Helgarpósturinn - 10.04.1981, Page 9
9
rJielgarpásturinn
Föstudagur 10. apríl 1981
Hvað segðu
Einar og Árni?
Varnarmál svokölluð hafa
verið ofarlega á baugi i opin-
berum umræðum hérlendis að
undanförnu og hefur mörg
mannvitsbrekkan fundið sig til
þess knúða aö leggja þar orð i
belg. Sjálfskipaðir og sjálfum-
glaðir „lýðræðissinnar” hafa
Kostnaðurinn við vigbilnað
tröllveldanna er orðinn svo
geigvænlegur að menn standa
bókstaflega á öndinni þegar þeir
heyra nefndar fjárhæðirnar,
sem eru raunar ofvaxnar skiln-
ingi venjulegra manna af minu
sauðahúsi. Þetta vitfirrta kapp-
Heimir Pálsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J. Matthtas-l
dóttir — Páll Heiðar Jónsson — Sigurður A. Magnússon — Þráinn Bertelsson
Hringborðið
I dag skrifar Sigurður A. AAagnússon
gengið framfyrir skjöldu og
ausiö af nægtabrunnum visku
sinnar, og hefur sá austur skilað
okkur ókjörum af innihalds-
lausum og útjöskuðum vig-
orðum sem hlýtur að vera ætlað
annað tveggja: að fela fáfræði
„lýðræðispostulanna” eða
draga dul á þá andlegu fátækt
sem felst i algerum skorti á
nýjum hugmyndum eða sjálf-
stæðri hugsun. Maður er búinn
að heyra sömu ræðu með
nákvæmlega sömu röksemdum
i full þrjátiu ár, og er engu
likara en timinn hafi numiö
staðar og veröldin verið hraö-
fryst i þvi liki sem öskurapar
kalda striðsins mótuöu van-
sællar minningar. Siðasta dæmi
um átakanlegt andlegt heilsufar
þessara manna er ræöa sú sem
formaður Sjálfstæðisflokksins
flutti á fundi sjálfstæðisfélag-
anna i Reykjavik 30. mars
siðastliðinn. Honum tókst i rúm-
lega hálftima ræðu að hrúga
saman megninu af þeim klisjum
sem þrotlaust hafa dunið á
landsmönnum i þrjá áratugi.
Þeim sem eitthvaö hafa fylgst
með framvindu hernaðarmála i
heiminum undanfarin ár er
væntanlega ljóst að tortim-
ingarmáttur tröllveldanna
tveggja, Bandarikjanna og
Sovétrikjanna, er orðinn slikur
að þau geta hvort um sig gereytt
heimsbyggðina að minnstakosti
tólf sinnum. Gereyðingarvopnin
verða æ fullkomnari og eru
komin á það stig aö brátt veröur
hægt að tortima ölli lifi á jörð-
inni án þess að hrófla við mann-
virkjum! Væri ekki um
blákalda og hrollvekjandi al-
vöru að ræða, mundi þetta
vitanlega hljóma einsog fjar-
stæðukennd fyndni, „black
humour”. Allar afvopnunarvið-
ræður, sem tröllveldin hafa átt
hlut að, hafa leitt til stigmögn-
unar kjarnorkuvopnakapp-
hlaupsins, enda hefur Johan
Galtung prófessor, sem stjórnar
rannsóknarverkefni 248
visindamanna frá 45 löndum á
vegum Háskóla Sameinuðu
þjóðanna um alþjóðastjórnmál
og forsendur fyrir heimsfriði,
likt afvopnunarráðstefnum
tröllveldanna við ráðstefnu um
varnir gegn eiturlyfjum sem
stjórnað væri af forföllnum
eiturly f janey tendum.
hlaup á fyrst og fremst rætur aö
rekja til gagnkvæms ótta sem
jaðrar við geötruflun. Hefur sá
ótti gengið mjög nærri þegnum
þess veldisins sem viö lakari
efnahag býr, Sovétrikjanna, og
hlýtur að vera timaspursmál
hvenær efnahagslegar þreng-
ingarSovétrikjanna og lepprikja
þeirra fara að segja til sin i al-
mennri og opinskárri óánægju.
Atburðirnir i Póllandi eru vis-
bending um það sem i vændum
kann að vera miklu vfðar, t.d. i
Eýstrasaltsrikjunum, Úrkralnu
og jafnvel i Sovétrikjunum
sunnanverðum.
Ótti Bandarikjamanna við
hernaðarbrölt Sovétmanna
kann að vera skiljanlegur útfrá
þeirri forsendu að umsvif
þeirra á alþjóðavettvangi hafa
talsvert aukist, samanber
Afganistan nú siöast, en á hinn
bóginn er hið austræna tröll-
veldi i raun réttri risi á brauð-
fótum. Innri styrkur þessa vold-
uga rikis er ekki meiri en svo aö
það nötrar gagnvart manni
einsog Sakharov og telur nauð-
syn bera til að einangra hann
frá umheiminum, og hefur hann
þó ekki farið framá annað en
stjórnarskrárbundin mannrétt-
indi til handa sjálfum sér og
samlöndum sinum, en
hundruðum þúsunda manna er
haldið i þrælabúðum fyrir
rangar eða hættulegar skoðanir.
