Helgarpósturinn - 10.04.1981, Side 21
21
hélgarpösfíirinhFðstudagur ,0. aprII „8,
Rússíbanafílingur
Pere Ubu< The Art of
Walking
Eitt af þvi sem heillar mig
mest, þegar ég hlusta á plötu
með Pere Ubu i fyrsta skipti, er
að vita aldrei hvað kemur næst.
Kannski byrjar það sakleysis-
lega, með ált aö þvi ljúfum
melódium jafnvel, maður hallar
sér aftur i stólnum, borar i
nefnið, en áður en maður veit af
erallt komiðá fullt, maður situr
gjörsamlega varnarlaus og veit
ekki hvernig maður á að bregö-
ast við. Svo lærist manni smám-
saman að vera alltaf á varö-
bergi. Ég get ekki mælt með
Pere Ubu sem afslöppunar-
meöali, en það er sannarlega
skemmtileg tilbreyting frá
heföbundnari tónlist að setja þá
á fóninn. Ætli það sé ekki svipað
eins og munurinn á þvi að ráta
Tjarnargötuna og fara i Tivoli.
Pere Ubu er ekki mjög þekkt
hljómsveit hérlendis, þrátt fyrir
að hún hefur vakið talsveröa at-
hygli erlendis og gefið út að
minnsta kosti fjórar stórar
plötur á jafnmörgum undan-
förnum árum, auk fjölda lltilla
platna og einnar 12 ” plötu.
Mannabreytingar hafa verið
tiðar i Ubu og siðan ’75 sýnist
mér aö hafi verið að minnsta
kosti átta eða jafnvel niu upp-
stillingar, en frá upphafi hafa
fimm menn myndað hinn fasta
kjarna hljómsveitarinnar, þeir
eru David Thomas söngvari
Tom Hermann gitarleikari
Scott Krauss trommuleikari
Allen Ravenstine hljómborðs-
leikari og Tony Maimone bassa-
leikari. A nýjustu plötuna
vantar Tom Hermann en Mayo
Thompson er kominn 1 staðinn.
Þessi nýjasta plata heitir The
Art of Walking.
Ég er ekki enn kominn meö
það á hreint, hvort The Art of
Walking er eins góð og fyrri
plötur Ubu t.d. Modern Dance
og New Picnic Time en kannski
er það vegna þess að hún er óað-
gengilegri, þyngri og þarfnast
sennilega meiri hlustunar, áöur
en maður fílar hana fullkom-
lega. Annars held ég að flestar
uppáhaldsplötur minar eigi það
sameiginlegt að ég þurfti að
hlusta nokkuð oft á þær áöur en
þær ööluðust sess i þessum
heiöursflokki, ég get glatt Pere
Ubu og velunnara þeirra með
þvi að ég tel góðar likur til þess
aö The Art of Walking eigi eftir
aö komast i þann ágæta flokk.
Ég tók eftir þvi þegar ég skoð-
aði umslagið, að Pere Ubu eru
farnir að gefa út hjá Rough
Trade, það er að veröa nokkuö
athyglisverö hljómplötuútgáfa,
þeir hafa Raincoats og Cabaret
Voltaire og fleiri góða. Kannski
að það verði með Rough Trade i
rokki eins og með EMC I jassi,
að merkið tryggir gæðin.
Um mannjöfnuð
Þegar ég kom fyrst i Taflfélag
Reykjavikur fyrir hartnær
hálfri öld bar ekki mikið á
unglingum. Þetta var notalegur
klúbbur miðaldra fólks og mót-
staðurinn var Café Uppsalir
sem mér fannst viröulegur stað-
ur, á mótum Aöalstrætis,
Kirkjustrætis, Suðurgötu og
Túngötu. Þarna mátti jafnan
hitta rólega heiðursmenn sem
sátu að tafli og voru stundum
ekki frá þvi að leiðbeina okkur
þessum fáu unglingum sem
þangað lögðum leið okkar. Ég
man sérstaklega eftir
Guðmundi Bergssyni póst-
meistara, sem stundum tók viö
okkur skák, Þorsteini Gislasyni
föður Garðars lögfræðings og
alþingismanns og Bjarna
Grimssyni fisksala. Og ekki hef
ég heldur gleymt Guðrúnu Jóns-
dóttur, einu konunni i þessum
klúbbi, hún kenndi við skólann i
Landakoti, hafði teflt um langt
skeið og var vel hlutgeng i öðr-
um flokki.
