Helgarpósturinn - 11.09.1981, Page 8
—heigar
.1 istunnn._
Bla&um þjóðmál/
listir. «g menningarmál.
Utgefandi: Vitaðsgjaf i hf.
Fra wkvæmdastjóri: Bjarni
P. f bgnússon
Ritstiórar: Árni Þórarins-
son, Björn Vignir Sigurpáls-
son.
Blaosmenn: Elisabet Guð-
björ /iSdóttir, Guðjón Arn-
grfmsson, Guðlaugur Berg-
mundsson, og Þorgrímur
Gest jon.
Utlif ;KristinnG. Harðarson
Ljósi ■vjndir: Jim Smart
Aug/?singar: Inga Birna
Gun warsdóttir
Gja.itoeri: Halldóra Jóns-
dóttir
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siðumúla 11, Reykjavík.
Sím'r 81866. Afgreiðsla að
Vsgötu 8—10. Símar:
8.006, 81741, og 14906.
Prentun: Blaðaprent hf.
Áskriftarverð
a imánuði kr. 24.-
Lausasöluverð kr. 8.-
Abyrgd
Með haustkomunni vakna is-
lensk stjórnmál af sumardval-
anum. Brátt kemur alþingi
saman með hefðbundnu arga-
þrasi og hefðbundið þóf um kaup
og kjör launafólks og skipting
þj óðarkökunna r er á næstu
grösum, svo og smærri uppá-
komur eins og landsfundur Sjálf-
stæðisflokksins og prófkjör flokk-
anna fyrir borgar- og sveitar-
stjórnakosningar.
t íslenskum stjómmálum er
aldrei friöur,” segir dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráöherra að
vfsu f ítarlegu viötali við Helgar-
póstinn f tilefni af þeim margvls-
legu haustönnum sem framundan
eru.en engu að síöur má fullyröa
að fyrir hann veröa næstu mán-
uðir óvenju ófriðvænlegir, bæði
sem forsætisráðherva og sem
stjórnmálamann.
NU er liðiö rösklega hálft annað
ár frá þvi að ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen tók til starfa eftir
sögulegustu stjórnarmyndun fs-
lenska lýöveldisins. Allar götur
siðan má segja að þessi rikis-
stjórn hafi staöið i skugga þess-
arar merkilegu stjórnarmynd-
unar, þegar um það hefur verið
að ræða að leggja mat á störf
hennar sjálfrar.
Það getur þess vegna verið
nógu gaman að skyggnast gegn-
um allt moldviðrið og reyna aö
skoða rikisstjórnina og störf
hennar i sæmilega sanngjörnu
Ijósi.
Þaö liggur til aö mynda alveg
fyrir að það er ekkert sérstakt
púður í þessari rlkisstjórn f þeim
skilningi að ráðherrar þar geisli
af skemmtilegheitum eða veki at-
hygli fyrir óvæntar eöa frumlegar
ráðstafanir. Rfkisstjórnir verða
heldur varla dæmdar af sliku.
Það er hins vegar ljóst að rikis-
stjórnin hefur náð nokkrum
árangri f þeirri viöleitni sinni að
hemja óðaverðbólguna og ná
henni niður, svo og f þvi aö koma
betri skikkan á rikisfjármálin en
verið hefur nokkur undanfarin ár.
Það má hins vegar endalaust
deila um það að hvað miklu leyti
það hefur gerst fyrir tilverknað
rikisstjórnarinnar eða vegna
hagstæðrá ytri skilyrða, eins og
þaö er stundum nefnt.
Næstu kjarasamningar geta
ráðið miklu um framhaldið. t
Helgarpóstinum i dag hcitir
Gunnar Thoroddsen þvf að rikis-
stjórnin muni leggja kapp á að
vemda kaupmáttinn en segir að
það megi gera með ýmsum
öðrum ráðum en þeim aö hækka
laun í peningum.
