Helgarpósturinn - 30.01.1981, Side 24
Það eru jafnan miklar vanga-
veltur uppi i kringum Albert
Guðmundsson, borgarstjórnar-
og alþingismann. Við greindum
frá þvi' á dögunum að Albert heföi
látið að þvi liggja að hann
hyggðist draga sig út úr borgar-
málavafstrinu vegna anna en i
Morgunblaðinu birtist siðan yfir-
lýsing frá Albert um að hann
hefði fullan hug á þvi að bjóða sig
fram i næstu borgarstjórnar-
kostningum og væri þess vegna
alls ekki að hætta. Ýmsir sam-
verkamenn Alberts halda þvi þó
fram, að hann sé ekki allur þar
sem hann er séður i þessum yfir-
lýsingum, þvi að vel geti svo farið
að Albert dragi sig út úr borgar-
málastörfum um stund, og það
útiloki alls ekki að Albert verði
með i næsta prófkjörsslag Sjálf-
stæðisfl. til borgarstjórnar.
Orðrómur er á kreiki um að i ráði
sé aö fjölga ráðherraembættum i
rikisst jórninni um eitt með þvi að
losa Gunnar Thoroddsen for-
sætisráðherra við efnahagsmálin
og stofna sérstakt efnahagsmála-
ráðuneyti. Ráðherraembætti
þetta sé ætlað Alberti Guðmunds-
syni og er það sagt byggt á sam-
komulagi milli Gunnars og
Alberts, sem þeir eiga að hafa
gert þegar Albert hét núverandi
stjdrn stuðningi — um að hann
mætti eiga von á ráðherra-
embætti, þegar mesti hamagang-
urinn út af stjórnarmyndun
Gunnars væri yfirstaðinn og
stjórnin væri orðin traust i sessi.
Skoðanakönnun Dagblaðsins
bendir til að svo sé nú komið og
Albert geti verulega styrkt stöðu
sina með þvi að taka sæti i rikis-
stjórn, bæöi með tilliti til lands-
fundar Sjálfstæðisflokksins i vor,
þar sem sagt er að Albert eygi
varaformannssætið, og borgar-
stjóraembættið i Reykjavik,
sem Albert er einnig sagður hafa i
bakhöndinni ef honum likar ekki
ráðherradómurinn en þá þarf
hann auðvitað að fara i prófkjörs-
slaginn fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar i Reykjavik. Einhverj-
um kann að þykja þetta heldur
langsótt en svona tala nú einu
sinni menn i áhrifastöðum i Sjálf-
stæðisflokknum...
# Og meira úr pólitikinni.
Viðræður munu nú vera I gangi
innan Alþýðuflokksins um að Jón
Baldvin Hannibalsson verði
framkvæmdastjóri Alþýðuflokks-
ins, með það fyrir augum að end-
urskipuieggja allt flokksstarfið.
Jafnframt þvi muni hann láta af
daglegri ritstjórn Alþýðu-
blaðsins, en halda áfram að
leggja blaðinu til forustugreinar.
Innan þingflokks Alþýðuflokksins
munu menn hins vegar mishrifnir
af hugmyndinni, þar sem amk.
sumum mun þykja Jón nógu fyr-
irferðamikill i stefnumótun
flokksins í leiðurum sinum, þó að
hann leggi ekki einnig undir sig
flokksapparatið...
0 1 Lögbirtingablaðinu lásum
við svo um annan ágætan krata,
Bjarna P. Magnússon, formann
útgáfust jórnar Alþýðublaös-
ins/Helgarpósts, sem drifið hefur
i þ’vi aö stofna nýtt fyrirtæki —
Bossa sf. Þvi mun ætlað að fram-
leiöa barnableyjur og dömubindi,
helmingi ódýrari en aðrir,
svo að nafniö er óneitanlega við
hæfi, og reyndar ágætt til þess aö
vita að kratar hafa ekki alveg
glatað húmornum þótt ekki blási
byrlega fyrir þá samkvæmt
nýjustu skoöanakönnunum, en
einhverjir munu velta þvi fyrir
sér hvort viðurnefnið Bjarni f
Bossa muni ekki reynast ungum
manni óyfirstiganlegur þröskuld-
ur á pólitlskri framabraut...
# Vífilfell hf. — framleiðandi
gosdrykkjarins vinsæla Kóka
kóla og megrunardrykkjarins
Fresca er sagt eiga i nokkrum
erfiðleikum um þessar mundir
vegna aukinnar tollheimtu rikis-
sjóðs og samdráttar i sölu. Al-
mennt er talið aö Vifilfell sé
Föstudagur 30. janúar 1981 _helgarpásturinrL.
Ftyturðu inn vörur f rá
„FOB VÁSTERVIK"
Gæti það lækkað
innkaupsverðið?
