Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 30.01.1981, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 30.01.1981, Qupperneq 23
hnlrjarpnc^t, /r/hn Föstuda9ur 30 ianúar 1981 Fjögur frystihús iKeflavik hafa hætt að frysta fisk, og þar hefur af þeim sökum verið sagt upp fjölda starfsmanna. Olverksmiðjur i Reykjavik hafa ýmist sagt upp starfsfölki eða hótað uppsögnum. Verkafölki i byggingariðnaði og ýmsum þjónustugreinum tengd- um honum hefur verið sagt upp á nokkrum stöðum á landinu. Hópur verkafólks á Suðurnesjum hyggur á atvinnuleit erlendis, fyrst og fremst hjá helstu keppi- nautum okkar i fiskiðnaðinum, Kanadamönnum. Þessar staðreyndir hafa komið af stað vangaveltum um það, hvort vofa atvinnuleysis sé að koma yfir okkur og ný bylgja landflótta sé að hefjast. — Það er siður en svo, að húsin hafi hætt að frysta vegna minnk- andi afla. Hann hefur þvert á móti aukist. Ástæðan er fyrst og fremst rekstrarvandi húsanna og sölutregða. En þetta er i fyrsta sinn sem frystihúsin fara ekki i gang i byrjun vertiðar, og það er mun alvarlegra en stöðvunin sem varð i' sumar, segir Emil Páll Jónsson um þetta. En ástandið er ekki jafn slæmt allsstaðar á landinu. Á Akureyri er fiskiðnaðurinn til dæmis i full- um gangi, og á Olafsfirði hefur verið litilsháttar atvinnuleysi, vegna þess að siglt hefur verið meö aflann. Hvernig sem á þvi stendur, að rekstur frystihúsanna á Suöumesjum gengur verr en á Akureyri er hitt ljóst, að út- Nota gosdrykkjaframleiðendur starfsfólk sitt til að þrýsta á stjórnvöld með þvi að veifa at- vinnuleysissvipunni yfir þvi? Atvinnuleysi eða ofþensla? Það styrkir út af fyrir sig þá skoðun, að samkvæmt upplýs- ingum óskars Hallgrimssonar hjá Vinnumáladeild Félagsmála- ráðuneytisins hefur skráning at- vinnulausra aukist frá ára- mótum. A Suðurnesjum einum njóta 53 atvinnuleysisbóta, en það er 30% meira en á sama tima I fyrra. Að sögn Emils Páls Jóns- sonar hjá verkalýðsfélaginu i Keflavik eru ekki færri en hundr- að konur atvinnulausar, þótt ekki njóti þær allar atvinnuleysisbóta. Hjá verkakvennafélaginu fengu 48 konur greiddar bætur á föstu- dag fyrir viku. En það er athyglisvert, að stærsti hópurinn sem er nú án at- vinnu i Keflavik missti vinnuna vegna þess að öll fjögur frystihús bæjarins hafa hætt að miklu eöa öllu leyti að frysta fisk en verka i skreið og saltfisk i staðinn Og allt eru það konur. Karlmennimir hafa allir haldið vinnunni — við þessa nýju vinnslugrein. Likurnar á að breski Verka- mannaflokkurinn klofni hafa auk- ist dag frá degi, eftir að flokks- ráðstefna á sunndag ákvað að veita forustumönnum sambanda verkalýðsfélaga úrslitavald i vali á foringja sósialdemókrata og draga enga dul á að það geti orðið upphaf á stofnun nýs flokks. A fundi miðstjórnar flokksins i fyrradag var svo komið, að leið- togar striðandi fylkinga skiptust á hnútum og köpuryrðum og storkuðu hver öðrum. Til slikrar rimmu kom, enda þótt Tony Benn, leiðtogi vinstri arms flokksins og sigurvegari á flokks- ráðstefnunni i Wembley, tæki aft- ur illa þokkaða tillögu um að krefjast hollustueiðs af þing- mönnum og þingmannaefnum flokksins. gerðarmenn syðra hafa siöur en svo dregið úr umsvifum sinum. Þeir hafa einungis skipt um vinnslugreinar og farið i þá fisk- vinnslu, sem var hvað arðbærust I fyrra — saltfisk og skreið. Þrátt fyrir næga atvinnu i fisk- iðnaðinum eru yfir hundrað verkamenn á atvinnuleysisskrá á Akureyri að sögn Jóns Helga- sonar, formanns Einingar, félags iðnverkafólks. Þar eru þaö helst karlmenn, sem eru atvinnulausir, fyrst og fremst þeir sem