Helgarpósturinn - 16.04.1982, Side 5

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Side 5
5 hnlrjnrph^ti irinn Föstudagur 16. apríi 1982 Ellington 22 útgófum áf DeepSouth svitunni sem til er. Ellington tók hana snemma af efnisskránni utan siöasta kaflans: Happy Go Lucky Local en það.verk varð uppistaðan f vinsælum slagara sem Jimmy heitinn Foster setti saman: Night Train. Agæt út- gáfa af The Perfume Suit er á Jazz Live skifunni: Duke Ell- ington og V-Disc og er pianó- trióið stórkostlegt: Dancers in Love eða Stomp for Beginners. V-Disc skifurnar voru 12 tommu 78 snúningaplötur sem gerðar voru fyrir bandari'ska herinn og eru ekki fáanlegar nema i ólög- legum endurútgáfum. Það er ýmislegt fleira en Ellington að finna á þessum skifum.Fats Wallerskifan: 1943 (BJL 8031) er stórkostleg og þar má finna si'ðustu upptökur Wallers Your Feet Too Big og Handful of Keys frá þvi i desem- ber 1943. Þetta var tekið upp i Los Angeles rétt áður en hann lagði uppi sina siðustu ferð en hann lést i Kansans City 15. desember þetta ár. A Queen- disc má fá sjaldgæfar útgáfur með Basíe bandinu frá 1939-41 ma. 9:20 Special og Rockin’The Blues. A þvi merki er lika geggjuð skifa með hinum eina sanna Louis Armstrong frá 1948 þegar Earl Hinesvar á pianóiði stjörnubandinu. Þar syngur Louis ma. Lasy River eftir Hoagy heitinn Carmichel og Fatha Hines rúllar upp búggan- um i St. Louis. A Q-016 er Benny Goodman með stjörnufans: Billy Holliday, Count Basie, Cootie Wiliiams, Jack Teagard- en, Charlie Christian svo ein- hverjir séu nefndir. Þá kom boppið og Dizzy stórsveitin blæs Cuban Be, Cuban Bop á Q-019. Næsta skref var kúlið og á skif- unni Miles Davis And His Tuba Band finnum við verkin sem voru undanfari Birth of The Cool. Það má lengi telja gimstein- ana frá Italiu. A Jazz Life 8025 má finna tóna og tal úr kvik- mynd Bessie Smith: St. Louis Blues. A BJL 8037 trylla þeir saman saxafónjöfrarnir Cole- man Hawkins og Lester Young og á BJL 8007 er sá gleymdi meistari Lennie Tristano i félagsskap Konitz og annarra lærisveina. Svo skal að lokum nefnd skifan þarsem John Coltrane steig fyrstu skrefin i böndum Dizzy, Miles og Johnny Hodges. Það er ævintýralegt um að lit- ast i Gramminu um þessar mundir. Rokkrimararl9 prédikað gegn einu eða neinu né lofsungið. En sjálft valið á við- fangsefninuogframsetning efn- isins bera með sér skilning og að vissu leyti virðingu fyrir þvi. Tónlistaratriðunum, sem eru uppistaða myndarinnar, er skipað niður af furðu mikilli fjölbreytni, bæði hvað varðar staðsetningu þeirra, — bilskúr- ar, kanaklúbbar, Borgin, skól- ar, félagsmiðstöðvar og svo framvegis — og framsetningu. Myndvinnslan er i senn misjöfn að gæðum og mismunandi að aðferð, enda lögðu margir hönd á plóginn i töku og klippingu, sem er bæði kostur og galli. Ekki er þar allt fyrir minn smekk, en eftirminnilegustu atriðin hvað myndútfærslu varðar og reyndar tónlist lika voru lag Q4U i æfingalókali, hin magnaða en ósmekklega uppá- koma Bruna BB með hænsn: slátruninniog loksseinna atriðið með Þey sem er eina verulega tilraunin til sérstakrar leik- rænnar túlkunar i Skonrokks- stil. Einmitt eitt slikt atriði er alveg nóg, og ánægjulegt hve það er snöfurmannlega af hendi leyst. Einnig kom grúppa eins og Tappi tikarrass mér tónlist- arlega verulega á óvart, en mér hefði hins vegar þótt tillitssemi við óinnvigða áhorfendur að nöfn hljómsveita kæmu fram með einhverjum hætti. Oll vinnsla þessarar myndar, ekki sist hin fundvisa tökustjórn Arai Kristinssonar og oft og einatt prýðileg hljóðupptaka er til fyr- irmyndar, og lýsir ótviræðum metnaði og getu þessara einka- framtaksmanna. Ef ég á að nefna eitt atriði sem klikkar, þá er það lokakonsertinn með Egó á Lækjartorgi. Hann er ekki það „grandfinale”, sem myndin og ókrýndur konungur islenskra rokkara, Bubbi Morthens.eiga skilið. Af viðtalstengingunum sætir frásögn söngvara unglinga- hljómsveitarinnar Sjálfsfróun- ar mestum tiðindum. Það er í senn sjokkerandi og dapurlegt, þótt það sé lika fullt af sakleys- islegum húmor. Akvörðun kvik- myndaeftirlitsins um að banna myndina vegna þessa viðtals innan 14 ára og meina þannig sjálfu viðfangsefni hennar að- gang er óverjanleg. Jafn gáfu- legt væri að banna dagblöðin innan 14 ára. Hvert sem litið er kemur sniff og notkun vimu- gjafa til umræðu og unglingar hafa þetta allt i kringum sig. Þau verða ekki vernduð fyrir þessum hættulegu efnum með þvi að banna frásögn af þeim i einni kvikmynd. Þau verða ekki vernduð með bönnum yfirleitt. Þau verða vernduð með fræðslu. Maður héit að það sjónarmið