HAFSKIP HF.
Hafnarhúsinu, v/Tryggvagötu, Sími 21160
M.S.LANGÁ
13.febrúar1981
13. mars 1981
Umboðsmaður
í VÁSTERVIK:
Knut Sjögren A/B
S 59301 VÁSTERVIK
P.O.Box 11,
Telex: 3912
Sími: 0490-301 30
HAFSKIP HF. hefur um sextán ára skeið haldið uppi
reglubundnum siglingum til Svíþjóðar, nú vikulega til
Gautaborgar og hálfsmánaðarlega til Halmstad.
HAFSKIP HF. hefur nú bætt við nýjum viðkomustað, nú
á austurströnd Svíþjóðar, VÁSTERVIK, og verður viðkoma
þar á 25 daga fresti. Borgin er staðsett miðja vegu milli
Stokkhólms og Helsingborgar, en á því svæði eru
f jölmargar verksmiðjur, sem selja þekktar vörutegundir til
íslands.
Tilgangur okkar með því að bæta VÁSTERVIK við aðra
viðkomustaði HAFSKIPS í Svíþjóð, er að sjálfsögðu að
bæta þjónustuna. Þannig geta nú innflytjendur, sem kaupa
vörur frá VÁSTERVIK svæðinu gert samanburð á verði á
innfluttri vöru frá Svíþjóð. Athugið hvort hagkvæmara sé
að kaupa vöruna ,,EX FACTORY" eða „FOB VÁSTERVIK".
Allar frekari upplýsingar eru fúslega veittar
í Markaðsdeild Hafskips hf. í síma 21160.
stærsta gosdrykkjarverksmiðja
landsins en forráðamenn þess
hafa ávallt verið tregir til að láta
uppi hve mikil framleiðslan er
eða hver heildarveltan sé i krón-
um talið. Þess vegna var þetta
umboðsfyrirtæki Kóka kóla á
íslandi ekki á lista timaritsins
Frjálsrar verslunar yfir 100
stærstu fyrirtæki, sem birtist i
siðasta tölublaði þess. Þar mun
fyrirtækið þó eiga heima með
réttu. Vífilfell mun hafa verið
annað tveggja fyrirtækja sem
neitaði að gefa upp veltutölur
sínar i könnun timaritsins...
# Auglýsingastofurerumargar i
landinu og hörð samkeppni þeirra
á milli um kúnnana. Jáfnan er
nokkur hreyfing á fyrirtækjum
milli auglýsingastofa en það telst
þó til tiðinda i þessum bransa
þegar stórfyrirtæki á borð við
Flugleiðir fara að hugsa sér til
hreyfingar. Frá fornu fari hefur
Auglýsingastofa Gísla B.
Björnssonar þjónað Loftleiðum
en Gylmir Flugfélaginu og eftir
sameininguna munu þessar tvær
stofur hafa fengið verkefni á vixl.
Nú heyrist að næst vist sé að
Flugleiðir ætli að yfirgefa
Auglýsingastofu Gisla B. og
sennilega einnig Gylmi og á sama
tima fréttist að auglýsingastofa
ólafs Stephensensé með auglýs-
ingaprógramm I smiðum fyrir
Flugleiði...
# (Jr heimspekideild Háskóla
tslands heyrum viö að til umræðu
sé að fá dr. Kristjáni Eldjárn,
fyrrum forseta tslands, prófess-
orsstöðu við deildina. Astæðurnar
fyrir þessari ráðagerð munu vera
tvær. t fyrsta lagi þykir háskóla-
mönnum akkur i að fá fræðara og
vísindamann á borð við dr.
Kristján til kennslu og rann-
sóknastarfa viðskólann og á hinn
bóginn mun mönnum einnig hafa
þtítt nóg um að fyrrum þjóð-
höfðingi landsins skyldi þurfa að
sæta því að vera launalaus i tvö
ár, því að það vantaöi upp á eftir-
launaaldur hans þegar hann
ákvað að draga sig i hlé...
# Athygli hefur vakið að Ingi R.
Helgason, lögfræðingur hefur
tekið sæti i bankaráði Seðlabanka
tslands þriðja kjörtimabilið i röð
af hálfu Alþýðubandalagsins. Er
þetta sagt brot á siðareglum
flokksins þess efnis að sami
maður sitji ekki lengur en tvö
kjörti'mabil i nefndum, stjórnum
og ráðum fyrir flokksins hönd.
Ingi mun hins vegar hafa sjálfur
lagt áherslu á áframhaldandi
setu sina i ráðinu...