Rikisstjórnin sem nii situr
hefur náð nokkrum árangri. Það
hlýtur að vera sanngimissjónar-
mið að hún fái sæmilegan starfs-
frið áfram, málefnalega stjórnar-
andstöðu og að kjarasamningar
mótist fremur af þjóðhagslegum
viðhorfum en pólitiskri einsýni.
Abyrgir kjarasamningar eru
öllum fyrir bestu, ekki aöeins
rfkisstjórninni. En þá má það
heldur ekki gleymast aö sjálfsaf-
neitun almennings kallar á að
rfkiö geri sömu kröfur til sin.
Föstudagur 11. september 1981
'^Uie/garpústurinrL.
Biskupskjör í ullarkreppu
Það hefur væntanlega
fariö fram hjá fáum að vér
fslendingar höfum eignast
nýtt biskupsefni. Ekki er
hægt að segja aö fram-
koma kennidóms þessa
lands hafiorðiðtilaðauka
á virðing hans í augum al-
mainings. Ekki er þó að
efa að tæpast hefur betur
getaö tekist til um
biskupsval en einmitt nú.
Séra Pétur Sigurgeirsson
hefur þjónað Akureyrar-
prestakalli i 34 ár og hefur
meö hverju árinu orðiö æ
ástsælli meðal bæjárbúa
og mun hans eflaust veröa
af mörgum mjög saknaö.
Akureyrarpóstur vill nota
tækifærið og árna honum
velfarnaðar f hinu nýja
starfi landi og lýð til bless-
unar. Skarð séra Péturs
verður vandfyllt, en ósk-
andi er að val á eftirmanni
hans megi fram fara án
þeirra leiðinda, sem svo
alltof oft fylgja fyrirbrigði
þvi sem prestskosningar
nefnist. Vitað er að ýmsir
munu renna hýru auga til
Akureyrarbrauðs, enda
mun það gefa allvel af sér,
en heldur er það erilsamt,
reyndar svo aö farið hefur
verið fram á stofnun
þriðja prestsembættisins i
bænum, þó ekki hafi þvi
enn verið komið f fram-
kvæmd. Biskupskjör sr.
Péturs leiðir hugann
ósjálfrátt að þeirri spum-
ingu hvort það sé allt að
þvi óf rá vik ja nlegt
náttdrulögmál að mætustu
synir þessarar þjóðar
verði allir aö vera búsettir
i Hólmskaupstað suður til
að vinna þjóðinni gagn.
Það er ofur eðlilegt að Jón
Sigurösson hafi viljað á
sinni tið efla sem mest veg
hins hálfdanska einok-
unarkaupstaðar. Danir
höfðu jú komið þvi svo
fyrir aö þar i nágrenni sat
nú hin æðsta innlenda
valdsstóm, hugsanlega
vegna þess hve staöurinn
lá vel við siglingum frá
Kaupmannahöfn. Þó Jón
forseti hafi verið afar
framsýnn maöur á sinum
tima verður að telja hæpið
að honum haf i dottiö i hug
að annar staöur en Kaup-
mannahöfn yrði aðsetur
æðstu stjórnar Islands.
Þvi var spurningin um ef 1-
ingu Hólmskaupstaöarj
raunverulega spurning
um byggöajafnvægi þess
tima, liktog viðNorðlend-
ingar viljum i dag efla
Akureyri f jórðungnum öll-
um til heilla og öðrum
stöðum innan hans til
eftirbreytni. En svo við
víkjum aftur að biskups-
kjörinU, þá getur þaö tæp-
ast verið vilji Drottins
almáttugs að við Akureyr-
ingar þurfum að sjá á bak
okkar ástsæla kierki suöur
yfir heiöar þótt biskups-
nafn beri. Eitt er vist að
aldrei verður Hólmskaup-
staður hið sama i augum
þessarar • þjóðar og Skál-
holt og Hólar voru á
sinni tíð. Staðirnir sem
bióðin sjálf hafði valið til
að veita ljósi menningar
og mennta inn I myrkan
iieim aldanna.
