Helgarpósturinn - 16.04.1982, Qupperneq 13
be/garpásturinn Föstudag
ur 16. apríl 1982
Laukur er lystauki
Prósaljóö úr bók Ericu Jong,
„Fruiits and Vegetables”, i ör-
litib styttri þýöingu.
Nú hugsa ég enn um laukinn...
Hvernig bleikbrúnt hýöiö af-
hjúpar grænleita kúlu, snauða
einsog dauöa plánetu, hála sem
gler og nær dýrslega lyktandi.
Ég hugleiði hæfileika hans til aö
kalla fram tár, tilhneigingu
hans til sjálfsskoöunar, meö þvi
aö flá sig lag fyrir lag, i leit aö
hjartanu, sem er aöeins annaö
hörundslag, en dýpra og
grænna... Siöan hugsa ég um ör-
væntingu þegar laukurinn leitar
sálar sinnar og finnur aöeins
hvert hörundslagiö af ööru...
Hann er ekki sjálfumglaður
einsog almúgakartaflan. Né
töfradis einsog epliö. Né grobb-
inn einsog bananinn. Heldur
hógvært, óframfærið grænmeti,
spurult, innhverft, sem fláir
sjálftsig... Ég llt á laukinn sem
eilifan utangarösmann, barniö i
miðið, hugsuðinn hrygga i kon-
ungdæmi grænmetisins. Hylltur
I Frakklandi aðeins (annars
þögull stuðningsmaður súpu og
kássu), lltt elskaður af eigin
verðleikum — engin furða að
hann kallar fram tár okkar! Þá
hugsa ég aftur til þess hve hýöið
likist pappir, hvernig sál og hör-
und renna saman I eitt, hvernig
hvert lag afhjúpar hjarta sem
siöan breytist I hörund...
t fyrsta pistli Matkrákunnar
var fjallaö um kynngikraft hvit-
lauksins. En laukættbálkurinn
er stór, I dag munu vera
ræktaöar yfir 300 lauktegundir i
heiminum. Þar af þekkjum við
tslendingar best hvitlauk,
púrrulauk, perlulauk og
zittauer-laukinn eða bara Lauk-
inn, en i þessum pistli er ætlunin
aö taka hann fyrir. Hann nýtur
að minu mati ekki nægilegrar
viröingar, þ.e. hann er fyrst og
fremst „þögull stuöningsmaður
súpu og kássu” eins og Erica
Jong kemst aö oröi I prósaljóöi
sem hér fær að fljóta með. En
vist er um að hægt er að malla
firnagóða rétti þar sem laukur
er aðaluppistaðan.
Aflgjafi frá
örófi alda
Laukur er einhver elsta
ræktaða matjurt i sögu mann-
kyns. Alitið er að hann sé upp-
runninn i Mið-Asiu. Þegar á
stórveldistima Babýlóniu-
manna fyrir u.þ.b. 5 þús. árum
var ræktaður einhvers konar
laukur við Persaflóa. — Fjaliað
er um lauk I kinversku
lækningabókinni „Pen ts’ao”
sem var rituð fyrir u.þ.b. 4 þús.
árum.
Laukurinn kemur og við sögu
bæði i fornum goðsögum og
Gamla testamentinu.
Forn-Egyptar voru t.a.m. mikl-
ar laukætur og álitu hann
heilaga jurt. I frásögn
Móse-bókar af ferðalagi
Israelsmanna frá Egyptalandi
til Landsins helga, segir að þeir
hafi möglaö viö Móse yfir þvl að
hann skuli hafa leitt þá frá
vatnsmelónum, púrrum, hvit-
lauk og lauk út I eyðimörkina
snauöu...
Laukur er mjög auðugur af A,
B og C vitamlnum, en einnig
kalsium og fosfór. Þar að auki
inniheldur hann ýmsar efna-
samsetningar sem hafa marg-
visleg áhrif á likamsstarfsemi
okkar. Laukolian er t.d. mjög
lystaukandi og þvi er tilvalið aö
nota lauk i forrétti.