# Islenskar hljómplöturútgáfur
hafa öðru hverju reynt að hasla
sér völl á erlendum mörkuðum
með afurðir sinar og þeirra helsti
vettvangurá þvl sviði hefur verið
hljómplötumarkaðurinn I Midem
i Frakklandi. Nú heyrist að
Steinar Berg og Pétur
Kristjánsson frá Steinari hf. séu
staddir á þessari hátið og kynni
siðustu hljómplötur Utangarðs-
manna, Mezzoforte og Þin og min
(sem er kórrétt eignarfall af Þú
og ég þótt það virki ankanna-
lega)...
# Þaðer ekki alls staöar bruðlað
með peninga i rikisgeiranum,
eins og stjórnarandstæðingar
halda fram. Ein litil saga um
ráðherra, sem sparar: Fyrir
nokkrum vikum var haldin
ráöstefna um æskulýösmál á veg-
um Æskulýðsráðs rikisins. Á dag-
skrá ráðstefnunnar var liður sem
nefndist, „hádegisverður i boði
menntamálaráðherra”. Var ekki
laust við að ýmsir ráðstefnugestir
væru farnir að leiða hugann; að
gómsætu veisluborði i ráðherra-
bústaðnum. En það var nú eitt-
hvað annað. Ingvar Gislason
mentamalaráðherra vildi enga
siika sóun. Matarboð ráðherra
var haldið i skátaheimili við
Melaskólann og þar þröngt setnir
bekkir. Gestum var boðið upp á
kjöt i karrý, upphituðu i ör-
bylgjuofni á staðnum og fram-
borið á pappadiskum. Ráðherra
sjálfur mætti ekki I sitt eigið boð
og þá eflaust verið að spara em-
bættinu einn skammt af kjöti i
karrý...
# Og örstutt af vettvangi hand-
boltamanna. A meöan hinn pólski
þjálfari þeirra Vikinga, Bogdan
er hafinn upp til skýjanna hér á
landi og þökkuð hin ágæta
frammistaða handboltamanna
Vikings á undanfömum árum, þá
blása öllu næðingsamri vindar
um sovéska kollega hans á
þjálfarasviðinu, þ.e. hinn
rússneska þjálfara Valsmanna.
Segir sagan, að leikmenn Vals
séu allt annað en ánægðir með
Rússann og ýmsir leikmenn
þegar hættir æfingum vegna
einstrengislegra skoðana hans og
mikillar miðstýringar. Þykir
llklegt að þetta verði fyrsta og
siðasta keppnistimabil Rússans
með handboltalið Vals, enda
árangur Valsmanna slakur þetta
timabilið. Það veröur þvl ekki
annað séð, en Islensk handbolta-
félög renni blint I sjóinn þegar
þau taka hingað upp útlenda
þjálfara fyrir stóran pening meö
litilli tryggingu fyrir hæfileikum
þeirra manna, sem hingaö eru
fengnir....
# 1 hinum háværu umræðum
manna á meðal um hið nýja fisk-
verð, hefur mikið verið minnst á
hinn erfiða rekstur útgerðarinnar
og þá bent á að hún sé almennt
rekin með miklum halla. Ýmsir
hafa þó mjög dregið I efa sann-
leiksgildi þessarar staðhæfingar
og benda á, að það sé i raun
aðeins litill hluti flotans sem sé
rekinn með halla. Þetta sýni tölur
fiskveiðisjóðs. Fullyrða þeir að
yfir 80% flotans sé rekinn með
gróða, en hin 20% skapi hina nei-
kvæðu heildarútkomu. Það séu
hin nýju og dýru skip i loðnu — og
togaraflotanum sem séu rekin
með dúndrandi tapi. Finnst þvi
mörgum að það sé ansi hart, að
aðeins 1/5 hluti flotans skapi hina
ljtítu heildarmynd og væri þvi
réttara að skera á þennan hnút
með því að láta þau útgerðarfélög
sem ekki bera sig sigla sinn sjó,
en hin 80% fá raunveruleg tæki-
færi til athafna....
# Sá ágæti embættismaður
Kiemens Tryggvason hagstofu-
stjóri hefur lagt heiður sinn að
veði að fariö verði með svör við
spurningum I manntalinu sem al-
gjört innanhúss- og trúnaðarmál
hjá Hagstofunni. Enginn efast um
einlægni Klemensar i þessu efni
en hitt er spurning hvort honum
er stætt á þessu, þvi að við heyr-
um utan aö okkur að fyrir liggi
prófmál sem kveði ótvlrætt á um
aö skattrannsóknadeildin skuli
hafa aögang að öllum gögnum hjá
opinberum stofnunum. Verður
þvi ekki annað séð en rikisskatt-
stjóri verði að gefa út yfirlýsingu
um að hann ætli sér ekki að láta
menn sina hnýsast I upplýsingar i
manntalinu, ef eyða á allri tor-
tryggni sem óneitanlega hefur
gert vart við sig...