Já, það var flokkaskiptingin
sem ég ætlaði að minnast á. Ég
man aðallega eftir tveimur
flokkum, öðrum flokki og fyrsta
flokki. Ég man ekki eftir að tal-
að væri um meistaraflokk, hann
kom siðar til sögunnar, en i
fyrsta flokki voru miklu færri en
i öðrum flokki. Það var heilmikiö
afrek að komast upp i fyrsta
flokk, enda voru þar snjöllustu
skákmenn landsins, Eggert
Gilfer, Asmundur Asgeirsson,
Einar Þorvaldsson og Jón
Guömundsson, og svo vitaskuld
einhverjir fleiri. En þessir
menn voru langt fyrir ofan okk-
ur, það var fólkið i öðrum flokki
sem við kynntumst fyrst. Við
sáum hvernig það tefldi,
heyrðum hvernig það talaði á
meðan á taflinu stóð. Það er
alltaf fróðlegt að heyra menn
tala meðan þeir tefla, hnútur
fljúga á milli, oftast i góðu,
stundum snjallar, en oft fer þó
svo að menn gripa til sömu setn-
inganna si og æ. Á Uppsölum
var stundumvitnað i JónVidalin
og eru sumar þeirra setninga
lifandi fyrir mér enn.
Sumir félaganna höfðu teflt i
öörum flokki lengi og kunnu vel
við sig þar, áttu sér engan
draum um að komast hærra.
Mér var sagt af manni sem
hafði teflt lengi i öörum flokki
en varð svo fyrir þvi óhappi aö
tefla sig upp i fyrsta flokk. Hann
fann fljótlega aö þar átti hann
ekki heima og baöst þess aö fá
aö fara niður i annan flokk
aftur. Það var ekki laust við að
við þessir ungu himnabrjótar
sem áttum þann draum heit-
astan að komast sem fyrst upp i
fyrsta flokk, verða Reykja-
vikurmeistarar, tslandsmeist-
arar eða hamingjan má vita
hvað, brostum svolitið að þess-
um eldri félögum. En siðar
skildist manni að þetta var eðli-
legt og heilbrigt viðhorf gagn-
vart skákinni, þetta fólk tók
skákina sem dægradvöl, kom til
að tefla við jafningja sina og
hefur áreiöanlega haft svipaða
ánægju af leikfléttum sinum og
þeir i fyrsta flokki, kærðu sig
ekki verulega um sigur eöa
ósigur — þótt betra væri að
sigra en tapa aö öðru jöfnu —
átti sinar ánægjustundir við
skákborðið án þess að nokkurn-
tima væri farið i verulegan
mannjöfnuð.
En mannjöfnuðurinn átti sina
talsmenn, flokknum fjölgaði
smátt og smátt, einkum þó i efri
endann. Ofan á fyrsta flokk
bættist meistaraflokkur og siöar
landsliðsflokkur. Og svo bættist
upphefðin sem kom að utan i
hópinn: alþjóölegir meistara-
titlar og jafnvel stórmeistara-
titlar. En þótt þrepin yröu fleiri
og fleiri i flokkastiganum voru
þó á honum augljósir gallar.
Einn var sá aö ekki var hægt að
vinna sig upp um flokk nema á
tilteknum mótum. Ekki skipti
máli hve vel maður stóð sig á
milli þessara móta ef heppnin
var ekki með á réttindamótinu
sjálfu. Þá var ekki um annað aö
gera en biða þess næsta.