Og á þessum tima-
mótum 1 andlegu lifi
bæjarbúa er einnig ýmis-
legt að gerast á hinu
veraldlega sviði. Margar
válegar blikur eru á lofti i
efnahags- og atvinnumál-
um þessa bæjar. Forráöa-
menn ullar- ogskinnaiðn-
aðarins vöknuðu allti einu
upp við vondan draum.
Gjaldþrot og fjöldaupp-
sagnir blöstu viö innan
fárra vikna yrðiekkert aö
gert. Nú kom það sér vel
að höfuðstöðvar Iðnaöar-
deildar SIS skyldu vera
hér I bænum og valdþjöpp-
unarkenningin.sem hinn nýi
Landhelgisgæsluforstjóri
hélt fram i sjónvarpsvið-
tali á dögunum afsannað-
ist rækilega. Með litlum
fyrirvara var boðað til
fundar með starfsfólki
fyrirtækjanna, einum
hinna fjölmennari funda
sem haldnir hafa verið um
iönaöarmál hérlendis. Ef-
laust hafa fundargestir
betur gert sér grein fýrir
þvf hvert stefndi vegna
þess að þaö voru ráða-
menn sem fólkið þekkti
sem útskýrðu vandann en
ekki einhverjir dtsendarar
að sunnan. Þó er ekki hægt
að ganga framhjá einum
þætti, en það er efnahags-
stefna sú,eða eigumviðaö
segja kúrekaleikir, sem
forseti Bandarikjanna og
rikisstjórn hans ástunda
þessa dagana. Að dómi
flestra ábyrgra efnahags-
sérfræðinga getur þessi
stefna einfaldlega ekki
gengiö upp og raunar
hefur þegar verið fallið frá
einu atriöi hennar, það er
að segja aukningu hern-
aðardtgjalda samfara
stórfelldum skattalækkun-
um. Fleira mun á eftir
fara og þar meö hugsan-
lega hrun dollarans eða
dalsins eins og sumir is-
lenskir f jölrniðlamenn
vilja kalla þessa göfugu
mynt þó svo enginn viti
hvaða dal er verið aö ræða
um. Hvaö um þaö. Ef
gengisskráningin er svo
mikilvægur þáttur þessa
vanda sem sumir vilja
vera láta er auðsýnt að
mikið mun úr rætast, jafn-
vel innan fárra mánaða.
Og á meöan ættu stjórn-
völd og frystihúsaeig-
endur sem mest hagnast á
þessu ástandi að geta
hlaupið undir bagga með
ullariðnaðinum. Sam-
bandiö gæti svo sjálft lagt
sitt lið með þvi aö fresta
byggingu fyrirhugaðs
skýjakljUJfs fyrir sunnan.
Eöa er hér aöeins um
bragö að ræöa til að kom-
ast undir pilsfaldinn
hennar elsku Rikis-
mömmueins og útgeröar-
mennirnir foröum. Alla-
vegana er það d.álitiö
skrýtið að iðnaðardeild
skuli vera að auglýsa eftir
mannskap i' Degi þegar
allt er á kúpunni. Eða
getur það verið að þessi
auglýsing standi eitthvað
i sambandi viö komu
álfurstanna norsku hingaö
á dögunum? Nú er i sjálfu
sér ekkert við stóriðju aö
athuga ef rétt og skyn-
samlega er að málum
staðið svo sem hvað
varðar mengunarvarnir.
Við höfum nýlega losnað
við peningalyktina frá
Krossanesi, og vera má að
einhverjir sakni hennar
svo mjög að þeir vilji nýja
peningalykt, að þessu
sinni utan af Hjalteyri,
þeir eru þó vonandi fáir.
Alver verður að vera
aðeins viðbót við þann
iðnað sem fyrir er en ekki
koma i stað hans, og við
verðum að draga lærdóma
af Straumsvikursamning-
unum, jafnvel þótt við
Norðmenn sé að eiga,
minnugir þess að oft geta
frændur oröið frændum
verstir.
