Helgarpósturinn - 14.12.1979, Qupperneq 28
—helgarpósturinrL. Föstudaqur 14. desember 1979.
HOLLOGGÓD
NÆRING FYRIR LfT
OKAO
Einu sinni var lítill bókaormur. vondar bækur sem hafi orðið að æðislegum köggli
Hann át bókstaflega allar bækur sem hann komst í, í maganum á honum.
því hann var algjör bókaormur. En svo fékk hann Ef þú þekkir litla bókaorma þá skalm
magapínu. Sumir halda að hann hafi étið of margar kynna þér vel hvaða fóður þú velur þeim.
Páll H. Jónsson:
AGNARÖGN
Agnarögn er átta ára stúlka, og hún á að
vera ráðskona hjá Afa meðan Amma
fer í ferðalag. Og ýmislegt ber við í
Hverfmu þennan tíma . . . Geðþekk
saga fyrir unga sem aldna. Páll H.
Jónsson hlaut bamabókaverðlaun
fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir BERJA-
BÍT. Þorbjörg Höskuldsdóttir mynd-
skreytti Agnarögn.
Guðrún Helgadóttir:
ÓVITAR
Allir þekkja sögur Guðrúnar Helga-
dóttur. Nú hefur hún samið leikrit fyrir
böm. Það fjaliar aðallega um tvo stráka
og heimilislíf þeirra þegar óvæntir
atburðir gerast. Guðrún samdi ÓVITA
að beiðni Þjóðleikhússins og kemur
leikritið á prent samhliða frumsýningu.
J.R.R. Tolkiem
GVENDUR BÓNDI Á SVÍNA-
FELLI
Gamansamt ævintýri sem segir frá
viðureign Gvendar bónda við drekann
Chrysophylax. Sagan er bráðskemmti-
leg fyrir lesendur á öllum aldri. Hún er
prýdd ágætum teikningum eftir Pauline
Baynes. Ingibjörg Jónsdóttir þýddi.
Ole Lund Kirkegaard:
ALBERT
Albert er dálítið óþægur en mikill æringi
og finnur upp á ýmsu: hann grefur
stelpugildm, glettist við vasaþjóf, kemur
upp um frúna sem var söguð sundur og
sendir nokkra þorpara upp í loftið
með belg. - Eftir sama höfund em
FÚSI FROSKAGLEYPIR og
GÚMMÍ-TARSAN. Þorvaldur
Kristinsson þýddi.
LiTLI SVARTI SAMBÓ
Hér er hún komin aftur, sagan sem lítil
böm gleyptu í sig fyrir nokkrum
áratugum. Fallegar litmyndir. Og önnur
bók eftir sama höfund, Helen
Bannermann, kemur nú út í fyrsta sinn:
SAMBÓ OG TVÍBURARNIR.
Kjömar bækur fyrir böm sem em að
læra að lesa.
TUMIOGEMMA
Bækur Gunillu Wolde um þau Tuma og
Emmu hafa hvarvetna notið gífurlegra
vinsælda enda er hér tvímælalaust
um að ræða vandað og skemmtilegt
lestrarefni fyrir yngstu bömin. Tvær
nýjar bækur um Tuma og tvær um
Emmu, og fjórar endurprentaðar.
BARBAPAPA
Barbapapafjölskylduna þarf ekki að
kynna. Nú em komin sex ný hefti.
Svo höfum við fleira, m.a. bók með
hljómplötu þar sem er lagið vinsæla úr
sjónvarpinu, ásamt fleirum. Sögumar
um barbapapana em eftirlæti allra bama
- einkum hinna yngstu.
KALLI.OGKATA
Tvær nýjar og skemmtilegar bækur um
Kalla og Kötu. Þessar bækur em
litríkar, einfaldar og fróðlegar fyrir
litlu bömin. Þær nýju heita: KALLI
OG KATA FLYTJA og KALLI OG
KATA FARA í BUÐIR.
ÖRKIN HANS NÓA
Gullfalleg myndabók eftir virtan
amerískan listamann, Peter Spier.
Texti bókarinnar er gamalt kvæði eftir
hollenskt skáld í snjailri þýðingu
Þorsteins frá Hamri.