stunda byggingavinnu og aðra útivinnu. — Það er einhver samdráttur i byggingaframkvæmdum, en fyrst og fremst hefur dregið úr vinnu vegna harðindanna i vetur. Einhverjir munu lika vera skráðiratvinnulausir vegna þess, að þeir hafa ekki komist suöur á vertið, þar sem allt er i óvissu með fiskverðið, segir Jón Helga- son. En það eru ekki bara harðindin, sem hrjá þá sem hafa atvinnu af Shirley Williams byggingaframkvæmdum á Akur- eyri. Að sögn Jóns Helgasonar er nokkuð um fjárhagserfiðleika hjá byggingaverktökum. Af þeim sökum m.a. fá menn ekki inni vinnu, þegar litið er um fram- kvæmdir Uti. Svipað er ástatt fyrir iðnaðar- mönnum á Suðurnesjum, en ástandið þó öllu alvarlegra. — Það er greinilegur sam- dráttur hjá iðnaðarmönnum hér, fyrst og fremst vegna þess, að við höfum enga fyrirgreiðslu fengið til atvinnuuppbyggingar. Hér hefur i mörg ár verið talað um saltverksmiðju, magnesiumverk- smiðju og saltsýruverksmiöju, en ekkert orðið af framkvæmdum, segir Emil Páll i Keflavik. Astandið virðist ólikt betra i Reykjavik, og það var gott hljóðið i Benedikt Daviðssyni formanni Sambands byggingarmanna, þegar ég ræddi við hann. — Þessi árstimi er oftast erfið- astur, en i ár er hann heldur Tony Benn Uppreisn frá miðju grefur um sig í breskum stjórnmálum Sigurinn sem Tony Benn vann á Wembley setur Verkamanna- flokkinn i yfirvofandi hættu, af þvi hann var ekki fyrst og fremst unninn á hægra arminum, sem laut i lægra haldi á flokksþinginu i Blackpool I haust. I Wembley var það Michael Foot, nýkjörinn for- maður flokksins og vinstri maður af gamla skólanum, sem beið ósigur fyrir Benn og Herskáu hneigðinni, skipulögðum samtök- um sem setthafa sér það mark að breyta Verkamannaflokknum úr stjórnmálaflokki sem fylgir þing- ræðisreglum i baráttusamtök sem stefna aö skjótri og gagn- gerri umbyltingu bresks þjóð- félags. A flokksþinginu i Blackpool var ákveðið með naumum meirihluta að taka val flokksforingja úr höndum þingflokksins eins og sömuleiðis að gera kjörna þing- menn flokksins undirgefna flokksstofnunum i kjördæmum sinum. Þingflokkurinn valdi Foot til forustu i þeirri von, að hann væri liklegastur frambjóðenda til að getahaldið breytingum á regl- um um foringjakjör innan þeirra marka, að einingu flokksins yrði ekki teflt í bráðan voða. Þetta reyndi Foot I Wembley, en mis- tókst, þótt hann legði sig allan fram. Flokksþingið setti ráðstefnunni i Wembley það hlutverk, að setja nýjar reglur um kjör flokksfor- ingja. Fyrst kom til álita, hvort viðhafa ætti beint kjör eða óbeint. Tillaga Davids Owens af hálfu hægra armsins um beint kjör, þar sem allir flokksmenn ætturétt til þátttöku á jafnréttisgrundvelli, var felld og ákveðið að setja á laggirnar kjörmannasamkundu. Komu þá til álita fimm mismun- andi tillögur um hvernig kjör- mannasamkundan skyldi skipuð. I öllum var gert ráð fyrir aö þing- flokkur, flokksdeildir i kjördæm- um og verkalýðsfélagasambönd ættu hlut að máli, en i mjög mis- jöfnum hlutföllum. Michael Foot studdi tillögu sem gerði ráö fyrir að þingflokkurinn hefði helming atkvæða i kjarmannasamkund- unni en hvor hinn aðilinn fjórðung. Taldi hann þetta hlut- fall nauðsynlegt/ bæði gagnvart núverandi þingflokki og almenn- ingi, sem tortryggir áhrif aðila utan þings á val þess manns sem hefst til forustu fyrir rikisstjórn, þegar flokkur hans er i stjórnar- andstöðu. Tillagan um jafnræði milli þingflokks annars vegar og flokksdeilda og verkalýðsfélaga sambanda hins vegar var felld, og að lokum náði samþykki til- laga um að i kjörmannasam- kundu til að velja foringja Verka- mannaflokksins