Helgarpósturinn - 30.01.1981, Page 18
18
í tilefni bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs:
SKÁLD LÍFS OG FEGURÐAR
Þaö eru sannarlga gleðitiöindi
aö Snorri Hjartarson skuli hafa
fengið bókmenntaverölaun
Noröurlandaráðs 1981. Manni
hiynar um hjartarætur þegar
listamenn sem stundaö hafa
kröfuharöa og agaða list i kyrr-
1 Kvæöum kemur Snorri fram
sem fullþroska skáld. Þó hann
veröi ekki talinn til form-
byltingarmanna i þeirri bók né
hinni næstu, þá losar hann engu
aö siöur um viðjar hefðbundins
ljóðforms. Þrátt fyrir að hann
o viki sjaldast langt frá hefðmni eru frávik hans þess eðlis að þau
Bókmenntir
eftir Gunnlaug Astgeirsson
þey, fjarri auglýsingaskrumi
heimsins, fá viðurkenningu
fyrir framlag sitt til heims-
menningarinnar.
Snorri Hjartarson er fæddur
1906 á Hvanneyri i Borgarfirði
og ólst upp i Borgarfiröunum.
Hann hóf menntaskólanám en
hvarf frá þvi og stundaöi siðar
myndlistarnám i Kaupmanna-
höfn og Osló. Hann bjó i Noregi
til 1936 og samdi eina skáldsögu
á norsku, Höit flyver ravnen.
Hann var bókavörður við
Bæjarbókasafnið i Reykjavik
frá 1939 og yfirbóka-
vörður þar til 1966. Auk ljóða-
bóka sinna hefur Snorri séð um
útgáfur margra sýnisbóka og
úrvala islenskrar ljóðalistar.
Eftir Snorra Hjartarson hafa
komið út fjórar ljóðabækur:
Kvæði 1944, A Gnitaheiði 1952,
Lauf og stjörnur 1966 og Haust-
rökkrið yfir mér 1979.
Svo virðist sem útkoma fyrstu
bókar Snorra hafi ekki vakið
sérlega mikla athygli. Það er
ekki fyrr en sfðar að mönnum
verður ljóst að þar var á ferð-
inni bók sem markaði umtals-
verð spor á breytingaskeiði
islenskrar ljóðlistar. Vert er að
rifja upp að þegar Kvæöi koma
út eru i- gerjun miklar breyt-
ingar á ljóðagerð i landinu þó
þær breytingar komi ekki að
marki upp á yfirborðið fyrr en i
kringum 1950.
ryðja braut fyrir frekari breyt
ingarog sýna jafnframt að unnt
er að yrkja nýstárleg og fersk
ljóð án þess að kasta með öllu
fyrir róða arfgengnu góssi
braglistarinna. Ljóð Snorra i
Kvæðum eru yfirleitt með hefð-
bundinni stuðlasetningu, en oft
eru kvæðin sett þannig upp að
hún dylst við fyrstu sýn. Hann
notar einnig rim. en iöulega er
um að ræða hálfrim og innrim
sem skapa ijóðunum sérkenni-
legt hljómfall og nýstárlegan
blæ. Eftirtektarverðasta forms
einkennið. er þó ef til vill sú
magnaða togstreita sem viða er
að finna milli hefðbundinna
bragarhátta og hrynjandi
annarsvegar og eðlilegrar og
blátt áfram setningaskipunar
hinsvegar, sem kemur fram i
þvi að skipti milli bragiina og
erinda eru oft i miðri setningu.
Þá vega salt frelsi málsins og
magna ljóðin upp i uggvænlegan
linudans.
1 Kvæðum kemur strax fram
sterkasta einkenni skáldskapar
Snorra, en það er notkun hans á
náttúrunni sem uppistöðu og
aðalefni i myndvef kvæðanna,
makalaus myndvisi og næm
náttúruskynjun. 1 öllum hans
kvæðum er einhverskonar
náttúrumynd miölæg i byggingu
þeirra, hvert svo sem yrkisefnið
annars kann að vera. Og vel að
merkja, f ljóðum Snorra er
Guðsgaman á glapstigum
Laugarásbió: Munkur á glap-
stigum. Bandarisk:. Argerð:
1979. Handrit: Marty Feldman af þeim viðtökum sem myndin
og Chris Allen. Leikstjórn: hlaut.