væri fyrir löngu orðið viðurkennt. Þar fyrir utan er þessi ákvörðun hreint tilræði af hálfu opinberra aðila við mynd sem á sama tima er hunsuö af öðrum anga þess opinbera hvað fjárhagsstuðning varðar. Þess- ari ákvörðun verður að breyta. Vonandi hafa viðkomandi manndóm til þess. —AÞ. Hyllingar 22 fyrirfólks á frumflutningi Matt- heusarpassiunnar á föstudaginn langa. Fremsti bekkur var al- auður, þar sem venjulega situr forseti, ráðherrar og aðrir pót- intátar, þegar stórmæli eru á ferð. Liklega hafa ráðamenn Pólýfónkórsins ekki sent þeim miða og ekki talið þá of góða til að borga undir sig vegna litils skiinings á menningarstarfi kórsins. Æðimörgum mun miður ljóst, hverskonar tónform passia er. í sem einföldustum oröum er það: 1) píslarsaga Jesú i viðeig- andi guðspjalli er snillimælt eða tónuð af söngvara fagurlegar en flestir prestar gera 2) ariur og kóralar koma i stað predikunar eða annarrar útleggingar textans. Ef menn hafa textann hjá sér, er mjög auövelt að fylgjast með gangi mála, verða aldrei utan- gátta og njóta verksin s enn bet- ur en með þvi aö hlusta á músik- ina eina. Þá eru 3 1/2 timi ekki lengi að liða. Til þess var text- inn lika hafður i yfirlætismikilli efnisskrá, enda kórinn 25 ára. En varla hefur sá vandláti stjórnari Ingólfur Guðbrands- son séð um hana að öllu leyti, þvi að bæði voru ófáar villur i þýska textanum og stundum vantaði i ritningargreinar, þó ekki meira en svo, að komist hefði fyrir i eyðunni á öftustu siðu. Það á aðlesa prófarkir vel. Flutningur þessa risaverks tókst hinsvegar stórvel, og skal sleppt að tfunda ágæti hvers og eins þeirra fjölmörgu aðila, sem við sögu komu. Ugglaust er margt hægtað gera öðruvisi eða betur i það óendanlega, þegar um slikt stórvirki er að ræða. En það breytir á engan hátt þvi meginatriði, að hér var stór- fenglegt afrek innt af hendi. Og þarna var áreiðanlega ekki ver- ið að hylla neitt annað, þegar staðið var upp til að klappa i lokin. Nokkur atriði i efnisskránni vekja hinsvegar spurningar. Hversvegna segir Ingólfur, að stóru kórverkin hafi „aðeins átt einn málssvara og túlkara hér á landi, Pólýfónkórinn”? Jafnvel þótt hann telji sinn kór bestan, er óþarfi aö gleyma t.d. Robert A. Ottóssyni og Filharmoníu, sem frumfluttu m.a. sálumess- ur Brahms og Verdis og Missa solemnis Beethovens að ógleymdri Niundu, eða Viktor Urbancic, sem m.a. færði Jó- hannesarpassiuna upp fyrir 30 - 40 árum. Og hverjir eru þessir „nýju spámenn”, sem „hafa kvatt sér hljóðs, sumir með nokkrum fyrirgangi, enda alltaf framboð af fólki sem vill frelsa heiminn”? Og „kannski tekst ráðsmönnum tónlistarinnar á Islandi” með aðstoð þeirra „að koma i veg fyrir, að svo margir nái að stilla saman raddir sinar i réttum hljómi”? Er átt við menn á borð við Garðar Cortes og Jón Stefánsson eða Bubba Morthens? Popp 22 gegn i Bandarikjunum. En það hefur hinsvegarkomið æbetur i ljós með hverri nýrri plötu hljómsveitarinnar að hér er að- einsum að ræða popphljómsveit af léttustu gerð, sem hefur lag- að sig algerlega að smekk þeirra er ráða gangi vinsældar- lista vestan hafs. Þeirra sem verslaistóru verslununum, sem segja til um hvað fer á lista. Verslununum sem yfir28 ára og undir 15 ára versla i. aa.oo TIMBUR BYGGINGAVÖRUR Flísar • Hreinlætistæki • Blöndunartæki • Málningarvörur • Verkfæri • Baðteppi • Baðhengi • Baðmottur. Harðviður • Spónn • Spónaplötur • Viðarþiljur • Einangrun •Þakjárn • Saumur • Fittings Ótrúlega hagstæðir greiðsluskilmálar allt niður í 20% útborgun og eftirstöðvar allt að 9 mánuðum. Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8-18 O' Föstudaga frá kl. 8—22. Laugardaga kl. 9—12. Ol BYGGINGAVÖRUR HRINGBRAUT119, SÍMAR10600-28600. Munið aðkeyrsluna frá Framnesvegi Fyrirlestur um mál- efni þroskaheftra Karl Griinewald frá Socialstyrelsen i Stokk- hólmi, mun halda fyrirlestur i boði félagsmála- ráðuneytisins og heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins að Hótel Esju mánudag 19. april kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnist: Omsorg for psykisk udviklingshæmmede (Málbestræbelser — Ideologi). Allir eru velkomnir.” Framkvæmdastjóri Helgarpósturinn óskar eftir að ráða framkvæmda- stjóra. Umsóknir skal senda í pósthólf 320 Reykjavik. Jie/garpósturinn Síðumúla 11 Simi 81866 OLL GARÐYRKJU- VERKBERI Garðsláttuvélar Heykvíslar Arfaklórur Stungugafflar Garðslöngur Slöngutengi Garðhrífur Stunguskóflur Garðúðarar Hnausagaflar Hjólbörur Plöntuskóflur Hekkklippur Kantskerar __ Grasklippur Undirstunguspaðar RR BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.