Það er tekið að hausta
og á haustin taka skólarnir
til starfa á ný. Enn sem
fyrr heldur stór hópur
mannvænlegra ungra
manna og kvenna i suður-
átt eins og farfuglarnir,
suður i húsnæöisneyðina
sem fjölmiðlar hamra svo
mjög á þessa dagana, von-
andi þó ekki til þess að
undirbúa það aö láglauna-
svæðiö Akureyri verði að
fórna einhverjum
prósentustigum 1 komandi
kjarasamningum svo hægt
verði að byggja nýtt
Breiðholt, og suöurganga
hins unga námsfólks er
auövitað alltaf mikil blóð-
taka fyrir þennan bæ sem
eitt sinn var þó kallaður
skólabær. NU fyrir nokkr-
um dögum skrapp Ingvar
menntamálaráðherra
hingað norður til að taka
fyrstu skóflustungu nýs
verkmenntaskóla sem hér
á að rísa einhvemtimann
á næstu tveim kjörtima-
bilum, að viðstöddu Sjón-
varpinu að sjálfsögðu.
Enginn veit þó með vissu
hver staða hins væntan-
lega skóla verður i kerf-
inu. Vera má að hér sé að-
eins verið að breyta nafni
Iðnskólans þeirrar gamal-
grónu stofnunar. Vill nú
Akureyrarpöstur skora á
Akureyringinn Ingvar
Gislason að beita sér fyrir
þvi að sett verði löggjöf
um þennan skóla þegar á
næsta þingi. Að hann veröi
gerður aö miðstöð allrar
verk-og tæknimenntunar i
landinu a.m.k. jafngildi
Tækniskólans og jafnvel
fyrri hluta Tækniháskóla.
Gæti nafn hans þvi orðið
Verkmennta- og Tæknihá-
skóli íslands. Bamaskóli
tslands má ekki verða eini
skólinn sem hér I bæ hefur
veriö reistur og við tsland
kenndur, og enginn einn
staður á eylandi þessu má
nokkurn timann hafa á þvi
einkarétt að skreyta sig
með nafni lýðveldisins.
Agara,
jþessa dagana lykjast
hendur borgarbúans um
kartöflugrösin sem eru
siðasta háimstráið, sið-
ustu tengsl viö náttúmna,
moldina sem biður undir
þykku lagi af möl og mal-
biki, og börnin eru pínd til
að eta jarðeplin með hýð-
inu, þvi aö það er auövitað
hollast, eða eins og strák-
urinn sagði: „Aég þá ekki
að éta strigapokann lika?”
Og það er farið i berja-
mó aö tina krækiber, blá-
ber og jafnvel aðalbláber I
saft og sultutau meö búð-
ingum og steikum á vetri
komanda, og rifsberja-
uppskerjan i göröum höf-
uðborgarinnar ku vera
með mesta móti, kannski
vegna þess að fuglar him-
insins eiga sér orðið
ótryggt setur i borginni,
þar sem köttum hefur
fjölgað að sama skapi.
Þrestirnir voru ötulir
við rifsberjatinsluna, en
svo kom starrinn og
flæmdi þrestina burt og nú
er eins og kettir hafi komið
starranum á undanhald.
Það er nefnilega mál
manna að i miðborginni sé
óvenjumargt um köttinn
um þessar mundir. Þegar
siðustu unglingarnir
hverfa heim að hvila
æskublómann skömmu
eftir miðnættið með rám-
um söng, öskrum og hvii
taka kettirnir við, þvi að
nóttin er þeirra timi, og
þegar fólkið vaknar af
óværum svefni i morgun-
sárið og fer ofan.situr
heimiliskötturinn á hús-
tröppunum, þreyttur og
úfinn eins og nýkominn úr
Merkurferö eöa laxveiði,
og biður þess að komast
inn og fá sér lúr i námunda
við ofninn.
^ urn ir tala um katta-
plágu, þótt erfitt sé fyrir
kattavini að skilja i hverju
sú plága á að vera fólgin.
