Helgarpósturinn - 14.12.1979, Síða 10
10
Blaðberar
óskast
Helgarpósturinn
og
Alþýðublaðið
óska eftir blað-
berum i eftir-
talin hverfi:
Miðbæ,
Laufásveg,
Fríkirkjuveg
Upplýsingar
i síma
81866
Föstudagur 14. desember 1979 hdlrfp^rpn^furínn
Angi af „Fremtiden í váre hender”
í útvarpi:
BJARGIÐ HUNGR-
UÐUM HEIMI!
Útgáfa Hagprents:
2 barnabækur, Super-
man og Kevin Keegan
Helgarpóstinum hafa borist fjórar bækur frá Hagprent. Tvær
þeirra eru i flokki barna-og unglingabóka forlagsins — Litla Kisan
Pisl eftir Buchi Emecheta og Elvis, Elvis eftir Maria Gripe.
Fyrrnefnda bókin er fyrsta
barnasaga Emecheta sem var
fyrir vinsæll höfundur fullorð-
inssagna i heimalandi sinu.Sag-
an segir frá því þegar ósköp
venjuleg fjölskylda i London
eignast dag einn litinn kettling
og gengur þá ýmislegt á. Elvis,
Elvis er hins vegar framhald
bókarinnar Elvis Karlsson sem
kom út i fyrra og fékk góðar við-
tökur.
Hinar bækurnar tvær eru
Ofurmennið Supermann eftir
Elliot S. Maggin og Kevin
Keegan — sá besti i heimi. Sú
fyrrnefnda rekur sögu og feril
ofurmennisins fræga i anda
samnefndrar kvikmyndar, sem
sýnd var hér ekki alls fyrir
löngu, en i þeirri siðari er fjallað
um enska knattspyrnu-
snyllinginn Kevin Keegan,
skrifuð af honum sjálfum og
Iýsir erfiðleikum hans, baráttu
og sigrum á ævintýralegum
ferli á knattspyrnuvellinum.
,.Til þess að leysa vandamál
þriðja heimsins þýðir ekkert að
auka hagvöxtinn -i löndum hins
iðnvædda heims. Ráðið er að
draga Ur ofneyslunni og nota það
fé sem þannig sparast til að
hjálpa hinum hungraða heimi”.
Þetta er inntakið i boðskap Norð-
mannsins Erik Dammen, sem
hann setti fram f bók sinni
„Fremtiden í vSrehendar”, sem
kom út árið 1972.
Árið 1974 voru stofnuð samtök
undir sama nafni, og komst fé-
lagatalan þegar upp i tiuþúsund.
Núeruum tuttuguþúsund félagar
skráðir i samtökin, og systursam-
tökerustarfandibæði í Sviþjóð og
Danmörku. Helsta verkefni sam-
takanna er að opna augu fólks
fyrir ástandinu i þriðja heiminum
og vekja það til umhugsunar um
þá skuldsem við, ibúar velferðar-
rikjanna, eigum þar að gjalda.
Félagsskapurinn hvetur fólk til
að hætta að láta hugsanir sfnar
snúast um eigin naflia, en hugsa
þess í stað i heimssamhengi.
Litill andi af samtökunum
„Fremtiden i vSre hender”, sem
mundi sennilega verða „Fram-
tiðin i okkar höndum” á islensku,
hefur nú náð hingað. Engum fé-
lagsskap hefur þó verið komið á
fót, en tvö undanfarin þriðjudags-
kvöld höfum við verið frædd um
ástandið i þriðja heiminum frá
sjónarhóli fylgismanna Damm-
an. Þriðji og síðasti þátturinn um
þetta efni verður næsta þriðju-
dagskvöld. Stjórnendur þáttarins
eru þau Hallgrimur Hróðmars-
son, Þórunn óskarsdóttir félags-
ráðgjafi og Hafþór Gu-ðjónsson
menntaskólakennari.
t fyrsta þættinum var tneðal
annars sýnt fram á þá mvnd sem
skólabörnum er gefin afi þriðja
heiminum i skólabókum. 1 mann-
kynssögunni var meðal annars
sagt frá landkönnuðinum Vasco
da Gama og afrekum hans,
en ekki vikið einu orði að þeim
þjóðum sem hannfann, og menn-
ingu þeirra.
t öðrum þættinum var lýst á-
standinu eins og það er nú. Sagt
var frá hungri, hörgulssjúkdóm-
um, húsaskorti og ólæsi. Kalkútta
á Indlandi var tekin sem dæmi, en
þar býr stór hluti ibúanna við sár-
ustu neyð og reynir að bjarga sér
með því að gramsa f öskuhaugun-
um.
t þriðja þættinum eru lausnir
Dammen gerðar að umtalsefni.
Meirihluti landsmanna Damm-
ans virðist vera á sama máli og
hann. úrslit Gallup-skc ðanakönn-
unar i Noregi bendir tu þess, að
Norðmenr, séu reiðubúnir til að
leggja sitt að mörkum til nýs
heims með þvi að draga úr einka-
neyslu sinni og nota féð sem
þannig sparast handa hungruðum
heimi.
— ÞG.
Sven Hazel:
Nýja bókin nefnist
Guði gleymdir
Flestar bækur Hazels hafa selst
upp á fyrsta ári.
Af áður útkomnum bókum hans eru
nú aðeins fáanlegar: Dauðinn á
skriðbeltum — Hersveit hinna for-
dæmdu — Martröð undanhaldsins —
Monte Cassino og Stríðsfélagar.
Fjöldi stríðsbóka hefur verið
skrifaður og margar góðar, en f ull-
yrða má aðengumer Hazel líkur.
Nú er í ráði að kvikmynda bækur
hans, hann hefur hlotið hástemmt
lof og bækur hans selst í milljóna
upplögum í yfir 50 löndum.
Ægisútgáfan
SVEN HAZEL
er stórvlrkasii striOs-
bókahöftmdur fyrr og slöar.
Hcekur hans seljast i milijóna
upplögum í yfir 50 löndum
og hafa hlotið einróma lof
fíáögert er nú að kvikmynda
fyrstu hcekur hans.
Cuði gleymdir er 11. hók
hans á íslensku. Uafafær
fiestar selst upp og allar vel
Oegefandi.
HUÓMPLÖTIIR, SEM TREYSTA MA
Jólasnjór. Allir vinsælustu söngvar-
ar og kórar landsins flytja 34 jóla-
lög. Þetta eru tvær plötur i albúmi,
sem aðeins kosta sama og ein, eða
kr. 7.800.- (Einnig á kassettum.)
Katia Maria syngur spænsk barna-
lög með islenzkum textum. Þetta er
skemmtilegasta og vandaðasta
barnaplatan, sem við höfum gefið
út. Verð kr. 7.800.- (Einnig á
kassettu.)
Guðrún Á. Simonar fór á kostum á
söngafmælis-hljómleikum sinum og
gerir að sjálfsögðu hið sama á
þessari einstæðu plötu, sem var
hljóðrituð á hljómleikunum. Verð
kr. 7.800,- (Einnig á kassettu.)