Helgarpósturinn - 30.01.1981, Blaðsíða 11
__helgarpósturinn_ Föstudag
ur 30. janúar 1981
11
" Ja, öllu er nú hægt aö stela. Llm
siðustu viku var stolið 300kg. i'ils-
unga úr dýragarðinum i Kaup-
mannahöí'n. Já, þetta var rétt les-
ið. Það var stolið 300 kg. fil og
ekki nóg með það, siðast þegar
fréttist hafði hann enn ekki fund-
ist. „Það er hreinlega eins og
hann hafi sokkið ofani jörðina,”
segir danska pólitiið og fórnar
höndum i ráðleysi. Filnum var
stolið að næturþeli úr búri sinu i
dýragarðinum og mjög fagmann-
lega var að þjóðfnaðinum staðið.
Filsins hefur verið leitað viða,
m.a. i Sviþjóð og Vestur-Þýska-
landi, en án árangurs. Svo ef ein-
hver verður var við 300 kg. ind-
verskan filsunga á vappi einhvers
staðar, þá er sá hinn sami beðinn
að koma filnum i hús og láta
dönsku lögregluna vita...
“Og svo voru það stöllurnar
þrjár i Michigan i Bandarikjun-
um, sem afklæddust hverri spjöt,
smurðu sig með sinnepi og stálu
siðan sendiferðabil. Þetta voru
prýðisstúlkur og stóðu nálægt
þritugu, svo ekki tókst þeim að
sannfæra lögregluna um að þetta
uppátæki hefði verið barnaskapur
einn. En þær höfðu aðrar skýr-
ingar á reiðum höndum.
Stúlkurnar (eða konurnar) =
Charlene, Dohsaline (Dósalin á
islensku) og Sandra höfðu nefni-
lega setið við og lesið bibliuna
saman. Og þær vildu endilega
komast i. Edengarðinn eins og
Eva forðum og þangað kemst
náttúrulega enginn nema i Evu-
klæðum. Þá höfðu þær séð
bibliuna minnast einhvers staðar
á sinnep og mökuðu sig þess
vegna i þeirri sósu. Hins vegar
minntist biblian að visu hvergi á
nauðsyn þess að stela sendiferða-
bil, en stöllurnar skýrðu stuldinn
á þann hátt, að þær hefðu verið á
hraðferð og vildu komast i
aldingarðinn Eden fyrr en seinna
og þvi tekið bilinn traustataki....
™ Við íslendingar borðum tals-
vert af eggjum, i langflestum
tilfellum hænuegg. Þannig er það
i flestum löndum öðrum.
Sumsstaðar eru samt strútsegg á
borðum. í mörg ár hefur eggja-
taka á varpsvæðum strútanna
verið stunduð, og það jafnvel þó
eggin þyki ekki góð. Náttúru-
gripasöfn um allan heim, vilja
gjrnan hafa eitt slikt til sýnis. En
nú eru þessir fuglar friðaðir eins
og svo mörg dýr merkurinnar.
Eitt strútsegg dugar i matinn
fyrir stóra fjölskyldu. Það vegur
um það bil 1.9 kiló, og er um 18
centimetra langt á lengri veginn.
Til að gegnsjóða eggið verður að
hafa það i pottinum i um 40
minútur. Verði ykkur að þvi!
8-18-66 (kugí s‘ogaHelgarpós tsins
Lítíl sjónvarps eftírlitskerfi
á sérstöku kynmngarverdi
Fyrir litlar verstamr; fyrirtœki ofL
Kerfi 1. Kr. 5.700. Innifalið í veröi:
1. Sjónvarps-myndavél með linsu.
Video Monitor iskjár), festing fyrir myndavél
og 20 m. af kapli með tilheyrandi stungum.
Kerfi II. Kr. 9.300 . Innifálið í verði:
Tvær sjónvarps-myndavélar með linsum.
1. Video Monitor (skjár) 1. Videoskiptari
(milli vé/a) 2 festingar og 2x20 metrar
af kapli með stungum tilbúin til notkunar
C
<R§díóstofan b£.
Þórsgötu14- Sími 14131/11314