Austur i Sovétrikjunum var
að visu sá háttur hafðurá, að
minnsta kosti ef menn voru
komnir eitthvaö verulega
áleiðis i flokkastiganum, að
maður gat skorað á mann i
næsta flokki fyrir ofan og unnið
sig upp i hans flokk með þvi að
sigra hann. Um þetta hafa sjálf-
sagt verið settar reglur og ekki
veit ég til aö þessi aðferð hafi
verið notuö annars staðar. Sú
hugmynd hlaut þvi aö skjóta
upp kolli, að eölilegra væri að
meta allan árangur skákmanns
þegar honum skyldi raðað i
styrkleikatröppuna, heldur en
að láta það ráðast af frammi-
stöðu hans á einu móti. Hér á
Islandi var það Áki Pétursson —
er dó allt of ungur og islenskir
skákmenn standa i þakkarskuld
við á margan hátt — er fyrstur
vakti athygli á þessu. Áki var sá
framtaksmaöur að hann lét ekki
þar við sitja heldur bjó sér til
kerfi til þess aö reikna skák-
mönnum stig eftir árangri
þeirra i keppni viö félaga sina.
Þessi stig voru við hann kennd
og kölluö Akastig. Svipað mun
hafa gerst i fleiri löndum og
nokkru siðar kom fram kerfi,
sem nú er allsráöandi, kennt við
bandariskan verkfræðing
Arpad Elo. Skáksambönd i
hverju landi reikna árangur
sinna manna á hverju móti
heimafyrir og veita stig
samkvæmt þvi, alþjóðaskák-
sambandið vakir svo yfir þessu
öllu og reynir að samræma eins
og unnt er Þessi skákstig, Elo
stigin, hafa nú unnið sér þegn-
rétt hvarvetna og eru þau reikn-
uð öllum sem koma við sögu á
opinberum skákmótum, allt frá
heimsmeistaranum til, ungra
byrjenda. Heimsmeistarinn er
sennilega vel yfir 2700 stigum,
alþjóðlegir stórmeistarar á bil-
inu niður undir 2500 stig, alþjóö-
legir meistarar á bilinu niður
undir 2300 stig, en mestur hluti
þeirra sem tefla er lægri en
þetta, á siðustu skrá timaritsins
SKAK eru menn með rúmlega
500 stig lægst, en þar eru
rúmlega 800 skákmenn á skrá.
Þetta kerfi hefur þegar unnið
sér þegnrétt, þannig aö menn
eru hættir aö gagnrýna þaö,
nema einstaka augljósa galla,
eins og þann aö erfitt getur
verið að fá stigaháan skákmann
til að tefla á móti meö öðrum
lakari — hann á öllu að tapa en
ekkert að vinna, jafnvel þótt
hann vinni hverja skák bætir
þaö litið eöa ekki stööu hans i
stigum, er hins vegar mikiö i
húfi ef hann skyldi slysast til að
tapa skák. Þegar svo er komiö
er ekki úr vegi að spyrja sig hve
nákvæmt er kerfið og er óhætt
aö treysta þvi?
Hér verður ekki lagt i að gera
úttekt á þvi, enda væri það ekki
auðvelt. En óhætt mun að full-
yrða, að i aðalatriðum hefur
kerfiö gefist vel,þaö gefur góðan
samanburð á mönnum sem tefla
sæmilega mikið og tefla saman.
Þannig myndi fáum koma til
hugar að véfengja stigatölur
stórmeistara sem eru siteflandi
á alþjóöamótum og hver við
annan. Eins ætti þaö að gefa all
nákvæman samanburð á skák-
mönnum i hverju landi um sig.
Hins vegar gæti manni dottið i
hug aö einhver munur kynni að
koma upp landa i milli, en þvi
meiri sem alþjóðleg samskipti
eru i skákinni þeim mun óveru-
legri ætti hann að vera.
Égséisiðasta heftitimaritsins
SKÁK að þar hafa stigatöl veriö
„leiðrétt” þannig að þau enda
alltaf á 5 eða 0, og er það til
bóta. Mönnum hættir svo til að
taka meira mark á tölum en
skynsamlegt er, talan stendur
þarna alvarleg og hárnákvæm,
niðurstaða úr mælingum eða
reikningum, hver leyfir sér að
draga hana i efa? En það
gleymist oft að spyrja um
grundvöllinn sem mælingarnar
og reikningarnir eru byggðir á.