Bandalagsriki þessa tröllveldis
eru kúguð til hlýð»i með her-
valdi og munu viö fyrsta
tækifæri sem býðst hlaupa
undan merkjum „verndarans.”
Bandarikin hafa lika heims-
valdahagsmuni og verja þá með
oddi og egg um allar jarðir. Þau
standa þó að þvi leyti betur að
vigi en Sovétrikin aö þau hafa
ekki þurft að kúga bandalags-
riki sin til hlýðni meö hervaldi
(þó þau styðji að visu ýmsa
miður þokkaða vini sina með
vopnasendingum og hernaðari-
hlutun), heldur hefur þeim
gefist miklu betur aö beita
fégjöfum og efnahagslegum
þrýstingi. Er Island skóladæmi
um það og Islendingar orðnir
einhverjir litilþægustu ölmusu-
menn á jarðkringlunni.
Það er einsog svo margt
annaö á landi hér kaldhæðni
örlaganna, að þeir sömu menn
sem af mestri kostgæfni predika
&
/Ut
&
\
skilyrðislausta auðsveipni og
undirgefni við Bandarikjastjórn
mega vart vatni halda þegar
sögunni vikur að þeim örlaga-
riku atburðum sem nú eru á döf-
inni I Póllandi. Það ætti þó að
vera lýðum ljóst að Lech
Walesa og félagar hans eru
meðal annars að losa kverkatak
hins austræna tröllveldis á
pólsku þjóöinni. Takist þeim
það, hvað guð gefi, þá hafa þeir
lagt sitt litla lóð á vogarskál
heimsfriðarins, að sinum hætti
einsog Titó gerði fyrir rúmum
þrjdtiu árum og Ceaucescu
allmörgum árum siöar. Nú er
svo komið, að áliti Galtungs, að
einungis tveimur rikjum i
Austur-Evrópu mundu Sovét-
menn geta treyst ef til vopna-
viöskipta drægi i Evrópu,
Austur-Þjóðverjum og hugsan-
lega Búlgörum.
A sama hátt og flest smáriki I
Austur-Evrópu hafa látið á sér
skilja að þau muni ekki vera
reiöubúin til baráttu fyrir stór-
veldahagsmunum Sovétrikj-
anna, þá gætir nú i Vestur-
Evrópu vaxandi andúðar á þvi
að láta Bandarikin nota banda-
lagsriki sin einsog viljalaus peð
i valdataflinu við Sovétrikin,
enda fer Bandarikjastjórn slnu
fram I þvi tafli og hefur sára-
sjaldan samráð við bandalags-
rikin, jafnvel um hin mikil-
vægustu mál. De Gaulle varð
fyrstur vestrænna leiðtoga til að
losa um tengslin við Bandarikin
er hann tók herafla Frakka
undan sameiginlegri stjórn
NATO-herja. Grikkir fetuðu i
fótspor hans eftir innrás Tyrkja,
bandamanna sinna, i Kýpur og
má vænta verulegra breytinga á
stöðu Grikklands innan NATO
eftir næstu þingkosningar þar i
landi. t ýmsum öðrum NATO-
löndum, svosem Hollandi, Nor-
egi, Danmörku og jafnvel lika
Bretlandi og Vestur-Þýska-
landi, fara nú fram viðtækar
umræður um hlutverk vestur-
evrópskra rikja i valdatafli
tröllveldanna. Þeirri skoðun
vex óðum fylgi að i vitfirringu
kjarnorkuvopnakapphlaupsins
sé sá kostur vænstur aö leitast
við að skapa öryggispólitiskt
mótvægi viö Bandarikin,
nokkurskonar þriðja afl, sem
með tið og tima kynni að
tengjast ótryggum bandalags-
rikjum Sovétrikjanna og stuðla
þannig að þvi að einangra tröll-
veldin i valdatafli sinu.
Galtung hefur varpað fram
þeirri athyglisverðu hugmynd
að gagnlegt gæti veriö að halda
afvopnunarráöstefnur án
aðildar tröllveldanna, þareð
aðild þeirra að slikum ráö-
stefnum hafi jafnan magnaö
vigbúnaðarkapphlaupið. Hann
gengur jafnvel svo langt að gera
þvi skóna að einhliða afvopnun
tiltekinna rikja kynni að ýta viö
tröllveldunum og kannski koma
fyrir þau vitinu. Hann telur aö
kjarnorkuvopnalaus svæði I
Evrópu væri skref i rétta átt og
leggur áherslu á að takmarka
beri möguleika tröllveldanna til
að nota smáriki Evrópu i
hernaðarlegum tilgangi, meðal
annars með þvi að neita
geymslu vigvéla fyrir þau.