Hvers kyns laukur er mjög
góður fyrir meltinguna. —
Enskar rannsóknir vilja vera
láta að laukneysla minnki hætt-
una á blóötappa. — Fiturikar
máltiöir, sem hafa i för með sér
aukaálag fyrir maga og þarma
eru auðmeltanlegri ef laukur
fær aö fljóta með, þvi hann hef-
ur góö áhrif á meltingarensim-
in.
En almennt má segja að lauk-
ur og krydd hafi góð áhrif á
blóðrásina og auki magasafann
og geti með þvi móti dregið að
hluta til úr skaðsemi þungra og
fiturikra máltiða.
Talandi um magasafa og lauk
I sömu andrá koma mér i hug
viðskipti Þormóðar Kolbrúnar-
skálds og læknisins, eftir aö
Þormóöur hafði barist með
Olafi helga að Stiklastöðum og
hlotiö banasár af. En i Heims-
kringlu segir: „Hún (læknirinn)
hafði þar gjört 1 steinkatli,
stappaö lauk og önnur grös og
vellt þaö saman og gaf að eta in-
um sáru mönnum og reyndi svo,
hvort þeir hefði holsár, þvi að
kenndi af laukinum út úr sári
þvi, er á hol var. Hún bar að
Þormóöi bað hann eta. Hann
svarar: „Ber brott. Eigi hefi ég
grautsótt.”
Hetjan Þormóður kippti
sjálfurörinni úr hjartastað, „og
lágu þar á tágar á hjartanu
sumar rauöar, sumar hvitar og
er hann sá það, mælti hann:
„Vel hefir konungurinn alið oss.
Feitt er mér enn um hjarta-
rætur.” Siðan hné hann aftur og
var þá dauður.” Af þessari frá-
sögn getur maöur dregiö þá
ályktun, aö Olafur konungur
digri og hans fylginautar hafi
varla veriö neinar grænmetis-
ætur... en jafnframt að laukur
hefur snemma komið við sögu
norrænnar læknislistar.
Laukur er fyrst og fremst
notaöur sem krydd eða meðlæti
en oft er hann þó aðaluppistaða
rétta. Hér á eftir fylgja tvær
uppskriftir af frönskum lauk-
súpum, önnur er ætluö hvunn-
deginum, hin til hátiðabrigða.
Lauksúpur af þessu tagi eru
saösamar og þvi má alveg not-
ast við þær sem aðalrétt.
Og I næsta skipti sem þið
skerið lauk og sterkjan kallar
fram tár ykkar, reynið þá aö
hugsa um laukinn I anda Ericu
Jong og vitið hvort ykkur eykst
ekki þolinmæðin...
Lauksúpa
á la Marseillaise
Uppskrift fyrir 6:
6 laukar
2 msk. matarolia
150 g af rifnum óðals eða gouda-
osti
6 ristaðar brauðsneiðar
2 hvitlauksgeirar
1 bouquet garni (kryddvöndur)
eða söxuð steinselja, timjan og 1
lárviðarlauf
salt, pipar.
1. Afhýðið laukinn og skerið I
sneiðar. Afhýðiö hvitlauks-
geirana og merjið.
2. Hitið oliuna i potti og veltið
laukhringjunum upp úr henni
þar til þeir eru gulbrúnir. Þá
má gjarna strá örlitlum
sykri yfir þá. — Setjið að þvi
búnu hvitlaukinn út i saltið og
piprið og hellið út i 1 1/2 1 af
vatni. Setjið ennfremur
kryddvöndinn út i og sjóðið
við vægan hita I 15 min.
3. Kveikið á ofninum á meðan.
4. Hellið súpunni I eldfastar
skálar. Setjiö brauðsneiðarn-
ar undir yfirborð vökvans,
rifið ost yfir og bakið þar til
osturinn er orðinn gulbrúnn.
Lauksúpa til
hátíðabrigða
— Gratinée de fete
Uppskrift fyrir 6:
3 stórir laukar
50 g smjör
1 1/2 dl af þurru hvitvini
1.25 1 af kjötkrafti (eða sam-
svarandi magn af vatni og 2
súputeningar)
50 g gráðostur
1/2 vel þroskaður Camembert
3 msk. koniak, brandy eða
armaniak
salt og pipar
ögn af cayennapipar
u.þ.b. hálft snittubrauð
100-150 g af gouda eöa óöalsosti.
