Helgarpósturinn - 26.03.1982, Blaðsíða 7
Föstudagur 26. mars 1982
Hér er svo salatbarinn, sem menn geta borðað af eins mikiö oe beir f
sig geta látið. B H
Potturínn og pann-
an opnaði
Potturinn og pannan heitir nýr
matsölustaður, sem opnaður var i
gær. Staðurinn er til húsa á horni
Brautarholts og Nóatúns, þar
sem Hlíöarendi sálugi var.
Eigendur hins nýja matsölu-
staðar eru Olfar Eysteinsson,
Sigurður Sumarliðason og Tómas
Tómasson og hafa þeir lagt út i
töluverðar breytingar á húsnæð-
inu. Er það nú hið vistlegasta.
Aðalsmerki staðarins verður
salatbar að hætti þeirra i Ame-
riku. Er þar um að ræða fjöldann
allan af grænmetistegundum.
Fylgir salatbarinn með öllum
máltíðum, en einnig er hægt að fá
hann sér, ásamt súpu. Að sögn
forráðamanna staðarins veröur
í gær
lögð áhersla á góðan og ódýran
mat, og ef marka má það, sem
blaðamönnum var boðið upp á I
gær, þá er ekki annað hægt að
segja, en það takist vel. Sem
dæmi um verð má nefna máltið,
sem samanstendur af súpu, salat-
bar og lambakjöti. Hún kostar að-
eins tæpar 90 krónur.
Til þess að hafa ofan af fyrir
börnunum á meðan foreldrarnir
snæða, er sérstakt barnahorn, og
er ekki að efa, að þar fer vel um
þau.
Potturinn og pannan er opinn
daglega kl. 08—23.30 og auk
matar, er hægt að fá þar kaffi og
nýjar kökur um miöjan daginn,
að ógleymdum morgunmat.
Mcxikönsk vika hefst á Hótel Loftleiðum I kvöld. Þar verður gestum
boðið upp á mexikanskan mat og þarlendir listamenn syngja og leika.
Það verður greinilega mikið fjör I Vikingasalnum, eins og myndin hér
að ofan ber merki um.
Rokk í Reykjavík:
Frumsýning um páskana
Nú fer að liða að þvi, að kvik-
myndin Rokk I Reykjavik verði
frumsýnd. Stóra stundin rennur
upp um páskana og vefður hún
sýnd i Tónabiói.
Vinnsla myndarinnar er nú á
lokastigi, og eru aðstandendur
hennar nú staddir I Kaupmanna-
höfn, þar sem lokafrágangur fer
fram.
Fjöldi tónlistarmanna kemur
fram i myndinni, eins og kunnugt
er,og má þar nefna Bubba, Grýl-
urnar, Jonee Jonee, Bruna BB,
Þursaflokkinn, Purrkinn, og
marga fleiri.
Upptökur fyrir myndina fóru
fram á um 30 stöðum á Stór-
Reykjavikursvæðinu, á tónleik-
um, æfingum o.s.frv. Hljóðið i
myndina var tekið upp á átta rás-
ir og verður Rokk i Reykjavik
fyrsta islenska myndin, sem sýnd
verður i Dolby-stereó. Framleið-
andi myndarinnar er kvikmynda-
félagið Hugrenningur sf., en eig-
endur þess eru Ari Kristinsson,
Friðrik Þór Friðriksson, Jón Karl
Helgason og Þorgeir Gunnarsson.
En það er ekki nóg með, að
Rokk i Reykjavik komi út á filmu,
þvi um næsta mánaðamót er
væntanlegt á markaðinn tvöfalt
albúm meðlögum úr myndinni og
verða plötur þessar gagnmerk
heimild um rokklif i Reykjavik.
Og ennþá er það Hugrenningur
sf., sem stendur aö útgáfunni.
7
MYNDAR-
LEGAR
GJAFIR
FRAKODAK
Vasamyndavélamar írá Kodak eiga það allar
sameiginlegt að vera sérlega auðveldar í notkun, með
öruggu stuðningshandíangi og skila skörpum
myndum í björtum litum.
Aðrir eiginleikar þessara bráðsnjöllu vasavéla s.s.
aðdráttarlinsur, innbyggð sjálívirk leiíturljós og hraða-
stillingar eru mismunandi eítir gerðum og það er
verðið að sjálísögðu líka.
KODAK TELE-EKTRALITE 600
Glœsileg myndavél með sér-
stakri aðdráttarlinsu og innbyggðu
sjálívirku eilííðarílassi. Fókusinner
írá l.lmíhiðóendanlega.
Verðkr. 1.120,-
KODAK EKTRALITE 400
Stílhrein myndavél með
þremur hraðastillingum og inn-
byggðu eilííðarílassi.
Fókusinn er írá 1,2 m í hið óendan-
lega. Verð kr. 710,-
Vasamyndavél írá Kodak er myndarlea aiöf sem
þú getur verið stoltur aí hvar og hvenœr sem er.
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ AUSTURVER UMBOÐSMENN
S. 20313 S: 82590 S: 36161 UMLANDALLT
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 91.13