Bræðraborgarstígló Símil2923ogl9156
# Ein gamansaga frá þingsetn-
ingunni á miðvikudag sl. Það var
eftir að forsetinn hafði talað, að
þinginu var skipt niður i þrjár
deildir til að yfirfara kjörbréf.
Albert Guðmundsson hafði
framsögu i þeirri deildinni sem
fékk aðsetur i neðrideildarsaln-
um en þegar hann kom upp i pont-
una með öll sin gögn, kom i ljós að
forseti tslands dr. Kristján
Eldjárn hafði skilið eftir öll sin
gögn i ræðustólnum. Albert tók
þau upp og ætlaði að reyna að
koma þeim einhversstaðar fyrir
en fann hvergi stað fyrir þau.
Sagði hann þá stundarhátt — við
mikla kátínu þingheims. „Ætli ég
taki þetta ekki bara með mér til
hans þegar ég fer þangað suður
eftir...”
# Diskóstaðirnir laða marga að
sér , eða öllu heldur reynt er að
laða óliklegustu menn að þessum
stöðum islensks skemmtanalifs.
Nú siðast hefur það frést að tima-
ritið Hús og hýbýli hafi boöið
forseta Islands i Hollywood næst-
komandi mánudagskvöld, en þá
mun timaritið vera með
uppákomu og kynningu á blaðinu.
Ástæðan fyrir þvi að Kristjáni
forseta er boðið, er sú að innbúið
á Bessastöðum var opinberað I
siðasta tölublaöi timaritsins. Enn
mun ekki ljóst hvort Kristján
Eldjárn þekkistboðiðogskellisér
i Hollywood, þar sem „allir eru
stjörnur”....
# óheyrilegt auglýsingaflóð
hellist nú yfir landslýö i öllum
fjölmiðlum, ekki sist sjónvarpi, i
tilefni kaupstefnunnar miklu,
jólanna . Þar eru bókaauglýsingar
eðli máls samkvæmt einna mest
áberandi. 1 fyrra var svo miklu fé
varið til bókaauglýsinga af hálfu
útgefenda að um það var talað i
þeirra hóp að úr þessu bæri að
draga þar eð þetta væri komið út i
öfgar og væri engum til gagns.
Ekki virðist þetta hafa náð fram
að ganga og ber litið á samdrætti i
bókaauglýsingum. Talið er að
gróflega áætlað sé um milljarði
króna variö i að auglýsa jólabæk-
urnar um þessi jól....
# Dýrasta jólabókarauglýsing-
in er vafalaust sjónvarpsauglýs-
ing Ar»nar og örlyg fyrir bókina
i gegnum eld og vatn. 1 sambandi
við gerö hennar var sendur flokk-
ur manna út á land og sett á svið
leikatriði og er sagt að gerð henn-
ar hafi kostað eina og hálfa
milljón króna. Höfundur bókar-
innar fékk hins vegar 300 þúsund i
sinn hlut auk prósenta af sölu....
# út af sögunni okkar úr
Borgarnesi um að áróðurs-
bæklingum Framsóknar fyrir
kosningar hafi þar verið dreift
með jólapöntunarlista
kaupfélagsins, þá hefur komið i
ljós að vfðar voru „náin tengsl”
þessa kosningadaga. I okkur
hringdi kona af Seltjarnarnesi og
sagði okkur að þar hefði oröið að
flytja dansskólanámskeið úr
Félagsheimilinu yfir i anddyri
iþróttahússins á annan i kosning-
um. Ástæöan: Félagsheimilið var
upptekið undir kosningaskrif-
stofur D-listans...
