félaga ASl viö gerð kaupsamn-
inga. Viltu rökstyöja þessa
skoðun?
„Það er alrangt að ég vilji
rjufa einhverja samstöðu. Það
er ekki min hugmynd. Hins
vegar er ágreiningurinn um
aðferðir og leiðir að sameigin-
legum markmiðum. Hættan er
að of mikil miðstýring verði
þegar ASl semur fyrir hönd
allra aðildarfélaganna. Félags-
menn verkalýðsfélaganna og
samninganefndir þeirra hafa of
lltiláhrif á samningageröina og
þannig skapast ákveðið bil á
milli verkafólksins, sem verið
er að semja fyrir og þeirra
manna sem hafa forystu i sam-
flotinu og með samningamálin
fara. Megingallinn ásamflotinu
er sem sagt sá að hinn almenni
félagsmaður færekki næg tæki-
færi til að fylgjast með gangi
mála. Því hefur aldrei verið
slegið föstu að það skuli vera
verkefni Alþýðusambandsins nú
og eillflega að semja um launa-
kjör. Þetta fer eftir aðstæöum.
Stundum getur verið þörf á að
sameinast, stundum er það ekki
nauðsynlegt.”
Nú haíið þiö verkalýðs-
foringjar talað lengi um
nauðsyn þess aö bæta kjör
þeirra lægst launuðu, en þrátt
fyrir það hefur lltið miðað i
rétta átt i undanförnum kjara-
samningum. Eru þetta aðeins
orðin tóm?
„Ég vil nU ekki kannast við
það, að ekki hafimjakast irétta
átt fyrir hina lægst launuðu I
undanförnum kjara-
samningum. Þvert á móti hafa
hækkanir til þeirra verið meiri
en þeirra sem eitthvað hærri
hafa launin innan ASI. En ég
legg áherslu á það, að tómt mál
er að tala um há- og láglauna-
menn sem eruá bilinu 230 til 280
þUsund, en þar eru flestir launa-
menn innan ASI. Þetta fólk er
allt láglaunafólk. Verkefnið er
ekki að j af na þetta bil Ut, heldur
að bæta kjör alls þess hóps, en
ekki togast um einhverjar
krónur innan hópsins.”
Er verkalýðshreyfingin I úag
nokkuð annað en handbendi
ákveðinna stjórnmálaflokka?
„Þaö er algerlega fráleitt að
segja að verkalýðshreyfingin sé
handbendi stjórnmálaflokka.
Félagsmenn innan verkalýðs-
hreyfingarinnar eru að sjálf-
sögðu með mjög mismunandi
stjórnmálaskoðanir og senni-
lega i sama hlutfalli og þegar
talið er upp úr kjörkössunum.”
Ætlar þú algjörlega að neita
þvi að bein eöa óbein tengsl séu
á miili stjórnmálaflokkanna og
ver kalýðshreyfingarinnar?
„Það eru engin bein tengsl á
milli verkalýöshreyfingarinnar
og f lokkanna. Hitt er svo annað
mál, að forystumenn innan
verkalýðshreyfingarinnar hafa
slnar skoðanir og eru oft settir á
oddinn hjá stjórnmálaflokk-
unum, enda fara stefnumið
verkalýðshreyfingarinnar og
ákveðinna stjórnmálaflokka
saman. Kjarabaráttan er
náttUrlega pólitik — stjórn-
málabarátta.
En er jafnframt ekki fullijóst
að flokkarnir nota verkalýðs-
leiðtoga sem skrautfjaðrir á
lista sina?
„Það er vafalitið gert.”
Er þá ekki greinilegt að flokk-
arnir eruaö nota sér verkalyðs-
hreyfinguna?
„Það er auðvitaö alveg ljóst
að stjórnmálaflokkar reyna að
velja fólk sem nýtur almenns
trausts á lista sina. NU, margir
verkalýðsleiðtogar hafa þetta
traust og veljast þvi á lista
flokkanna. En yfirleitter það nU
þannig, að þessir sömu menn
lenda oftast neöarlega á
listunum, hvernig sem á þvi
stendur.”
Sem sagt eins konar skraut-
Qaðrir. Varst þú skrautfjööur á
lista Alþýðubandalagsins hér I
Reykjavík?
„Ég skal ekki neitt um það
segja hvort ég er einhver
skrautfjöður, eða hafi að-
dráttarafl á framboðslista. Hitt
er annað, að ég hef verið I Al-
þýðubandalaginu frá þvi það
var stofnað og unnið að fram-
gangi þess og ef flokksmenn
telja einhvern ávinning að þvl
að ég komi opinberlega fram
fyrir Alþýðubandalagiö þá geri
ég það.”
En yrði þér hampað eins hjá
Alþýðubandalaginu ef þú værir
ekki i forystu fyrir verkalýðs-
félag?
„Ég skal ekki um það segja.”
Þú talaðir um það að kjara-
baráttan væri pólitík. Er það
ekki tviskinnungur að starfa viö
hlið pólitískra andstæðinga i
verkalýðshreyfingunni og síðan
kasta á þá stórsprengjum I
flokkspólitiskri kosninga-
báráttu?
„Viö náum markmiðum
verkalýðsins fram eftir tveim
leiðum, hinni pólitísku og hinni
faglegu. Mörgum verkefnum er
hægt að vinna að I fullri ein-
drægni með pólitískum and-
stæðingi.”
En varðandi rammpóiitfsk
mái eins og kjaramál?
Jú, sumir stjórnmálaflokka
vilja meina að launin séu höfuð-
orsök verðbólgunnar og ekki sé
hægt að lækka hana nema með
þvi að skerða laun. Þetta
teljum við Alþýðubanda-
i lagsmenn algjörlega rangt.
Verðbætur launa koma eftir á,
þegar verðið hefur rokið upp,
enda er það svo að kaupmáttur
launa hefur lækkað um 13% frá
1977 vegna verðbólgunnar.”
Nú ertu dottinn niður i flokks-
pólitikina, þú sagðir „við
Alþýöubandalagsmenn”. Er
svona skammt á milli þess að
vera verkalýðsleiðtogi og
Alþýöubandalagsmaður?
„Kjara-og stjórnmálabarátta
er samtvinnuð. Stefna Alþýöu-
bandalagsins er aö verja og
bæta kjör verkafólks. Ég tel að
Alþýðubandalagið hafi sýnt það
og sannað. Ég starfa á báðum
vlgstöövum, þ.e. er I stéttar- og
stjórnmálasamtökum.”
Nú ertu búinn að vinna I
forystu fyrir þitt félag i' 25 ár.
Ertu þar með orðinn skrifstofu-
ogkerfisþrællogþá fjarlægst þá
sem iðnina stunda?
„Fjarri þvi. Mjög fjarri þvi.
Það liður ekki sú vika að ég
komi ekki inn á þrjá eða fjóra
vinnustaði.”
Hvað er langt siðan þú hefur
skcllt þér i vinnugallann?
,, Ég hef kannski ekki farið I
gallann, en það er ekki aðal-
málið. Aðalatriðið er að halda
góðu sambandi við verkafólkið.
eftir Gudmund Arna Stefánsson