1. Steikið þunnt skorinn laukinn
i smjörinu þar til hann er
gylltur. Hellið hvitvini og
kjötkrafti i pottinn og sjóöið i
10 min.
2. Á meðan takið þiö skorpuna
utan af Camembert-ostinum,-
setjið i skál og hrærið saman
við hann gráöosti og koniaki.
Pipriö eftir smekk en saltiö
ekki. — Ristið brauðiö.
3. Setjið ostahræruna út i
súpuna og látiö krauma við
mjög lágan hita og hræriö i á
meðan. Bragðbætiö súpuna
með cayennapiparnum.
4. Hellið súpunni I eldfastar
skálar, setjið nokkrar snittu-
brauðsneiðar i hverja skál,
rifiö ost yfir og bakið.
Ef þið eigið ekki eldfastar
súpuskálar má allt eins baka
lauksúpuna i stórri eldfastri
skál.
Þess má að lokum geta að i
Frakklandi eru lauksúpur
stundum nefndar „sauve la vie”
eða lifsbjörg...
MATKRÁKAN
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur
„Hef alltaf verið
hálfgerður trúður’ ’
segir Rhubarb the Clown
Trúðurinn Rhubarb á einhjólinu
sinu. Passaöu þig að detta ekki
væni minn.
Rhubarb heitir hann og er trúð-
ur að atvinnu, hefur verið það i
ein átta eða niu ár, fæddur I Leeds
en býr i London og skemmtir Is-
lendingum um þessar mundir
með uppátækjum sinum. En
hvernig verða menn trúðar?
„Þetta er spurning, sem allir
bera fram og henni er hægt að
svara á marga vegu”, sagði Rhu-
barb. „Ætli mér sé ekki óhætt að
segja, að ég hafi alitaf verið hálf-
gerður trúður.
Það byrjaði allt á þvi, að ég fór
að taka þátt i tilraunaleikhúsi og
fór að læra spunatækni, lát-
bragðsleik og siðan trúðleik. Ég
komst siðan á það stig, að ef ég
ætlaði aðhalda þessu áfram, varð
ég að gerast atvinnumaður.”
A sýningu sinni hér leikur Rhu-
barb sér að boltum eða „gerir það
með þrem” eins og það heitir vist,
eða hét einhvern tima. Einnig
leikur hann sér að eldi, hjólar um
á einhjóli, litlu og stóru, fremur
töfrabrögð.er með látbragðsleik,
leikur sér með diska og leikur á
nefflautu svo eitthvað sé nefnt.
Til þess að geta verið góður
trúður, þarf viðkomandi að vera
sterkur persónuleiki, sagði Rhu-
barb.
„Égheld aðviðséum öll trúðar,
en það þarf að draga þann þátt
fram. Trúðurinn er sá, sem gerir
allt á vitlausan hátt.”
— Ég held, aö ég hafi séð ein-
hvers staðar, að trúöurinn sé i
raun sorgmæddur maður, er það
satt?
„Ég veit það ekki. Ég held, að
viö séum öll sorgmædd og öll
hamingjusöm, og trúðurinn er
eins og við. Fólk hefur sagt við
mig, að minn trúður sé sorg-
mæddur en hann getur lika veriö
hamingjusamur. Ef áhorfendur
eru ánægðir með það, sem hann
færir þeim, er hann ánægður, og
það getur veriö erfitt. En
áhorfendur geta hjálpað til við að
leysa vandamálið.”
Rhubard sagði, að það mikil-
vægasta i hans trúöarstarfi væri
aö skemmta áhorfendum, fyrir
það borguðu þeir. Ef eitthvaö
annaö geröist lika væri það gott.
Rhubarb helur nú verið hér i
rúma viku við skemmtanir og á
eftir aö vera hér annan eins tima.
Við erum ódýrari!
Póstsendum um land allt
Smiðjuvegi 14, sfmi' 77152