# Þaö er svissneskur fjármála-
maöur, Richard Kutler að nafni
sem á nú að redda oliuvanda okk-
ar Isiendinga. Hann fór með
önund Ásgeirsson hjá OLIS suöur
til Nigeriu og sagði þar gnótt oliu
á góöum pris. Eitthvaö virðist þó
veröiö á oliunni vera margslung-
iö, þannig að greiða þarf alls kyns
aukagjöld til að kaupin geti náð
fram að ganga. Hafa þessi auka-
gjöldverið nefnd „aögangseyrir”
að markaönum, en aðrir hrein-
lega notað islenska orðið
„mútur”. Hvað um þaö. Kutler
þessi er ekki allsendis óvanur
þessum aðgangseyrisbransa. Hér
á upphafsárum skreiðarviðskipta
tslendinga við Nigeriumenn, þeg-
ar Biafrastriðiö var i algleym-
ingi, þá var það einmitt þessi
sami Kutler sem var aðalmilli-
göngumaður íslendinga i
skreiðarsöluferðalögum niðri i
Nigeriu. Og þá ekki frekar en i
dag, gaf Kutler þjónustu sina. Þá
sagði hann engan Nigeriumann
hreyfa sig spönn frá rassi nema
„aögangseyrinum” góða væri
veifað og hluta af þeim „smápen-
ingum” átti Kutler einmitt að fá
sjálfur. Mjög hafa verið skiptar
skoðanir um það, hvort raunveru-
iega þurfi að greiða mútur til
stjórnvalda i Nigeriu til aö koma
viöskiptum i gegn. Hafa sumir
Islendingar, — Scanhouse menn
og skreiðarseljendur — sagt það
pip að punga þurfi út tugum
milljóna til þess eins að komast
inn á markaðinn. Segja þessir
menn að allt þetta aðgangseyris-
tal komi frá óábyrgum aöilum,
sem siöan mjólki kúna — þ.e. taki
sinn skerf sjálfir af
„aðgangseyrinum”....
# Ástralski myndaflokkurinn
Andstreymi hefur veriö sýndur i
sjónvarpinu um skeið og vakið
töluverða athygli. Þar hefur kom-
ið fyrir maður að nafni Joseph
Holt, sem átti að verða leiðtogi
irsku fanganna I uppreisn þeirra,
og þetta nafn varð til þess að ann-
ar Iri hér uppi á Fróni, Brian
Holt.ræðismaður Breta á tslandi,
fór að sperra eyrun. Hann hefur
löngum verið að grufla i ættar-
sögu sinni og komst þá að þvi aö
einn af ættmönnum hans hét
þessu nafni og var uppi á svip-
uöum tima og Andstreymi gerist
á. Hins vegar gat Brian aldrei
fengið á hreint i athugunum sin-
um hvort Joseph þessi Holt heföi
veriöliflátinn heima á Irlandi eða
sendur til fanganýlendunnar.
Þegar hins vegar nafn Joseph
Holt kom fyrir i ástralska þættin-
um vöknuðu hjá Brian Holt vonir
um að þarna væri frændi hans frá
liðinni öld kominn i leitirnar og
hann fór að grafast frekar fyrir
um málið. Hins vegar vitum við
ekki hvort Brian Holt er ennþá
jafn kappsamur við leitina eftir
siðasta þátt Andstreymis, þar
sem kom i ljós og Joseph Holt
reyndist ekki mikil hetja þegar á
hólminn var komið....
# A meðan hamagangur
jólaverslunarinnar stendur yfir i
bókaheiminum liggja niðri
viðræður bókaútgefenda og
Rithöfundasambands Islands um
nýjar launakröfur. Sem fram hef-
ur komið splundraðist stjórn
félags bókaútgefenda i haust og
var lengi vel ekki unnt aö hefja
samningaviðræður af þeim sök-
um. Nú hefur hins vegar tekist að
ná saman samninganefnd fyrir
hönd Utgefenda og hafa verið
haldnir tveir fundir. Hins vegar
er klofningurinn innan félagsins
að öðru leyti enn fyrir hendi. I
viðræðum við rithöfunda ber mik-
ið á milli, en þeir munu m.a. fara
fram á 90—100% hækkun
höfundarlauna. Þráðurinn i
viðræðunum verður tekinn upp að
loknu jólastressi í febrúar....
# Kvikmyndahúsin I Reykjavik
munu standa frammi fyrir
verulegum rekstrarerfiðleikum
um þessar mundir. Þau hafa sótt
um hækkun aðgöngumiöaverðs
en það ekki fengist enn. Hefur
komið til tals innan samtaka
kvikmyndahúsaeigenda, að
bundist verði samtökum um að
fella niður sýningar kl. 5 i sparn-
aðarskyni...