Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 16.04.1982, Qupperneq 3

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Qupperneq 3
3 HezlrjPirpn<=rh irinn Föstudagur 16. april 1982 sama rúmlestamagn er mælt meö leyfinu, annars ekki. Þeir Niels og Ólafur voru tiðir gestir i sjávarútvegsráðuneytinu þessa daga og vikur. þeir bentu hvað eftir annað á umsókn sina, þar sem stóð skýrum stöfum að þeir hefðu verið eigendur Sæ- hrimnis að fullu og hefðu auk þess átt helminginn i Fálkanum. Þeir fullyrtu að Sæhrimnir hefði verið 120 tonna bátur, ekki 87 tonna eins og skráning sagði til um. Fálkinn var einnig sagöur stærri en 59 tonn. Þeir fullyrtu einnig við sjávarútvegsráðherra, að Kol- beinn Gunnarsson sem átt hefði hinn helminginn i Fálkanum, ætl- aði ekki i útgerð framar. Aldrei voru þeir beðnir um sannanir fyr- ir eignaraöild sinni að skipunum frekar en venja er . Enda sagði sjávarútvegsráðherra þegar far- ið var að fjalla um máiið i fjöl- miðlum: „Þeirri reglu hefur allt- af verið fylgt að trúa útgerðar- mönnum. Þeir hafa sent inn skrif- lega umsókn og þeir hafa aldrei verið beðnir um að sanna eða staðfesta að þeir eigi skipin, manni hefur bara aldrei dottið það i hug, og það hefur heldur aldrei komið upp að það væri rangt.” Bæöi skipin í eigu umsækjanda, skrifaöi s/avar- iítvegsráöherra Rétt fyrir áramótin sendi sjávarútvegsráðuneytið bréf til viðskiptaráðuneytisins, þar sem sagði meðal annars, að mælt væri með umsókninni þar sem bæði Fálkinn og Sæhrimnir sem hefðu verið i eigu umsækjendanna, hefðu verið teknir úr notkun á ár- inu. Allt virtist klappað og klárt til að ganga frá kaupunum. En þá kom fram á sjónarsviðið Kol- beinn Gunnarsson. Hann sagði ráðuneytismönnum frá að hann hefði verið eigandi Fálkans, ekki Niels Arsælsson. Um sama leyti berst sjávarútvegsráðuneytinu annað bréf frá viðskiptaráðu- neyti, þar sem óskað er eftir stað- festingu á umsögninni. Nú voru Steingrimur og hans menn i vanda — og þá ekki siður Niels og Ólafur, þvi einmitt þennan sama dag áttu þeir aö borga fyrstu greiðslur til ensku útgerðarinnar. Þegar hér er komið sögu er komið fram i mars. Starfsmenn sjávar- útvegsráðuneytisins voru ekki á eitt sáttir um hvernig ætti að bregðast við þegar ljóst væri að ráðuneytið hafði verið trakterað á lygum og hálfum sannindum. Það varð þó úr, að Steingrimur stað- festi meðmæli sin — en batt stað- festinguna að þessu sinni ekki við eitt skip eða annað. Leyfi var svo gefið út á nafn þeirra ólafs Ingimarssonar og Nielsar Arsælssonar til að kaupa umræddan togara frá Englandi. En svo hefur komið i ljós, að þar er heldur ekki allt á þann hátt sem látiö hefur veriö i veðri vaka. Um miðjan febrúar var stofnað hlutafélagið Fjarðarskip. Hlutafé var ákveðið 1.3 milljónir króna og skiptist þannig: Ársæll Egilsson (faðir Niels- ar) :51% Ólafur Ingimarsson: 18% Langeyrih.f., Hafnarfirði: 14% Islenska umboðssalan h.f., Reykjavik: 14% Steindór Andersen (mágur Nielsar): 3% „Eigandinn” ekki eigandi Niels Ársælsson, væntanlegur skipstjóri á Einari Benediktssyni, annar þeirra sem fékk leyfi til að flytja skipið til landsins, er þann- ig ekki hluthafi i Fjarðarskipi h.f. Hann er heldur ekki i stjórn fyrir- tækisins en er hins vegar fram- kvæmdastjóri og prókúruhafi. En hvaða fólk er þá þetta, sem á tæpan þriðjung i skipinu? Fyr- irtækin Langeyri h.f. og Islenska umboðssalan h.f. sameinast i ein- um manni: