Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 02.05.1980, Qupperneq 10

Helgarpósturinn - 02.05.1980, Qupperneq 10
10 ódýrasta vinnuafl sem hægt er aö fá eru ,,au-pair”-stúlkur. Laun þeirra standa aö engu leyti i sambandi viö vinnutimann, þvi þaö fer eftir geöþótta vinnuveit- andans hvaö þær eru látnar gera og hvenær þær eiga fri. Samt sækjast margar stúlkur eftir þvi aö komast i svona störf. Astæöan er fyrst og fremst sú,. aö þau gefa þeim tækifæri til aö komast út fyrir landsteinana og kynnast öörum þjóöum. „Au-pair” þýöir, aö unniö sé fyrir fæöi og húsnæöi. Samkvæmt oröanna hljóöan eru allar pen- ingagreiöslur aukalegar. Þetta minnir A vinnukonustéttina hér á landi áöur fyrr. „Au-þair” stúlkur hafa enga kjarasamninga þvi eru launakjör þeirra ákaflega mismunandi. Hins vegar er yfirleitt gert ráö fyrir, að feröir séu greiddar fyrir stúlkurnar aöra leiöina, séu þær i vistinni lengur en þrjá mánuöi, og báðar leiöir, ef dvölin veröur ár eöa meira. Þessi störf eru ekki kynbund- in, en þar sem heimilisstörf telj- ast enn aöallega vera i verka- hring kvenna, er fremur óskaö eftir stúlkum i þau. Þaö heyrir til undantekninga aö piltar starfi sem. „au-pair”. Helgarpósturinn hafði aöminnsta kosti ekki spurn- ir af neinum islenskum pilti, sem þaö heföi gert. Hins vegar mun þaö þekkjast erlendis Flestar „au-pair” stúlkur eru á aldrinum 16-20 ára og aöalverk- efni þeirra eru fólgin I barna- gæslu. Eins og sjá má af þeim viötölum sem viö áttum viö þrjár fyrrverandi „au-pair” stúlkur er þetta þó meö ýmsu móti. Sumum er ætlaö aö sinna velflestum heimilisstörfum, aörar eru ein- göngu barnfóstrur. Hvort stúlkunum likar vinnan vel eöa illa fer ekki eftir magni hennar. Hitt virðist skipta meira máli hvort litið er á þær sem hluta fjölskyldunnar eöa vinnukonur. Þaö eins og annaö fer eftir vinnuveitendunum. Stúlkurnar geta ekkert snúiö sér til aö leita réttar sins. Aö vlsu haföi ein þeirra, sem viö töluöum viö, heyrt um einhver samtök i Lond- on og Paris, en nánari upplýsing- ar um þau hafði hún ekki. Þab er þvi mikils um vert fyrir stúlkur, sem hyggjast leggja þetta starf fyrir sig um tima, aö kynna sér vel hvernig væntanlegir vinnuveitendur þeirra eru Fostudagur 2. maí 1980 he/garpústurinn. „Meiri háttar ævintýri,T segir Ása Hreggviðsdóttir, sem vann í 1/2 ár i Frakklandi ,?Mér leiddist hræðilega” segir Fríða Birna Stefánsdóttir um reynslu sína af dvöl hjá Svíum „Þetta var meiri háttar ævintýri”, sagöi Asa Hreggviðs- dóttir, menntaskólanemi. Hún vann hálft árið 1979 hjá breskri fjölskyldu i iitlu þorpi rétt utan viö Paris. „Þaö var aö visu óþægilegt að þurfa aö búa á annarra manna heimili”, sagbi hún. „En ög var heppin. £g lenti hjá góöu fólki og likaði þvi mjög vel. Margar aörar stúlkur, sem ég hef hitt og hafa veriö I svona störfum, voru ekki eins heppnar”. Asa haföi áöur unniö sem „au- pair” stúlka I Bretlandi um þriggja mánaöa skeið. Hún fékk bæöi þessi störf I gegnum kunn- ingsskap og vissi þvi aö hverju hún gekk. Þegar hún fór til Frakklands, haföi hún ákveöið aö taka sér eins árs hvild frá menntaskóla og henni fannst skárra ab taka þessu starfi þegar þaö baubst, fremur en aö fara i fiskvinnu. Leit eftir frúnni. „Ég var frekar ráöin til aö lita eftir konunni en börnunum”, sagöi Asa. „Hún haföi fengiö taugaáfall og gat ekki veriö ein, en maöurinn hennar vann mjög mikiö. Ég fylgdi henni i búöir og .varhenni yfirleitt til félags- skapar þar til maöurinn kom heim úr vinnunni. Ég þurfti aðeins aö gæta barnanna, þegar hjónin föru i fri til Bretlands. A kvöldin var fengin barnfóstra, ef hjónin fóru út”. — Varstu látin vinna heimilis- störfin? „Nei, ég þurfti ekkert aö þrifa né neitt þess háttar. Heimilis- fólkiö sá um þaö sjálft. Þaö eina sem ég þurfti aö gera var aö vera til staðar frá klukkan 8 á morgn- ana til 7 á kvöldin. Þaö var að vísu bindandi til lengdar, en á kvöldinogumhelgaráttiég alltaf fri. Þá mátti ég gera þaö sem ég vildi. Égátti vinkonur, sem bjuggu I Paris, og ég fór alltaf til þeirra um helgar. Paris er ákaflega fall- eg borg. Þar er lika alltaf eitt- hvaö aö gerast, sýningar eru margar og kaffihúsamenningin skemmtileg. Ég hlakkaði alla vikuna tii að komast þangaö”. — Hvernig voru launin? „Ég fékk 6-700 franka á mánuði. Þaö nægöi mér alveg I