skuli verkalýðs- félagasamböndin hafa drottn- unaraðstöðu með 40 af hundraði atkvæða en þingflokkur og flokks- deildir hljóta 30 af hundraði hvor aðili um sig. Fyrirfram var ljóst að þetta fyrirkomulag myndi mælast afar illa fyrir, bæði innan Verka- mannaflokkksins og utan. Astæð- an er sú atkvæðahefð sem bresku verkalýösfélögin viðhafa, einnig þegar þau koma fram sem aðilar að Verkamannaflokknum. Þá hefur foringi hvers sambands at- kvæöavægi eins og fari hann með atkvæði hvers einasta félags- manns I sinu sambandi, hvort sem um er að ræða félaga i skárri en oft áður. Þaö eru færri á skrá en verið hefur undanfarin ár og varðandi lóðaúthlutun er út- litið skárra en i fyrra, segir Bene- dikt. Atvinnuleysisdögum yfir allt landið fækkaði um 12400 frá árinu 1979 til 1980 og það athyglisverða er, að sú fækkun varð öll á höfuð- borgarsvæöinu. Ein af skýring- unum er vafalaust sú, að þar hefur verið byggt upp fjölbreytt- ara atvinnulif en annarsstaðar á landinu — þar byggist ekki allt meira og minna á sveiflu- kenndum fiskiðnaði. En nú mætti halda, að það krosstré sem iðnaðurinn er sé fariö að bregðast. Þegar frum- •varpið um vörugjald á gosdrykki var lagt fram á Alþingi skömmu fyrir jól tilkynntu eigendur gos- drykkjaverksmiðjanna umsvifa- laust að komi það til fram- kvæmda muni þeir segja upp starfsfólki. Til þessa hefur þó ekki orðiö af þvi nema i einni verksmiðju, hversu mikil alvara sem er á bak viö það. Kannski hún sé meiri en hjá skóverk- smiðjunni Iðunni, en þar var öll- um sagt upp fyrir mörgum mán- uðum, en engin uppsögn komin til framkvæmda. Sumir leggja uppsagnirnar i gosdrykkjaverksmiðjunum þannig út, að þær séu fyrst og fremst þrýstingur á stjórnvöld. Verksmiðjueigendur hafa undan- farið árangurslaust sótt til Verð- lagsráðs um verðhækkanir, sem þeir telja sig þurfa. Nú verða þeir að hækka verðið vegna vöru- gjaldsins, og þykir þeim liklega enn torsóttara að fá eldri hækk- anir i gegn eftir að hækkun þess kom til. Verksmiðjueigendurnir reikna dæmið þannig, að verðið hækki svo mikið vegna vöru- gjalds að salan hljóti aðdragast YFIRSÝN flokknum, flokksmenn annarra breskra stjórnmálaflokka eða flokksleysingja. Nógu illt þótti undir þessu fyrirkomulagi að búa meðan afl atkvæða reiknað með sliku móti réð úrslitum mála á þingum Verkamannaflokksins. Þegar atkvæðastyrkur eftir höfðatölureglu i verkalýösfélög- um á að ráða mestu um forustu i Verkamannaflokknum og þar með hver skipa kann forsætisráð- herraembætti i Bretlandi, þykir mörgum steininn taka úr. Ekki bætir úr skák að tillitslausum verkalýðsfélagaforingjum og kjarakapphlaupi þeirra er al- mennt kennt um að siðasta stjórnartimabili Verkamanna- flokksins lauk með ósköpum, sem leiddu til stórsigurs ihaldsmanna og valdatöku Margaret Thatcher i slðustu kosningum. Sá möguleiki, að valið i næstu kosningum geti staðið um Thatcher annars vegar og Verka- mannaflokk á valdi Tony Benn og verkalýðssambandaformann- anna hins vegar, opnar nýtt og áður óþekkt svigrúm fyrir milli- flokk á Bretlandi. Thatcher og Benn eiga það ekki aðeins sam- eiginlegt að bæði eru stjórnmála- menn með rigskorðaða hug- myndafræði, sina af hvoru sauða- húsi, heldur eru bæði litt við alþýðu skap. Anthony Wedge- wood-Benn breytti nafni sinu og fékk leyfi þingsins til að afsala sér lávarðstign i þeim yfirlýsta tilgangi að geta keppt eftir for- sætisráðherrastöðu á vegum Verkamannaflokksins, og að þvi marki hefur hann einbeitt ótvi- ræðum áróðurs- og skipulagsgáf- um sinum. I hópi þeirra sem myndað haf Ráð sósfaldemókrata er hins veg- ar