Bjarna V. Magnús- syni, stjórnarmanni i Fjarðar- skipi, og stjórnarformanni i Langeyri og Islensku umboðssöl- unni. Framkvæmdastjóri Lang- eyrar h.f. Björgvin Ólafsson, er varamaður i stjórn Fjarðarskips h.f. og það er Langeyri h.f. sem mun kaupa aflann af Einari Benediktssyni BA-377 næstu þrjú árin. Bjarni V. Magnússon er æsku- félagi Tómasar Árnasonar, við- skiptaráðherra, og „eyrnamerkt- ur” framsóknarmaður. Það var þvi ekki óeðlilegt, fannst okkur, að spyrja Bjarna hvort hann hefði beitt vinfengi sinu við ráðherrann til að knýja á um að leyfi fengist fyrir innflutningi togarans. Hann kvað það af og frá: „Ég get sagt þér alveg eins og er”, sagði Bjarni i samtali við blaða- mann Helgarpóstsins, „að hvorki Langeyri né Islenska umboðssal- an eyddu svo mikið sem einu orði til aö ræða málið við ráðherrann. Leyfið fékkst ekki fyrir nokkur áhrif frá okkur”. „Þeir voru meö leyfiö í höndunum” Bjarni sagði að Langeyri sem á sinum tima keypti aflann af Fálk- anum, hefði ekki komið inn i myndina fyrr en eftir að leyfi fyr- ir togarakaupunum var fengið. „Þeir voru með leyfið i höndun- um, strákarnir,” sagði Bjarni, ,,og vantaði aðstoð til að ná skip- inu heim. Hvernig aðstoð? Ja, er um nokkuð nema það venjulega að ræða, fasteignaveð og trygg- ingar. Annars tryggir þetta skip sig sjálft, útgerðin á þvi á undir öllum eðlilegum kringumstæðum að vera trygg” Niels vildi litið ræða málið, þegar leitað var til hans, sagði vinskapinn við Langeyri og Is- lensku umboðssöluna vera bæði gamlan og nýjan. — En hvernig voru fjármögnuð þessi 33%, sem Englendingarnir lánuðu ekki? spurðum við. „Það var eigið fé”, svaraði Niels Arsælsson. Hann sagðist telja nóg hafa verið ritað og rætt um „allt þetta mál. Og það verður ekki upplýst i fjölmiðlum ef út i það fer. Þaö verður gert annars staðar.” Hann vildi ekki tala nán- ar um hvað hann átti við. Niels sagði i viðtali við Timann 6. april sl„ og raunar áður i sjávarútvegsráðuneytinu, að Sæ- hrimnir hefði verið 120 tonn en ekki 87 og að Einar Benediktsson væri 240 tonn en ekki 311. Sæhrimnir „var rangt mældur”, sagði Niels i Timaviðtalinu. Rétt- mæling á honum var 120 tonn. Það sést á samanburði við önnur sambærileg skip.” Og um Einar Benediktsson sagði Niels i sama viðtali að „samkvæmt islenskri mælingu” væri skipið ,,á bilinu 250—300tonn”. „Buii”, segir sigling am álastjóri Helgarpósturinn spurði Hjálm- ar Bárðarson siglingamálastjóra rikisins hver væri munurinn á is- lenskri mælingu og útlendri og um þá fullyrðingu Nielsar að Sæ- hrimnir hefði verið rangt mæld- ur. „Þetta er bull”, sagði Hjálmar. „Mælingarnar eru gerðar eftir alþjóðlegum reglum i samræmi við Oslóarsamþykktina svoköll- uðu frá 1965.” Siglingamálastjóri sagðist vera að senda Timanum athugasemd vegna þessara röngu fullyrðinga Aðalatriði hennar væri i niðurlaginu, þar sem segir: „Siglingamálastofnun telur þvi rétt að fram komi, að stærð m.s. Sæhrimnis hefur aldrei verið 120 brúttólestir og þá gildir einu hvort skipið væri mælt hérlendis eða erlendis.” Við bárum þetta undir Niels. „Hann er sjálfur með bull”, sagði Niels. „Það á að mæla togarann niður og það er bara djöfulsins lygi að þetta sé einhver vitleysa hjá mér”. Þá bárum við það lokum undir hann þá staðhæfingu Kristjáns Ragnarssonar, formanns Lands- sambands islenskra útvegs- manna, að Einar Benediktsson samrýmdist ekki „á nokkurn hátt okkar kröfum” til