Helgarpósturinn - 07.11.1980, Page 13
13
Uielgarpósturinn
Borpallur
dauðans
Enginn nema starfsmenn meö
sérstaka passa, fengu aö fara um
borö i bátana, sem sigldu á milli
bækistöövarinnar i landi og palls-
ins og blaöamenn máttu ekki
koma nær en 200 metra á sjó og
bannaö var aö fljúga nær en i 500
metra hæö yfir vinnusvæöinu.
Þetta var bæöi gert til aö menn
heföu vinnufriö og einnig er hluti
þeirrar tækni, sem notuö var
hreinasta hernaöarleyndarmál
og vildu menn ekki eiga á hættu,
aö keppinautar í greininni kæm-
ust aö leyndardómnum.
Þetta var þvi mikill heiöur fyrir
mig aö fá leyfi til aö vera undan-
tekningin frá reglunni. Ég kunni
nú ekki við aö segja, aö ég væri
búsettur i Kaupmannahöfn i mar-
flötu landi, þá hefðu menn
kannski ekki tekiö erindi minu
eins og æskilegt væri, en sem bet-
ur fer efaðist enginn um, aö ég
kæmi langan veg meö i'slenska
náttúru skrifaða stórum stöfum i
hvern andlitsdtátt.
Getum aldrei sigrað
nátturuna
— Mönnum hættir svo til aö tala
um tölvur sem einhver alvitur
undraverkfæri. Tölvur og þróuö
tækni eru ekki alvitur guödómur
og þá er stórhætta að tíleikna sér
tæknieins og hún væri trúarbrögö
— Þetta er þvi miöur raunin i allt
of mörgum tilvikum og þess
vegna finnst okkur að við séum
svikin af einhverjum æöri mátt-
arvöldum, þegar verkfræöin
bregst og allt fer i rúst, eins og
áttí sér staö i mars, meö
Alexander Kielland. Scot
Kobus fylgist af áhuga meö kaf-
ara, sem var aö undirbúa sig und-
ir aö kafa niöur aö hótelpallinum.
A milli fyrirskipana og leiöbein-
inga, gaf hann sér tima til að
ræöa viö mig.
— Þetta er harmleikur, sem
hefur jafnvel sterkari tilfinninga-
leg áhrif á okkur, vegna tækn-
innar sem brást, en við veröum
að sætta okkur viö, aö tæknin er
hjálpartæki, þvi til sjós mun
alltaf verða hætta á slysum og
áhættuaugnablikin eru alltaf til
staðar.
— Sjáöu nú bara hér i firöinum,
bara i gærkvöldi uröum við að
stoppa 1 nokkra klukkutima
vegna veöurs. Þessi bátur sem
við erum i, gat ekki athafnaö sig i
sjóganginum og viö áttum á
hættu, aö loftleiöslurnar til kafar-
anna slitnuðu. Hér inn fjöröinn,
stendur vindurinn að suö suö-
austan og þaö er erfiöasta vind-
áttín aö vinna i. Hann bendir út á
fjöröinn með handasveiflu — viö
veröum að venjast náttúrunni og
viö getum vanist henni, þaö er ég
viss um aö þiö hafið gert fyrir
löngu, á íslandi, en við getum
aldrei sigraö hana. Ef náttúran
og maöurinn berjast, er maður-
inn sá sem tapar — það er þess
vegna áriðandi, aö sleppa lifandi
frá þeim bardaga.
Lögreglusveitir fara
fyrst um borð.
Þegar Alexander Kielland er
kominn á réttan kjöl, munu
sveitir Ur úrvalsdeildum norsku
lögreglunnar fara inn i alla hluta
ibúöadeildar pallsins, til aö leita
likamsleifa hinna 36 starfs-
manna, sem álitiö er, aö séu enn i
pallinum.
Tæknimenn fá ekki aö fara um
borö, fyrr en aögeröum lögregl-
unnar er lokiö, en allir sem fá aö
fara um borö, veröa undir
ströngu eftirliti lögreglunnar. 1
Alexander Kielland eru óskap-
lega dýrmæt tæki, sem veröur
reynt aö vemda gegn tæringu og
skemmdum um leiö og tækni-
mennirnir fá að fara um borö og
er þá hlutverki Texas-kúrekans
lokiö.
— Ég fer aftur heim til hest-
anna minna. Ég þarf að kæla mig
hægt niður, eftir þessa törn og þaö
muntaka margar vikur, þvi ég er
gjörsamlega úttaugaður og
þurrkaður upp tilfinningalega.
Föstudagur 7. nóvember 1980
Jfynningverður á nýjustu framleiðsluvörum mjólkursamlaganna og boðnar bragðprufur.
MarkaðurÞar verður seld m.a. skyrterta auk ýmissa osta. Einnig verða til sölu
kynningarpakkar með mismunandi mjólkurvörum.
Sýnikennslater fram alla dagana þar sem leiðbeint verður um tilbúning ýmissa mjólkurrétta.
Mjólkuidagsnefnd
8.14
Hlutaveltaverður i gangi allan tímann og verða vinningar
ýmsar mjólkurafurðir.
Okeypis aðgangm*opið fostudag frá ki. 14 tu 20
laugardag frá kl. 10 til 20
sunnudag frá kl. 14 til 20
Verðtrygging spariskírteina ríkissjóðs byggist nú á raunhæfustu
vísitöluviðmiðun sem völ er á — lánskjaravísitölunni.
Lánskjaravísitalan miðast að 1/3 við byggingarvísitölu og 2/3
við framfærsluvísitölu, og eru hún reiknuð út og birt
mánaðarlega.
Þannig geta eigendur spariskrteina nú fylgst með verðgildi
þeirra og vexti frá einum mánuði til annars.
Lánskjaravísitalan verðtryggir spariskírteinin að fullu.
Vandfundin er öruggari fjárfesting.
Verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eru til sölu nú.
SEÐLABANKI
ÍSLANDS