Shirley Williams, sú af forustumönnum Verkamanna- flokksins sem mestrar lýðhylli nýtur. Eini stjórnmálamaður i Bretlandi sem úm þessar mundir skákar henni I vinsældum er David Steel, foringi Frjálslynda flokksins. Tvær mismunandi skoöanakannanir i Bretlandi hafa leitt I ljds, að kosningabandalag frjálslyndra og sósiaidemókrata 23 saman. A það hefur aö sjálfsögöu varla reynt ennþá. Það er ljóst, að einhver aukning hefur orðið á atvinnuleysi á undanförnum vikum. En það var heldur ekki ýkja mikið fyrir — 0.3% að meðaltali allt árið, eöa um 300 manns. Undan- farin ár hefur fjöldi atvinnu- lausra oftfariðupp i 1000 i janúar, en það er um eitt prósent af vinnufærum mönnum. Það þætti ekki mikiö I ýmsum nágranna- löndum okkar. í Sviþjóð voru t.d. tvö prósent vinnufærra manna án vinnu i desember, en það teija stjórnvöld þar varla að sé at- vinnuleysi. Að sjálfsögðu er það hart, aö yfirleitt þurfi nokkur að vera at- vinnulaus. En atvinnuleysi hefur alla tið verið fylgifiskur iönaðar- þjóðfélaga, og viðast væri 0,3% atvinnuleysi talið merkja of- þenslu i þjóðfélaginu. Það er heldur ekkert nýtt, að hér séu menn án vinnu tima og tima — en vinni þeim mun meir þess á milli. Sllkar sveiflur eru eðli fiski- mannasamfélags, þótt mikið hafi dregið úr þeim hér á undanförn- um árum. En þótt litil hætta sé á, að skuggi atvinnuleysisvofunnar sé yfir okkur er full ástæða til að vera á varðbergi. Eitt af þvi sem er mikilvægast er að atvinnu- leysistryggingar séu i góðu lagi. Einmitt i' vandræðaástandinu sem rikir á Suöurnesjum nú krefjast menn þess, að rikis- stjórnin efni loforðin um endur- skoðun löggjafar um atvinnu- leysistryggingar, sem var I „félagsmálapakkanum” frá þvi fyrir áramót. Þegar til kemur skilst fóiki, að þetta loforð hafi alls ekki verið timasett. eftir Þorgrim Gestsson eftir Magnús Torfa ólafsáon undir forustu þessara tveggja myndi i þingkosningum bera sigurorð bæði af ihaldsmönnum með Thatcher á oddinum og leif- unum af Verkamannaflokknum. Steel hefur þegar orðað mögu- leikann á sliku kosningabanda- lagi frjálslyndra og nýs flokks sósialdemókrata og sett fram höfuðatriðin sem hann telur að falist gætu i sameiginlegri kosn- ingastefnuskrá. Margt þarf þó að gerast áður en áform um miðju- bandalag t stjórnmálum Bret lands verður að veruleika. For- kólfar Ráðs sósialdemókrata hafa ekki enn brotið brýr að baki sér, og óliklegt er talið að þeir láta til skarar skriða og segi sig úr Verkamannaflokknum fyrr en að afstöðnum bæja- og sveita- stjórnakosningum með vorinu. Þar við bætist að komið hefur i ljós að hugmynd Steel um kosn- ingabandalag við sósialdemó- krata á ekki upp á pallborðið hjá ýmsum k jördæmisfélögum frjálslyndra. Þjóðfélagsástand i Bretlandi fer versnandi. Atvinnuleysi eykst mánuð eftir mánuð og er komið i hálfu þriðju milljón. Hágengi pundsins heldur útflutnings- framleiðslu niðri. Margaret Thatcher situr þó við sinn keip og kveðst muni framfylgja hinni einu, réttu stefnu sem hún hafi markað fram i rauðan dauðann. Umbrotin i Verkamannaflokkn- um stafa fyrst og fremst af gerólíku mati á hver séu rétt við- brögð helsta stjórnarandstöðu- flokksins viö reynslunni af Thatcher og stefnu hennar. Tony Benn og hans menn þykjast eygja gullið tækifæri til að yfirgefa Efnahagsbandalagið, fjarlægjast NATó, og ummynda einangrað Bretland til sósialisma eftir sinu höfði með skjótum hætti. Sósial- demókratarnir eru jafn sann- færðir um að það sem Bretar sist þarfnist sé hugmyndafræði Tony Benn I stað friedmanisma frú Thatcher.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.