Marty Feldman. Helstu leik- Ég fæ ekki séð að Feldman
endur: Martv Feldman, Peter þurfi neitt að skammast sin
Boyle, Louise Lasser, Andy fyrir Munk sinn á glapstigum.
Kaufman og Richard Pryor. < Fleiri en hann hafa lent i þvi að
búa til misheppnaðar gaman-
myndir, sem hafa jafnframt
verið miklu ómerkilegri. 1 þess-
K vikmyndir
eftir Guðlaug Bergmundsson *og
Björn Vigni Sigurpálsson
Grinistinn Marty Feldman
hafði getið sér ágætt orö heima i
Bretlandi áður en hann gekk á
mála hjá stórkarlahúmoristan-
um Mel Brooks vestur i
Ameriku, og eins og fleiri sam-
verkamenn Brooks hefur Feld-
man siðan tekið það i sig aö feta
i fótspor meistara sins. 1
Laugarásbiói þessa dagana má
sjá siðustu afurð þessa einka-
framtaks Feldmans, sem sér-
fræðingur minn i kjaftasögum
úr kvikmyndaheiminum segir
mér aö hafi gengið svo nærri
skapara sinum, að hann hafi
verið að þvi kominn að ganga út
og hengja sig — i örvæntingu út
ari mynd verður að reikna Feld-
man það til tekna að honum er
töluvert niðri fyrir. Hann er
með tilburði og fullan metnað i
þá átt að gera ádeilumynd um
peningaplokkið og hræsnina i
kringum sértrúarsöfnuðina sem
vaða uppi i Bandarikjunum og
boða aflausn synda og himna-
riki gegn góðu gjaldi.
Gegn þessari hræsni og múg-
mennsku teflir Feldmann fram
sjálfum sér i gervi einfalds og
saklauss munks úr strang-
trúaðri reglu, sem geröur er út
af örkinni til aö losa klaustrið úr
fjárhagsvandræðum. Leið hans
liggur til Los Angeles sem
hrein myndræn tjáning mun
rikari þáttur en i ljóðum eldr
skálda og visar hann veginn til
þess sem siðar verður megin-
einkenni formbyltingarinnar i
islenskri ljóðagerð.
1 Kvæðum er megináherslan
lögð á náttúrufegurðina og
mörg ljóðin nálgast að vera
hrein náttúrulýrik þar sem i lit-
auðugum og upphöfnum
myndum eru laðaðir fram ævin-
týraheimar landsfegurðar-
innar. Fjöll, heiðar, vötn, lækir,
lindir, lyng, kjarr, skógar, tré,
lauf, blóm, fuglar og fé, allt
verður þetta glitrandi i orðum
skáldsins. En oftar er mannlifið
einhverstaðar nærri og þá
verður náttúran tjáningaform
tilfinninga og hugmynda.
Þrá, draumar, minning og
endurlausn eru lykilorð að hug-
myndaheimi kvæða. Þrá eftir
upprunanleika og fegurð,
draumur um framtið þarsem
grár og nöturlegur hversdags-
leikinn hefur vikið fyrir nýjum
og bjartari heimi.
Kvæði er fremur bjartsýn
bók. Til fegurðar landsins er
sóttur kraftur sem veitir von um
betri heim. í lok bókarinnar
gætir uggs um að framtiðin
verði ekki eins og þrá skáldsins
dreymir um.
1 A Gnitaheiði er þessi ótti
orðinn áberandi og þó að
fegurðarþráin og draumurinn
séu enn til staðar eru veður öll
válynd. Það gætir óþols og
skáldið er viða stórort i garð
samtiðarinnar.
Formseinkenni kvæðanna eru
svipuð og i Kvæðum og mynd-
efni og myndmál er einnig
samskonar. Náttúran og fegurð
hennar er kjarni flestra ljóð-
anna. En nú er meira um að
náttúran sé umgjörð dapurlegra
hugsana og komin er fram skýr
andstaða náttúrufegurðarinnar
Munkurinn og mellan — Feld-
man og Lasser.
kemur einföldum munki fyrir
sjónir eins og Sódóma og Góm-
arra, og raunverulegar mann-
eskjur og kærleika hittir hann
ekki fyrir hjá umboðsmönnum
guðsrikis heldur i mellunni og
loddaranum, sem feröast um i
gervi farandprests.