fiskiskipa. Kristján sagði að til dæmis sé ekki gert ráð fyrir „nema niu eöa tiu manna áhöfn og þarna er verið að gera ráð fyrir að taka upp allt annað vinnufyrirkomulag heldur en tiðkast hefur á skuttogurum okkar og við höföum samiö um. Það er gert ráð fyrir að taka upp miklu meira vinnuálag.” „Hann lýgur þessu”, sagði Niels. „Aðstaðan hjá okkur verð- ur ekki lakari en annars staðar — ef ekki bara betri.” Trúnadarmál Tómasar Það á væntanlega eftir að koma i ljós. Aður en skipið fær haf- færnisskirteini verður að gera á þvi talsverðar breytingar að kröfu Siglingamálastofnunar, alls 32 atriði, flest minniháttar en nokkur stórvægileg og kostnaöar- söm. Þegar HP-menn komu i Hafnarfjarðarhöfn i gær var fjöldi manna um borð i Einari Benediktssyni og sögðu að vel miðaði áfram. Þegar breytingun- um hefur verið lokiö verður skipiö mælt aftur og þá verður endan- lega ljóst hver stærð þess er I brúttórúmlestum. Lagfæringarn- ar gætu eitthvað lækkað mæling- una úr 311 tonnum. Tómas Arnason viðskiptaráð- herra er nú i útlöndum og ekki væntanlegur heim fyrr en eftir helgi. Það hefur þvi ekki tekist að fá upplýst hvað „nýtt” þarf að koma fram I málinu svo hann taki málið til endurskoðunar. Og þeg- ar blaðamaður Helgarpóstsins spurði Atla Frey Guðmundsson, deildarstjóra I viðskiptaráðu- neytinu og ritara langlánanefnd- ar, sem veitir leyfi til erlendrar lántöku, hvort allt væri i lagi með að aðrir aðilar hefðu flutt skipiö til landsins en hefðu fengið leyfi til þess, svaraði hann: „Þetta er trúnaöarmál milli ráðherrans og viðkomandi aðila. Ég verö að visa öllum spurning- um beint til ráðherrans.” líf og fjör allan sólarhringinn Rimini - einn vinsælasti sumarleyfisstaöur Evrópu - hefurá skömmum tíma unniö hug og hjörtu íslendinga á öllum aldri. Vinsældir þessa óviöjafnanlega baðstaðar byggjast ööru fremurá því margfræga lífi og fjöri sem þar er stöðugtað finna, gnægð af spennandi ævintýrum fyrir börn og fullorðna ásamt fullkominni hvíldar- og sólbaðsaðstöðu sem alla heillar. Margbreytilegt mannlíf í aðlaðandi umhverfi er það fyrsta sem vekur athygli þeirra á Rimini. Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir og næturklúbbar skipta þúsundum og alls staðar er krökkt af kátu fólki. Endalaus ævintýri íyrir böm og fulloróna Vegna sérstöðu sinnar meðal sólbaðsstaða Adríahafsins laðar Rimini árlega að sérfjölda listamanna hvaðanæva að. Leiksýningar, hljómleikar og hvers kyns skemmtilegar uppákomur eru því daglegir viðburðir - jafn- vel þegar þeirra er síst von. Sérlega ódýrirog góðirveitingastaðir ásamt fyrsta flokks íbúðum og hótelum fullkomna ánægjulega dvöl þína á Rimini. Raulreyndir fararstjórar eru ætíð til taks og þenda fúslega á alla þá fjölmörgu mögu- leika sem gefasttil að njóta lífsins í ógleymanlegu umhverfi. • Tivolí • Skemmtigarðar • Sædýrasöfn • Leikvellir • Hjólaskautavellir • Tennisvellir • Mini-golf • Hestaleigur • Co-cars kappakstursbrautir • Rennibrautasundlaugar Adriatic Riviera of Emilia - Romagna (Italy ) Rimini Riccione Cattolica Cesenatico Gatteo a Mare San Mauro a Mare Misano Adriatico Lidi di Comacchio Savignano a Mare Ðellaría - Igea Marína Cervia - Milano Marittima Ravenna e le Sue Maríne Heillandi skoöunarferöir Róm - 2ja daga ferðir Feneyjar - ,,Hin sokkvandi borg Flórenz - listaverkaborgin fræga San Marinó - „frímerkja-dvergrikiö o.fl.o.fl. Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.