Helgarpósturinn - 26.03.1982, Blaðsíða 13
he/qarpó^tl irihn Föstudagur 26. mars 1982
Kömun á ferðamögu
leikum ungs fólks
Gerð var könnun á hvaða ferða-
möguleikar eru helstir fyrir ungt
fólk. Talað var við fólk sem
starfar fyrir 5 helstu ferðaskrif-
stofur bæjarins; trtsýn, Sam-
vinnuferðir, Atlantic / Úrval og
Ferðamiðstöðina.
Hjá (Jtsýn var ekki mælt með
neinum sérstökum féröum fyrir
ungt fólk, heldur telja þau allar
ferðirnar jafn hentugar. Verðið
er mjög mismunandi, ferð i 3
vikur fyrir einn geta kostað allt
frá 5000 kr. upp i 11-12 þús. og er
þá hótel innifalið f verðinu. Eng-
inn hópafsláttur er veittur þó
margir fari saman I hóp. Ekki var
boðið upp á neitt sérstakt fyrir
ungt fólk en nóg af skemmti-
stöðum, matstöðum og fleira sem
fólk finnur upp á.
Samvinnuferðir-Landsýn mæla
með sólarlandaferðum og ferðum
til Norðurlandanna fyrir ungt
fólk. Af sólarlöndunum var aðal-
lega mælt með Rimini, Toronto
og Irlandi. Bjóða þessir staðir
upp á miklar skemmtanir, og
góða iþróttaaðstöðu. Hótelgisting
er innifalin i verðinu. Mælt var
einnig með Þrándheimi i Noregi
og þá einkum fyrir skólafólk,
vegna þess hve ódýrar þær eru.
Með ferðinni fylgja tjald- og rútu-
ferðir um landið og þetta allt til
samans kostar aðeins 5900 kr. Ef
20 manns eða fleiri ferðast saman
er veittur hópafsláttur. Reynslan
af þessum ferðum hefur verið
mjög góð, og kemur oft fyrir að
sömu hópamir fari aftur og aftur
til sömu staðanna, og koma alltaf
jafn ánægðir til baka.
Helstu ferðirnar hjá Atlantic
eru hópferðir til Mallorka, Mið-
Evrópu og I haust verður einnig
boðið upp á ferðir til Miami
Beach i Bandarikjunum. Mall-
orka-ferðirnar bjóða helst upp á
kvöld- og dagsferðir um ná-
grennið, sól og sumar, góðan mat
og góðar strendur. Hótelgisting
og uppihald er innifalið i kostnaði
sem er ca. 6860 kr. i 3 vikur.
Reynslanafþessum ferðum hefur
verið mjög góð, og engar kvart-
anir hafa borist um þessar ferðir.
Helstu ferðirnar sem Orval
býður upp áeru til Luxemburg og
Þýskalands. Hótelgisting er ekki
innifalin i kostnaðinum sem er
u.þ.b. 5200 kr. en járnbrautar-
ferðir eru innifaldar og er þá
mikið farið með lestum til ann-
arra landa. Boðið er upp á marga
skemmtistaöi og góð veitingahús.
Unglingar taka mikið með sér
tjöld i ferðirnar og tjalda þá á
tjaldstæðum f London og ferðast
mikið á puttanum. Boðið er
upp á hópafslátt i ferðirnar sem
eru mjög vinsælar og aldrei hefur
verið kvartað undan þeim.
Hjá Ferðamiðstöðinni fengust
þær upplýsingar að þeir heföu
ferðir fyrir ungt fólk til Benidorm.
Hægter aðfá tvenns konar feröir
fyrir farþega;i fyrsta lagi 24 daga
ferð með hótelgistingu, en án
fæðis.sem kostar u.þ.b. 5900 kr. 1
öðru lagi er hægt að fá ferð með
fæði og hótelgistingu. Gisting I
Mont Park hótelinu, sem er mjög
nálægt hreinum og góðum bað-
ströndum, diskótekum, golf-
völlum og fleiru til skemmtunar,
kostar með fæði og ferðum 9160
kr. Erfitt var að dæma um
reynsluna af þessum 150 manna
hópi í hverri ferð en engar kvart-
anir hafa borist frá þeim.