Feldman tóttir stöku sinnum
ágætlega i mark og mörg smá-
atriði eru skemmtilega útfærð
en þegar á heildina er litið er
myndin alltof brotakennd til að
ganga upp og þvi miður — það
sem mestu máli skiptir — ekki
nógu fyndin. BVS
Tengdapabbarnir bregða sér á /eik
Austurbæjarbió:
Tengdapabbarnir (The
In-laws). Bandarisk, árgerð
1980. Handrit: Andrew Berg-
man. Leikendur: Peter Falk,
Alan Arkin, Richard Libertini,
Nancy Dussault, PennyPeyser,
Ed Begiey Jr. Leikstjóri:
Arthur Hiller.
Arthur Hiller gerði fyrir
nokkrum árum myndina The
Silver Streak, þar sem einn af
betri skopleikurum Ameriku
flæktist i alls kyns vandræði.
Gene Wilder var það vist. Hér
hefur H iller fengið til liðs við sig
einn brjálaðasta leikara Holly-
wood, Alan Arkin, eða var það
kannski öfugt?, og flækist hann
óvart inn i „alþjöðlegt ” sam-
særi
Myndin hefst á þvi, að pen-
ingaflutningabill i frá banda-
riska seðlabankanum er rændur
á mjög snjallan hátt, og er þar
að verki sjálfur Colombo. Ekki
er peningunum rænt, heldur
prentmótum af seðlum guðs al-
máttugs.
Alan greyið Arkin leikur
viröulegan tannlækni, kannski
örlitið klikk, sem flækist inn i
þjófnaðinn vegna þess, að dóttir
hans á að giftast syni Colombo.
Upphefjast nú hin skemmti-
legustu ævintýri, þar sem
áhorfandanum er alltaf sagður
sannleikurinn, en þannig fram
reiddur, að enginn trúir þvi.
Berst leikurinn um New York
borg, en siðan til eyrikis i Kara-
biska hafinu, þar sem rikir
klikkaður einræðisherra.
Það er skemmst frá þvi aö
segja, að á köflum er þessi
mynd sprenghlægileg, einkum
þegar fer að siga á seinni hlut-
ann, þegar Alan Arkin kemst i
sitt gamla góða stuð. Getur
hann stundum orðið frábær.
Colombo er ágætur, en kannski
of mikill Colombo. Það tekur þvi
ekki að ræða um aðra leikara,
þvi þeir eru nánast i algjörum
aukahlutverkum. Þeir félagar
halda myndinni uppi og gera
hana að þvi, sem hún er:
Gamanmynd, þar sem manni
leiðist aldrei, en slikar myndir
eru allt of fátiðar. gb
„Manni hlýnar um hjartarætur
þegar listamenn sem stundað
hafa kröfuharða og agaða list f
kvrrþey, fjarri auglýsinga-
skrumi heimsins, fá viðurkenn-
ingu fyrir framlag sitt til heims-
menningarinnar,,’ segir Gunn-
laugur Astgeirsson I umsögn
sinni um Snorra Hjartarson. —
Db. mynd.
og þeirrar villigötu sem mann-
kynið treður. Veruleikinn sem
skáldiðleitar frá til náttúrunnar
er ekki aðeins grár og nötur-
legur heldur einnig grimmur.
En þrátt fyrir allt er fegurð
náttúrunnar enn til staðar og
þangað er sótt vonin um aö úr
rætist.
Frá þvi að Á Gnitaheiði
kemur út liða 14 ár þangað til
Laufogstjörnursjá dagsins ljós.
í þeirri bók hafa orðið tölu-
verðar breytingar á skáldskap
Snorra. Ljóðin eru yfirleitt
styttri, samanþjappaðri og
fáorðari en i fyrri bókunum.
Mælska og málskrúð eldri ljóð-
anna er að mestu horfið og i
staðinn komin fáorð og næstum
hrein myndræn tjáning. Enn-
fremur gengur Snorri lengra en
áður i þvi að ljá ljóðunum frjálst
ytra form, form sem tekur ein-
ungis mið af þörfum ljóðsins
sjálfs óháð hefðbundnum
bragareglum.
1 Laufum og stjörnum kemur
ennþá skýrar fram en áður
hvflikur meistari Snorri er i
ljóðrænni myndsmið. Þvi
færri orð sem notuð eru i ljóð-
myndum þeim mun meira
verður vægi hvers þeirra um sig
og þá riður á miklu að vandlega
sé valið. Hér nýtur sin vel
nostursemi og vandvirkni
skáldsins, hann kann vel þá list
að segja fæst þegar honum
liggur mest á hjarta, þar sem
aðrir hefðu drekkt merkingu
hugsunar sirrnar i orðaflaumi.
