Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 16.04.1982, Qupperneq 17

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Qupperneq 17
Jielgarposturinn Föstudag ur 16. apríl 1982 17 að beriast við vindmyllur” — Kaffí drukkið með Eddu Björgvinsdóttur á Torfunni eftir: Pál Pálsson myndir: Jim Smart „Synd aO þú skulir ekki vera viöhaldið mitt. Hvaö er pottþéttara? Blaöamaöur aö taka viötal viö leikkonu! Vekur engan grun.” Sú sem mælir til mln þessi glaölegu orö er auövitaö Edda Björgvinsdóttir leik- kona. Viö sitjum viö tveggjamanna borö á eftirlætisveitingahúsi hennar, Torfunni, á laugardagseftirmiödegi. Og til aö standa mig i stykkinu býö ég aö sjálfsögöu uppá koniak meö kaffinu. „Bara kaffi fyrir mig takk” segir Edda. „Ég er ekkert I sósial- drykkjunni einsog er enda drakk ég svo litiö að þaö var eins gott aö sleppa þvi”. Glottir templarinn. „Þú ættir aö heyra þegar mér tekst verulega vel upp i bindindisræðunum — og sjá þegar mér er fleygt út úr hverju partýinu á fætur ööru hjá bestu vinum og ættingjum”. Nú hlær Edda dátt og dregur upp úr pússi sinu tvo veltilreykta pipusterti sem voru til skiptis mjög nálægt vörum hennar þaö sem cftir lifði dags. Og þar sem þaö er ekki vel gott að tendra I pipu með kertaljósi fékk hún lánaðar eldspýturnar minar. „Ég er al- ræmdur eldspýtustokkaþjófur”, glotti hún. „Alltaf með mörg búnt i veskinu, allt stolið frá vinum og vandamönnum”. Þaö er rétt að það komi fram að viö Edda vorum alltaf að fara útfyrir efnið. Heilu korterin fóru I vitleysishjal. Til dæmis I eitt skiptið, þegar við vorum komin miklu lengra en ailtof langt útfyrir efnið (málefni Alþýðuleikhússins, sjá siöarljtók ég eftir þvi að það var eitthvað i kaffinu minu, ein- hver flyksa. Edda, sem gefur sig út fyrir að vera spesialisti i aöskotahlutum i kaffi, handsamaöi bollann minn, gaumgæföi hann vandlega um stund og svo kom úr- skuröurinn: Rauökál. Þetta er rauðkál. En blessaður láttu engan vita, svo þú þurfir ekki að borga extra.” „Mikið lifandis skelfing er annars nota- legt að sitja hérna i huggulegheitum i stað þess að vera heima að naglhreinsa vegg- panelinn, lakka gólfin eða að minnsta kosti að passa krakkana svo eiginmaðurinn geti dundað sér við trésmiðarnar sem hann er auðvitað bölvaður klaufi við. Viö erum nefnilega að stahdsetja nýju ibúðina okkar. Svona á þetta að vera, kvenréttindakonan (semsagt: ekki jafnréttis....? aths. pp) sit- ur á Torfunni yfir kaffi og karluglan passar afleggjarana sina, lakkar og naglhreinsar, að ekki sé talað um kvöldmatinn, sem verð- ur að sjálfsögðu að vera tilbúinn þegar kvennaframboðskandidatinn kemur heim.” Edda hlær svo mikið að hún missir tvær eldspýtur oni kaffið mitt. Edda er nr.36 á kvennaframboðslistanum og skit- hrædd um að fljúga inn. — „Heldurðu að það séu ekki miklar likur á þvi?” spyr hún, opnar veskið sitt og þegar henni hefur tek- ist aö pranga inn á mig kvennaframboðs- happdrættismiða trúi ég ekki öðru en að þeir fjölgi borgarfulltrúum. — Hvað er annars karlremba, Edda? „Elskan min, karlremba er nánast hvar sem þú rekst á tvo af þessu skuggalega kyni samankomna. Ég held svei mér að hún gangi i erfðir. Tökum bara sem dæmi röfl i tveim körlum sem ég neyddist til að hlusta á i gær. — Þeir voru að tala um vin sinn sem varaðyngja upphjá sérog hvað þeirskildu hann gasalega vel. Kerlingin orðin krump- uð og feit en eins og allir vita þá verða kon- ur að lita út eins og fermingarstúlkur til æviloka, annars eru þær alls ekki gjald- gengar. Imyndaðu þér bara, þær fá kannski hrukkur og 90-60-90 málin riðlast, viðbjóðslegt!! Hvaða karlmanni er hægt að bjóða slikt? Jafnvel þó hann liti út eins og þurrkaður sveppur með istru, skalla og 3 undirhökur! Við Helga Thorberg vinkona min gerum okkur það oft til skemmtunar á mannamót- um að tala gagngert i niðrandi tón um þessa kalla sem eru farnir að siappast svo- litið og röflum endalaust um hvað það væri gaman að skreppa á Planið og kikja aðeins á lambakjötið svo veifum við klámblöðum i allar áttir af eintómum kvikindishætti. Karlmönnum finnst svo ruddalegt að heyra sin eigin orð úr okkar munni.” Strembin tilvera Eftir nokkra útúrdúra spurði ég Eddu: Afhverju velur maður leiklist að starfi? „Kunningi minn i London var spurður þessarar sömu spurningar og svaraði á þá leið, að hann hefði verið að hugsa um að verða arkitekt, jafnvel tannlæknir eða bara