Þetta var það sem ferðaskrif-
stofumar höfðu að segja við
spumingum okkar.
Berglind, Berglind og Berglind
nemendur I starfskynningu.
Ungt fólk skoðar
útsýnið á Mallorka.
Skyldi þessi maöur vera að drekka tfskudrykk?
Útsöluprisar ekki lengur við lýði:
Enginn tískudrykkur
Kvöld nokkurt i sfðustu viku
braut Spyrillodd af oflæti sinu og
skrapp á öldurhús. Vinnufélagar
hans höfðu sagt honum, aö enginn
væri maður með mönnum nema
hann dytti I það að minnsta kosti
einu sinni i viku. Þá verður mað-
ur frjáls eins og fuglinn, sögöu
þeir, o.s.frv. Þú biður bara um
einn gráan á barnum og þú átt
heiminn.
Eg ætla að fá einn gráan, sagði
Spyrill við barþjóninn, þegar
hannkomst loksins að, eftir tölu-
verða pústra og stimpingar, svo
oft lá við, aö hann hætti við allt
saman og færi heim.
Einn gráan segir maðurinn,
sagði barþjóninn, og hvaða grái
mætti það svo vera? Vodki,
Brennivin, Viski, Gin, Campari,
Romm, Kláravin? Hvaö var það?
Spyrill kunni ekki skil á þeim
tegundum, sem barþjónninn
bauö upp á, og ákvaö þvi að
draga sig I hlé og fylgjast með
þeiin, sem vissu greinilega hvað
þeir vildu. Slðan ætlaði hann að
kaupa þanndrykk, sem mest væri
keyptur; tiskudrykkinn.
Maðurinn við hliðina á honum
bað um Brennivln I kók, næsti um
Brennivín I vatni. Þá kom ung
stúlka, sem bað um Campari i
soda og önnur um það sama,
nema I vatni. Næsti maður bað
um Viskl, on the rocks, og þar
næsti um Romm I kók. Svo kom
enn annar og bað um þurran
Martini og konan hans bað um
Gin I greip.
Nú var úr vöndu að ráða. Allt I
kring voru gestir að komast I
jólaskap. Það gerir brennivinið,
sögðu vinnufélagarnir. Allir virt-
ust vera að hlæja, eða i það
minnsta brosa,og töluðu hver I
kapp við annan. Allir nema Spyr-
ill. Hann þagði og braut heilann
um hvaða drykk hann ætti að fá
sér.
Ég get ekki veriö svona I allt
heila kvöld, sagði hann við sjálfan
sig. Annaðhvort fer ég heim, eða
ég spyr barþjóninn um tlsku-
drykkinn.
Hver er tlskudrykkurinn hjá
þér núna, áræddi hann aö spyrja
barþjóninn.
Enginn. Hér er enginn tlsku-
drykkur. Hingað koma frjálsir
menn, sem hugsa sjálfstætt og
drekka það, sem þeim finnst best
eiga við hverju sinni. Tlsku-
drykkir helgast bara af útsölu-
prísum i Rikinu. Sá timi er löngu
liðinn. Hvað má bjóða herranum?
Mér sýnist þú llta Campari-og-
i Ríkinu
soda-lega út, eða kannski færi Gin
þér betur.
Enginn tlskudrykkur?
Nei. Þvl miður. Hver er næst-
ur?
Spyrill fór heim, niðurbrotinn
maður, og hætti að stunda vinnu
sina.
Ég get ekki horft framan i
vinnufélagana eftir þetta. Enginn
tiskudrykkur.
Útsölurnar eru löngu búnar,
enginn tiskudrykkur.
-Sp.
Sölusýning á notuðum
maaa bíium
frá 10-4 alla laugardaga
Nú geta allir verið sérfræðingar í því að
velja og kaupa notaðan bíl.
Þiö athugiö útlit bílsins, ástand hjólbaröa og annaö sem sést,
og vió ábyrgjumst þaó sem ekki sést.
Tryggiö góó og örugg viöskipti, veljiö notaðan MAZDA BÍL MEÐ
6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ. Vió erum eini aóilinn á landinu sem veitir
ábyrgö á öllum notuóum bílum, og tryggir þannig öryggi í vió-
BILABORG HF.
Smiöshöfða 23, sími 812 99.