Enn sem fyrr er það náttúran
sem er kjarni ljóðmyndanna,
fegurð hennar og margbreyti-
leiki. Óþolið er horfið og gætir i
þessari bók vonbrigða og jafn-
vel sárinda yfir að mennimir
séu enn á sömu villigötum og
fyrr, verri villigötum, þvi nú
bendir fátt til þess að bjart sé
framundan.
Hauströkkrið yfir mér, sem
Snorri Hjartarson hefur nú
fengið bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir, er beint
framhald af Laufum og
stjörnum. Hérgengur hann viða
lengra ieinföldunljóðanna og er
ennþá fáorðari, en smekkvisi
hans i myndsköpun er söm við
sig. Yfir bókinni er friður,
dapurlegur friður, en friður
samt. Skáldið virðist vera sátt
við lifið þó margt mætti hafa
farið öðruvisi en raun varð á.
Hann sækir aftur til upprunan-
leikans i fegurð náttúrunnar en
hefur látið af þrá og draumum.
Dýrð landsins stendur sem tákn
þess sem gott er i heiminum og
mennirnir eiga kost á að leita til
þess af þeim villigötum sem
þeir ráfa.
Eg hef i þessum fátæklegu
orðum reynt að draga fram það
sem mér finnst einkenna skáld-
skap Snorra Hjartarsonar. En
slik fátækleg orð megna ekki
annað, ef vel tekst, en að gefa
óljósa hugmynd um ævintýra-
heim ljóða hans. Þessvegna
hvet ég alla til að taka ljóð hans
og lesa vandlega. Það er
reynsla sem svikur engan .
— G. Ast.
Leikrit eftir Vonnegut í MH:
Löðurstíll á verkinu
Leikfélag Menntaskólans við
Hamrahlið frumsýnir leikritið Til
hamingju með afmælið, Wanda
June, eftir bandariska rithöfund-
inn Kurt Vonnegut, þriðjudaginn
5. febrúar næstkomandi.
Að sðgn Gunnars Gunnars-
sonar, sem leikstýrir verkinu, er
þetta nýlegt verk og jafnframt
fyrsta leikritið, sem Vonnegut
skrifar. Leikritið gerist að hluta
til i Himnariki, en annars á
venjulegu bandarisku heimili.
Fjallar verkið um friðarsinna og
striðsliða, dúfur og hauka, i al-
þjóðamálum, og er sprenghlægi-
legt og farsakennt á köflum.
■
vÍ'ÞJÓBLEIKHÚSM
Könnusteypirinn pólitiski
i kvöld kl. 20
Fáar sýningar eftir
Oliver Twist
laugardag: kl. 15
sunnudag kl. 15
Biindisleikur
laugardagi kl. 20
sunnudag kl. 20
Síðasta sinn
Litla sviðið:
Likaminn annað ekki
þriðjudag kl. 20.30
Miöasala 13.15 — 20. Simi 1-
1200
„Þetta er leikrit, sem er byggt
upp á hefðbundinn hátt, þó það
taki á málefnunum ferskum
höndum. Það má segja, að á
verkinu sé einhver Löður-still”,
sagði Gunnar.
Hann sagði, að hann legði
mesta áherslu á að koma til skila
öllum neyðarlegum bröndurum
verksins og einnig að leyfa eðli-
legum leikmáta að njóta sin.
„Þetta er allt áhugafólk og þá
riður á, að náð sé fram eðlilegum
leikmáta nemenda, en að þeir séu
ekki að herma eftir atvinnu-
leikurum, sem þeir hafa séð”,
sagði Gunnar.
Alls taka niu leikarar þátt i sýn-
ingunni og þýðandi verksins er
Ástráður Haraldsson, einn af
nemendum skólans.
\
Verum
viðbúin
vetrarakstri
/
KlX
IFEROAR
LEIKFÉLAG
REYKJAV1KUR
Ofvitinn
þriðjudag kl. 20.30
ótemjan
3. sýning föstudag kl. 20.30
Uppselt
rauð kort gilda
4. sýning sunnudag kl. 20.30
blá kort gilda.
Rommi
laugardag kl. 20.30
miövikudag kl. 20.30
Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30
Simi 16620
Austurbæjarbió
laugardag kl. 23.30
Miöasala I Austurbæjarbió
frá kl. 16-23.