Reyndar veiða kettir
fugla, einkum smáfugla,
en það er vegna þess aö
þeim hefur ekki auðnast
að komast á það stig sið-
menntunar aö skriða um
sveitir lands á höttunum
eftir gæs eða rjúpu og fá
svo far heim með Flug-
björgunarsveitinni. Það
skal reyndar viðurkennt
að meöal katta finnast
þeir,sem grunaðireru um
sóðaskap og illa umgengni
og hafa jafnvel verið bom-
ir þeim sökum að hafa
hægt sér i sandkassa á
barnaleikvöllum. Slik
óhæfuverk er að sjálf-
sögðu ekki hægt að verja,
og leitt til þess að vita aö
fáeinir einstaklingar skuli
geta svert orðstir heils
hóps, en það gerist þvi
miður viða og oft.
Eins og allir vita eru
húsnæðismál á höfuðborg-
arsvæðinu i miklum
ólestri. Margireru á hrak-
hólum og vita varla hvar
þeir eiga sér næturstaö.
Sem betur fer starfa sam-
tök og stofnanir að þvi að
leysa þennan vanda, þótt
hægt gangi. En þaö eru
fleiri en mannfólkið sem
kviöa vetrinum.
Og nú er vetur i nánd.
Brúnimar á Esjunni eru
gráar á morgnana, sem
heilsa manni skjanna-
bjartir og kaldir, þegar
heimiliskötturinn kemur
inn, nuddar sér við fót-
legginn á manni og teygir
upp stýrið áður en hann
lötrar að mjólkurskálinni.
Þetta er forréttindakött-
ur, gljáandi á feldinn og
lukkulegur og góður á
taugum eins og sá sem
aldrei hefur skort soöna
• ýsu. Svo sofnar hann þar
sem geisli frá morgunsól-
inni fellur á gólfteppið, en
úti fyrir er li'fsbaráttan
háð.
/I^^ö sama skapi og heim-
ilisköttum hefur fjölgað i
borginni hefur flækings-
köttum eða villiköttum
fjölgað.
Fólk fær sér kettling,
sem er litill og skemmti-
legur og alltaf tili að leika
sér, en svo stækkar hann
og hættirað nenna að leika
sér, kannski lokast hann
inn i stofunni og migur i
teppið, kannski klór-
ar hann barn sem er einu
sinni of oft bdið að lyfta
honum upp á rófunni,
kannski þarf fólkiö að fara
i feröalag og skilur skál
með fiski i eftir á tröppun-
um og svo teygist úr ferð-
inni og þegar heim er
komið er kötturinn á bak
og burt. Allavega er tala
hei milislausra katta i
Reykjavik orðin legió.
Sumir vita af húsvilltum
kattafjölskyldum i ná-
grenninu og vikja þéim
annað slagið mjólkurskál
eða fisksporði i mannúð-
arskyni. Slikar ölmusu-
gjafireru þó skammgóður
vermir, einkum þegar
haustar að. Skynsamlegra
væri að reyna að hand-
sama þessi grey og koma
þeim fyrir kattarnef, áður
en veturinn gengur i garð,
svo að útburðarvæli' soltn-
um villiköttum heyrist
ekki i velferðarborginni.
g fyrst og fremst þarf
fólk að hyggja að þvi, sem
tekur kött inn á heimilið til
aö efla tengslin við dýra-
rikiö og náttúruna, að þar
með undirgengst það
ábyrgð á örlögum ein-
staklings, sem er lifandi
vera en ekki leikfang, sem
hægt er að henda f rá sér ef
maður verður leiður á þvi.
Fyrir borgarbúa sem
vill halda einhverjum
tengslum við náttúruna er
i flestum tilvikum heppi-
legra að fá sér kartöflu-
garð heldur en kött. Hann
mjálmar að minnsta kosti
ekki fyrir utan gluggann
þó að frjósi.
Hringborðið skrifa: Heimir Pálsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jón Baldvin Hanni-
balsson — Jónas Jónasson — AAagnea J. AAatfhíasdóttir — Sigurður A. AAagnússon
— Þráinn Bertelsson