Hér um daginn varð þjóðar-
sorg i Sviþjóö vegna þess að
Ingmar Stenmark tapaði
keppni i svigi i ættlandi sinu. Og
timamunurinn á honum og þeim
sem sigraði var tveir
hundruðust úr sekúndu — i
tveimur lotum samanlagt! Ekki
þarf að hafa staöiö mikið á
skiðum eöa horft lengi á keppni
af þessu tæi, þar sem brautin
breytist i sifellu frá keppenda til
keppenda til þess að sjá hve
fáránlegt þetta er, þó svo að
timamælarnir hafi sýnt þessa
niðurstöðu.
Og svipað er að segja um
skákstigin. Það væri fásinna aö
telja mann sem hefur 1978 skák-
stig sterkari en þann sem hefur
aðeins 1977. Þessar tölur koma
að visu út úr formúlunni og við
skulum ekki gera ráö fyrir
reiknivillu, en grundvöllurinn er
ekki nógu öruggur. Mér finnst
sjálfum að minni stigamunur en
20 sé ekki marktækur, jafnvel
þótt um sé að ræöa menn sem
hafa teflt að talsverðu leyti viö
sömu andstæöinga. En hafi
mennirnir sem saman eru born-
ir ekki teflt við sömu and-
stæðinga eða jafnvel ekki verið
uppi á sama tima, fer saman-
burðurinn að verða óáreiöan-
legri. Þó hafa menn reynt að
gera samanburð á taflmeistur-
um nitjándu aldar og nútimans,
reikna út skákstig nitjánduald-
ar manna á sama hátt og þaö er
gert i dag og reyna að komast að
þvi hver sé mesti skákmaður
allra tima. Kannske hefur
einhver gaman af að sjá tilraun
af þessu tæi, þar sem tekið er
það timabil i ævi hvers skák-
meistara þar sem honum gekk
best:
£JS|| Skák: Guðmundur Arnlaugsson — Spll: Frlðrlk Dungal — Söfnun: AAagni R. AAagnússon — Bllar: Porgrímur Gestsson
vJLÆ.::.- i1 Skák •
1 dag skrifar Guðmundur Arnlaugsson um skák
Taflmeistari Stigahámark
1. Fischer 2785
2. Capablanca 2765
3. Lasker 2750
4. Aljekin 2735
5. Botvinnik 2730
6. Tal 2720
7- 8. Keres og 2710
Smyslov 2710
9-10. Kortsnoj og 2705
Petrosjan 2705
11-13. Bronstein, 2695
Spasski og 2695
Tarrasch 2695
15-15. Morphy og 2690
Pillsbury 2690
Til samanburðar og gamans
má nefna skrá sem bandariski
rithöfundurinn Irving geröi, en
hann lifir og hrærist I skák og
1. Capablanca
2. Aljekín
3. Lasker
4. Fischer
Ar Aldur
1970- 28—
1914-22 26—32
1895-190 27—32
1927-31 35—39
1941-48 30-37
1958-59 22—23
1953-56 37—40
1953-56 32—35
1960-61 29—30
1961-63 32—34
1949-51 25—27
1964-65 27—28
1895-05 33-43
1857-59 20—22
1899-03 27—31
hefur skrifaö margar skákbæk-
ur. Aö hans dómi eru tólf mestu
skáksnillingar allra tima
þessir:
5. Botvinnik 9. Spasski
6. Petrosjan 10. Bronstein
7. Tal 11. Rúbinstein
8. Smyslov 12. Nimzovitsch
Tölvuskráin er tilraun til að
meta i tölum afrek, hún er
niðurstaða talningar á sigrum
og ósigrum, þar er engu öðru
blandað inn i. Chernev tekur
sennilega, sjálfrátt eða ósjálf-
rátt, aðra þætti með i mat sitt:
frumleika, listrænt gildi skáka
er þessir menn hafa teflt og
fleira af þvi tæi sem erfitt er að
mælaÞað vekur athygli að hann
skuli ekki hafa Morphy með og
að Morphy skuli ekki vera hærri
á stigaskránni, slikir sem yfir-
burðir hans voru yfir aðra skák-
menn þau tvö ár sem hann tefldi
kappskákir af alvöru.
Einnig er eftirtektarvert að
Steinitz skuli hjá hvorugum
komast á skrá, enda þótt hann
væri heimsmeistari meira en
aldarfjórðung og einhver mesti
hugsuður skákarinnar.
