Helgarpósturinn - 29.08.1980, Side 45
ÍSLENSKUR IÐNAÐUR Föstudagur 29. ágúst 1980
17
Islenzkur fatnaður
gengur betur í
landann en áður
Á síðastliðnu ári flutti
Álafoss hf. út islenskar
ullarvörur fyrir rúmlega
5,2 milljarða. Er það um
38% af öllum ullarvöruút-
flutningi okkar það ár.
Álafoss hf. er brautryðj-
andi i útflutningi og
islenskum ullarvörum, en
hann hófst fyrir alvöru
fyrir um það bil 10 árum
síðan.
Að sögn Péturs Eiriks-
sonar, forstjóra Álafoss
hf. er stefnt að 6—7
milljarða króna útflutn-
ingi á þessu ári. Stærsti
markaður Álafoss hefur
verið Þýzkaland, en einn-
ig er mikið flutt út til
Bandaríkjanna, Kanada
og Vestur- og Norður-
Evrópu. Álafoss er
stærsti aðili hérlendis á
Vesturlandamarkaði,
með um það bil 40% af
öllum útflutningi.
Alafoss er næstelsta iönfyrir-
tæki á landinu, stofnaö áriö 1890
af Jóni Þorlákssyni. Þar starfa
nú hátt í 300 manns, viö fram-
leiöslu á væröarvoöum, gólf-
teppum og fatnaöi ýmiss konar,
sem væntanlega þarf ekki aö
kynna Islendingum. Svo lengi
hefur Álafossfatnaöur veriö
þekktur.
Viö inntum Pétur Eiríksson
forstjóra, hvort Alafossfatnaöur
væri vinsæll af landanum, en
eins og fyrr segir er mikiö af
framleiöslu Alafoss hannaö til
útflutningsmarkaöar.
„Þaö hefur breyst svolitiö á
siðustu 2—3 árum. Þá fór fólk aö
ganga meira i fatnaöi okkar.
Aöur fyrr er eins og þetta hafi
ekki átt upp á pallborðiö hjá
landanum. Það leit þannig út
lengi að Islendingar gengju ekki
i fatnaöi nema hann væri inn-
fluttur, en eins og ég sagöi er
þetta mikið aö breytast” sagöi
Pétur.
Hefur Alafoss tök á aö fylgjast
meö tískunni aö einhverju
marki?
„Viö reynum að aölaga fatnaö
okkar tiskunni eins og hún er
hverju sinni. En viö hlaupum
auövitaö ekki eftir hverri nýrri
tiskubylgju sem kemur fram.
En þetta er lika betra nú en var
áöur, nú eru ekki eins miklar
tiskusveiflur og voru fyrir
nokkrum árum, öfgarnar eru
ekki eins miklar. Við höfum lagt
aðaláherslu á einskonar sport-
fatnaö, sportleg sniö, og viö
breytum yfirleitt um sniö ár-
lega, þó alltaf sé eitthvaö innan-
um sem er óbreytt ár eftir ár,
svo sem Álafossúlpurnar svo-
kölluöu, sem hafa gengiö
óbreyttar i mörg ár. Viö fórum
út i aö framleiöa vorfatnað i
fyrra, léttari fatnaö en viö höf-
um verið með, og þaö hefur gef-
ist mjög vel.
Hvernig hefur gengiö aö koma
útflutningnum af staö, nú er
komin 10 ára reynsla á hann?
„Aöalvandamál okkar i út-
flutningi er efnahagsvandi þjóö-
arinnar almennt. Viö veröum aö
ákveöa verö eitt ár fram i tim-
ann, og þaö getur oft veriö
erfitt. Annars er óhætt aö segja
aö þaö hefur gengið furöanlega
aö koma útflutningnum af staö.
Þaö var mikiö af barnasjúk-
dómum i byrjun og mörg ljón á
veginum, en það viröist aö
mestu liöin tiö. Gæöi og hönnun
hafa batnaö mjög á þessum 10
árum, sem liöin eru frá þvi út-
flutningur hófst. Þegar litiö er
yfir þennan tima, sést að
ástandiö hefur fariö mjög skán-
andi stórt á litiö. Núna eigum
viö helst i vandræöum meö aö
hafa undan. En þaö er óhætt aö
fullyröa aö viö erum engan veg-
inn undir iönvæöingu búin,
hvorki hugarfarslega né ööru-
visi” sagöi Pétur Eiriksson,
forstjóri Alafoss hf. —AB
Hér er veriö aö sauma værðarvoöir og trefla til útflutnings hjá Ala-
foss.
AKUREYRINGAR -
FERÐAFÓLK
Filmur iflestar geröir myndavéla. Framköllun
ar þjónusta á öllum filmum svart-hvitum og lit
Pedromyndir
Hafnarstræti 98
I Simi 2 35 20
GPediomyndir‘
SÆLGÆTI - KÁ
LANDSÞEKKT
GÆÐAVARA
Sælgætisgerð Kristins Árnasonar
Lindargötu 12 — Sími 85675
Álafoss vœrðarvoðir
hlýjar og notalegar
Álafoss uærðaruoðimar
eru í senn hlýjar og
notalegar. Tilualin
gjöf uið flest tæki- |
færi gjöf sem
geymist. . . og
gleymist seint.
Nú eigum uiðlíka til ué\~
prjónaðar og ýfðar
uærðaruoðir litlar
og snotrar,
sérstaklega
skemmtilegar
böm og
unglinga.