vasapeninga, en ég tók gjaldeyri meö út til vonar og vara. Svo borguðu hjónin aöra leiöina fyrir mig milli Islands og Frakk- lands”. Vikkar sjóndeildar- hringinn — Hvaö finnst þér þú helst hafa haft upp úr þessari dvöl ytra? „Hún vikkabi skilyröislaust sjóndeildarhringinn. Þaö er lifs- reynsla út af fyrir sig aö búa i störborg, eins og ég gerði um helgar. Frakkar eru skemmtileg þjóö og mjög ólikir okkur. Þeir fylgja alls konar reglum og ef maöur gleymir þeim, eða kann þær ekki, þá er manni nánast fleygt út af veitingastöðum. Svo læröi ég auövitaö enskuna, en minna I frönsku en ég ætlaði mér. Éghaföi ekki tækifæri til aö fara á frönskunámskeiö svo þaö sem ég læröi var aöallega aö bjarga mér i Parls. En það kemur mér aö gagni núna i skólanum”. — Myndir þú gera þetta aftur? „Þetta var mjög gaman, en ég er alveg búin aö fá nóg. 1 næstu utanferö býst ég viö aö fara I skóla eöa i vinnu, sem er betur borguð. Ég vissi aö hverju ég gekk og varö þess vegna ekki fyrir vonbrigöum, en ég myndi ekki ráöleggja stelpum að fara á staö, sem þær þekkja ekkert til”. „Ég heföi rétt eins vel getað veriö maskina á heimilinu,” sagöi Friöur Birna Stefánsdóttir, skrifstofustúlka. Hún var au-pair stúlka f Sviþjóö fyrir rúmum tveim árum. Ætlunin var, aö hún yröi þar I eitt ár, en eftir þrjá mánuöi gafst hún upp. A heimilinu voru tvö börn, fjög- urra ára og 7 mánaöa gömul. Friður Bima átti aö gæta yngra bamsins og hugmynd hjónanna var, aö fá jafnaldra leikfélaga handa þvi á daginn, þannig aö börnin yröu tvö. Þau auglýstu eft- ir slfku barni og tóku fram I aug- lýsingunni að fslensk stúlka myndi hugsa um þaö. Auglýsing- in bar þó ekki árangur. Skrifuðust á i 1/2 ár Friöur Birna fékk vinnuna i gegnum auglýsingu I Morgun- blaöinu. Hún skrifaðist á viö hjón- in I 1/2 ár áöur en hún fór til þeirra og leist i alla staði vel á þau. „Mér fannst þau sýna mér mik- inn áhuga i þessum bréfum og bjóst viö aö þaðhéldi áfram. Þeg- ar ég svo var komin til þeirra, var annaö uppi á teningnum. Reyndin varö sú, aö enginn talaöi viö mig nema nauösynlegt væri og þvi leiddist mér hræöilega mikiö. I bréfunum haföi konan minnst á Islenskar stúlkur, sem væru I ná- grenninu og hún ætlaöi aö kynna mig fyrir. Af þvi varö þó aldrei. Ég kynntist aöeins tveim konum þennan tfma. Onnur þeirra var gömul kona, sem ég hitti á frönskunámskeiði. Hin bjó hinum megin viö götuna. Aö öðru leyti var ég alltaf ein. Fór ein I bió eöa horföi á sjónvarpiö.” — Hvaöa verkefni haföir þú auk þess að gæta litla barnsins? „Engin. Mérfannst ég hafa allt of lftið að gera. Þaö þarf ekki stööugt aö vera aö sinna 7-10 mánaöa gömlu barni. Af einskær- um leiðindum þyngdist ég um 14 kiló þennan tlma.” Uppeldi úr bókum „Konunni hefur sjálfsagt held- ur ekki likaö viö mig. Ég hafði allt aörar hugmyndir um barnaupp- eldi en hún. Þegar ég kom, fékk hún mér bók, sem hún baö mig aö lesa. Þar átti ég aö sjá hver stefna hennar væri I uppeldinu. Þaö var- allt miöaö viö bækur. Börnunum var ekki bannað neitt. Eldra barnið mátti til dæmis fikta I tökkunum á sjónvarpinu aö vild, þótt veriö væri aö horfa á þaö. Þannig átti hann aö læra á takk- ana. Hann hafði stærsta herberg- iö I húsinu og þaö var hlaöiö leik- föngum af öllum geröum. Ég frétti þaö hjá konunni á móti, aö húsmóöirin væri aö skrifa bók um samskipti foreldra og bama. Sjálf sagöi hún mér aldrei hvaö hún var aö gera. Ég varö heldur aldrei vör viö aö hún heföi nein samskipti viö annaö fólk.” — Hvaö fékkstu I kaup þarna? „Ég fékk fariö út greitt og 800 sænskar krónur á mánuöi. Það dugöi mér vel I vasapeninga.” — Hvernig var vinnutlminn? „Ég haföi hann nú aldrei á hreinu.Enyfirleittbyrjaöi ég upp úr kl. 8 á morgnana og hætti kl. 5. A kvöldin og um helgar átti ég alltaf fri.” — Þú hefur sem sagt ekki góöa reynslu af þessum störfum? „Nei, engan veginn. Þó hugsa ég aö maöur hafi gott af aö kynn- ast einhverju, sem er svona öðru visi en maöur á aö venjast. En þaö er h'ka eina gagniö, sem ég haföi af þvi aö vera þarna. Sænskuna kunni ég fyrir, þvi ég hafði áöur dvalist hjá öðru fólki I Svfþjóö um tima. Þar var ég ekki i vinnu, heldur sem gestur, og lik- aöi mjög vel. Ég fór þangaö einu sinni I heimsókn þessa þrjá mán- uöi og þaö var eins og aö koma heim.”

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.