En það má lika nota skákstig-
in til að gera samanburð á milli
þjóða, þótt þar sé meiri hætta á
ónákvæmni, af þvi að þeir sem
þá eru bornir saman hafa
sjáldnast teflt við sama hópinn
néhver viðannan. Viðhöfum oft
borið okkur saman við
Norðurlönd, ekki sist Dani sem
við höfum löngum tekið mið af á
liðinni tiö. Sem stendur erum
við eina Norðurlandaþjóöin sem
Stigahæsti maður
Þrir stigahæstumennsamanlagt
4.—10 stigahæstu samanlagt
11,—20. stigahæstusamanlagt
20stigahæstumenn samanlagt
10 stigahæstu menn samanlagt
Niðurstaðan verður sú að
munurinn sé svo litill aö hann sé
alls ekki marktækur. Nú þegar
ólympiumótin eru orðin siik
feikna ferliki að þau hafa
naumast nokkurn tilgang annan
en þann að láta menn af ólikum
þjóöernum hittast og tefla
saman, væri gaman að taka
aftur upp samvinnu á smærra
sviði. Til dæmis væri skemmti-
legt að koma á sveitakeppni
Norðurlanda. Alltbendir til þess
aö hún gæti orðið viðráðanleg,
tvisýn og skemmtileg.
En svo að ég sviki ekki alveg
þá sem kunna að meta tefldar
skákir, kemur hér ein úr dönsku
deildakeppninni i vetur. Báðir
eru teflendurnir algerlega
óþekktir og vantar talsvert á að
þeir komist i þann mannjöfnuð
sem hér hefur veriö stundaður.
En skákin sýnir að fleiri kunna
eitthvað fyrir sér en þeir stiga-
hæstu.
Jörgen Lövgren Nielsen
Ivan Sörensen
getur státað af tveimur
stórmeisturum. Danir eiga hins
vegar frægasta skákmeistara
Norðurlanda og á árinu sem leiö
eignuðust þeir heimsmeistara i
bréftafli. Það er ólitið afrek þv:
aö keppnin er afar hörð. Sviar
hafa átt ýmsa afburða menn í
bréfskák, en aldrei hefur þeim
tekist að hreppa heims-
meistaratitilinn. Sviar eigg
aðeins einn stórmeistara. Finn-
ar eru nýbúnir að eingast sinn
fyrsta stórmeistara en
Norðmenn eiga engan enn.
Ef til vill hefur einhver
gaman af að sjá samanburð á
skákstigum Danaog Islendinga.
Ég hef með höndum nýjustu
skákstig islenskra skákmanna
og sex ára gömul dönsk skák-
stig. Meður þvi að þetta á ekki
að verða nein visindaritgerð hef
ég ekki haft fyrir þvi að verða
mér úti um önnur nýrri, saman-
burðurinn er ónákvæmur hvort
eð er og ég geri ekki ráð fyrir
neinum stórfelldum breytingum
á þessum tima. Raunar sé ég i
nýrri grein um þessi efni að
skákstig hjaðni frekar en aukist
með tímanum, svo að timamun-
urinn ætti ekki aö vera Dönum i
óhag. Og hér kemur þá mann-
jöfnuðurinn: *
Danmörk Island
2620 2585
7572 7565
16823 16835
23477 23000
47872 47400
24395 24400
01. e4-d6 13. Bxg7-Kxg7
02. d4-g6 14. exf5-gxf5
03. Rf3-Rf6 15. Bdl-Rg6
04. Rc3-Bg7 16. Re2-f4
05. Be2-Bg4 17. f3-Rh4
06. h3-Bxf3 18. C4-HÍ7
07. Bxf3-0-0 19. Bc2-Kh8
08. 0-0-RC6 20. Khl-Hg7
09. Be3-e5 21. Hf2-Dg5
10. d5-Re7 22. Rc3-Hag8
11. Dd2-Rd7 23. Hgl-Dg3
12. Bh6-f5 24. Re4
abcdefgh
24. ...-Dxh3+ 26. Kh2-H8g2+
25. gxh3-Hxgl+ 27. Hxg2-Rxf3mát