Allar þessar hugmyndir
hljóta að snerta mjög fram-
tiðarstefnu Islendinga i
„varnarmálum”. Sú marg-
tuggna hégilja að vera Banda-
rikjanna á Keflavikurflugvelli
tryggi varnir og öryggi Islands
hefur löngu gengið sér til húöar
og er orðin léleg skrýtla, enda
varð fátt um varnir I það eina
sinn er verja þurfti islensk yf-
irráðasvæði gegn erlendu of-
beldi i þorskastrlðinu. Jafnvel
tryggustu NATO-sinnar eru
farnir að viðurkenna að her-
stöðin hljóti að veröa forgangs-
skotmark i kjarnorkustriði
tröllveldanna. tsland er ein af
útstöðvunum I varnarkerfi
Bandarlkjanna, enda viður-
kenndi framkvæmdastjóri
NATO, Josef Luns, fyrir sex
árum, aö herstööin i Keflavik
sparaði bandariskum skatt-
borgurum 22 milljarða dollara
árlega, þvi án hennar yrðu
Bandarikjamenn að hafa sex til
sjö stór flugvélamóðurskip á
Norður-Atlantshafi til að gegna
þeim njósna- og eftirlitsstörfum
sem nú eru unnin frá Keflavik.
Við Islendingar erum semsé
eitt af litlu peðunum i valdatafli
tröllveldanna, en öfugt við
margar aðrar þjóðir hins vest-
ræna heims, sem státað geta af
ofurlitilli sjálfsviröingu,
göngum viö meö betlistaf fyrir
valdsherrana I Washington og
sárbænum þá um aukin hernar-
umsvif i landi okkar. Hvað ætli
Einar þveræingur eða Arni
Oddsson hefði hugsað um þá
niðja sins sem þannig hegða sér
við ármenn fjármagns og her-
valds?
VETTVANGUR
Þetta ástand, sem honum þykir
vel við unandi, er þó vissulega
skelfilegt, sé það skoðað vel.
Augljóst er að i lækningatilraun
ofdrykkjufólks verjum við á
þessu ári meira en tveimur
milljöröum nýrra króna.
Vinnutjón vegna áfengisneyslu
veit enginn hve miklu nemur.
Ekki er heldur vitað með vissu
hve mikið manntjón hlýst beinlin-
is af drykkjuskap en miklar likur
Hins vegar eru alls ekki taldir
þeir sem misst hafa heilsu og
fengið eina og aðra sjúkdóma
vegna drykkjuskapar sjálfra sin
eða annarra, þó að slikt dragi oft
til dauða.
Enn verðum við aö þola upp-
lausn margra heimila og að upp-
eldi fjölda barna ólánist vegna
drykkjunnar og eru það ef til vill
allra ömurlegustu afleiðingar.
Hverjum þykir ástandið gott?
Það er litilþægur maður sem
skrifar i Helgarpóstinn siöasta
um batnandi ástand i áfengismál-
um. Hann endar með þvi að segja
að við megum vel við una.
eru til að það sé ekki minna en
einn maður á viku til jafnaðar. Þá
er að visu gert ráð fyrir að talinn
sé með nokkur hluti þeirra sjálfs-
morða sem unnin eru.
næst þvi þá ef börn fæðast van-
gefin vegna drykkjuskapar
mæðra.
Höfundur virðist telja alla
áfengisneyslu þeirra sem ekki
eru áfengissjúklingar hóf-
drykkju. Það er hróplega átakan-
leg vitleysa. Menn hafa jafnvel
drukkið sig i hel án þess að vera
drykkjusjúklingar. Alkóhólisti
eða drykkjusjúklingur er sá kall-
aður sem misst hefur stjórn á
drykkjuhneigö sinni svo að hann
heldur áfram ef hann er byrjaöur.
Hins vegar eru þess mörg dæmi
að menn hafi drukkið sig i rot
löngu áður en þeir eru komnir á
það stig.
Þeir eru ekki allir orðnir
áfengissjúklingar sem stela bii-
um dálitið kenndir, aka ölvaðir og
lenda i árekstri og slysum, leggj-
ast fyrir ósjálfbjarga eða fara sér
að voða. Samt er ekki hægt að
kalla alla þeirra drykkju hóf-
drykkju eins og Helgarpósturinn
gerði.
Þessi orö eru skrifuð til áminn-
ingar. Svo er að sjá sem greinar-
höfundur sé rétt að vakna til
hugsunar um áfengismálin og þvi
er kannske ekki tiltökumál þó
hann sé varla kominn til ráðs i
svefnrofunum. En þar sem ekki
mun fyrir einum að lá en miklu
fleiri munu vera illa vaknaðir er
ástæða til aö koma þessari at-
hugasemd á framfæri.
Leiðrétting
Rangt var farið með i siðustu
Y firh'yrslu Helgarpóstsins.
Þar 1 ar Davið Scheving Thor-
steinssnu ;.efndur sem aðal-
eigandi Smjörlikis h/f. Þetta
er ekki rétt, Davið, sem er
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, á aðeins rúmlega 9%
hlutafjárins i Smjörliki. Þetta
leiðréttist hér með.