húsmóðir en komst að þeirri niðurstöðu aö með þvi að gerast leikari fengi hann tæki- færi til að leika þetta allt saman . Það má kannski lita svo á að leiklistin sé rétta starfið fyrir þá sem geta ekki ákveðið sig hvaðþeir ætla að verða”, hlær Edda. „Ann- ars mælir maður svo sem ekki með þessu starfi. Að vera leikari á lausu (freelance) getur verið mjög strembin tilvera en stór- skemmtileg þegar maður hefur nóg að gera.” — Sumir segja að leikarar séu svo yfir- borðslegir i framkomu, þú veist „sæl elsk- an” og allt það. ,,Mér finnst leikarar vera sérstaklega einlægt fólk” (Edda lemur i borðið til á- herslu og tannstönglarnir hrökkva upp úr stauknum). „Atvinna þeirra byggist á þvi að þeir gefi af sjálfum sér. Það er hluti af starfinu að leggja tilfinningar sinar i það sem maöur er að gera og maður verður að gjöra svo vel'ogtakaþvi þegar leikstjórinn segir: „viliu endurtaka þetta, þú hlýtur að geta gert betur, þetta var afleitt”. Og i staðinn fyrir að fara heim og gráta reyn- irðu bara aftur og aftur. Leikarar verða aö sýna hver öðrum þolinmæði, umburðar- lyndi og trúnað — og ef það er ekki upp- byggjandi...” Leikgagnrýnendur i sjoppur — Hvað finnst þér annars um innlenda leikhúsgagnrýni? Edda verður öskugrá i framan. „Ég vil nú tjá mig sem minnst um hana. Ég verð svo orðljót og kvikindisleg þegar ég fer að tala um gagnrýnendur að ég held að það borgi sig ekki. En auðvitað á maður ekki að vera að æsa sig þegar leikhúsgagnrýnendur eru annars vegar. Mér finnst bara svo leiö- inlegt þeirra vegna að þeir skuli ekki fá sér vinnu viðsitt hæfi, t.d. i sjoppu!” Við tökum gagnrýnendur út af dagskrá. — Hvernig plumar Alþýðuleikhúsið sig með allar þessar sýningar? „Nú, Alþýðuleikhúsið er einfaldlega á hausnum. Styrkir frá riki og bæ eru ekki i hlutfalli við þá-starfsemi sem þar ferfram. Semsagt, þrátt fyrir góða aðsókn og góðar sýningar, samanber bestu sýningu á norð- urhveli jarðar i dag: Don Kikóti, þá ná end- ar ekki saman og gera það aldrei nema til komi aukið fjármagn frá riki og bæ. Og til að kóróna allt saman þá erum viö bráðum á götunni þvi það á að rifa braggann i haust og hana nú’. ” — Hvað verður nú um hugsjónirnar? „Þú verður að athuga það Palli minn, að það lifir enginn af hugsjónastarfi. Það er kannski möguleiki að vinna kauplaust i Al- þýðuleikhúsinu i einhvern h'ma og þræla annars staðar fyrir brauði og mjólk en það getur maður ekki gert i mörg ár, ekki býr maður endalaust hjá góðhjartaðri ömmu sinniog étur hjá foreldrum og vinum, finnst þér það?” — Það finnst mér ekki. „Nei það fannst ömmu ekki heldur. Enda henti hún okkur út.” Nú hlær Edda rosalega og bætir svo við. „Nei nei, nú ýki ég aðeins. Hún hýsti okkur eins lengi og við þurftum. — Já,þetta með hugsjónaleikhúsið — fólk verður að fá laun fyrir sina vinnu, annað gengur ekki til lengdar.” — Lenda þá ekki allir i sama lifsgæða- kapphlaupinu? hverjar svo sem hugsjón- irnar eru? Lifsgæðakapphlaupið „Ef þú kallar það lifsgæðakapphlaup að hafa i sig og á, jú þá lenda sjálfsagt allir i þvi fyrr eða siðar. Annars held ég ekki Palli — ég þekki svo mikið af góðu leikhúsfólki, sem er ennþá uppfullt af baráttuanda eftir margra ára streð, jafnvel þó aö það hafi fengið ótal tækifæri til að setjast i hæginda- stólinn sinn og slappa af og láta aðra sjá um að halda lifinu i frjálsum leikhópum eins og Alþýðuleikhúsinu. Ég vil bara nefna sem dæmi fólk eins og Arnar og Þórhildi sem eiga þess kost að vera i föstu starfi við stóru leikhúsin en þeim er þaö kappsmál að Al- þýðuleikhúsið starfi og vilja leggja sinn vinnukraft i það, þrátt fyrir ótakmarkað vinnuálag og stöðugt öryggisleysi i fjár- málum sem þvi fylgir. Þetta er hugsjóna- fólk!! — svona er ennþá til.” — Hvað með pólitiskt hlutverk leikar- ans? „Já, hvað með það? Getur leikari verið öðruvisienróttækmanneskja? Ég veitekki hvað fólk er að gera i þetta starf ef það hef- ur ekki eitthvað að segja. — Einhverja skoöun á þvi hvað betur mætti fara i samfé- laginu og hugmyndir um hvernig eigi að breyta þvi. Þetta liggur svo i augum uppi, Palli minn!” — Segðu mér Edda,er hugmyndafræöi Alþýðuleikhússins eins róttæk og hún átti að vera i upphafi? „Ja — hugmyndafræðin er alltaf jafn rót- tæk. Enauðvitað höfum við oft dottið kylli- flöt i lágkúru og vesaldóm. Þú verður aö athuga að viðerum leikhús i mótun og þurf- um tima til að þróa okkar hugmyndir, gera mistök — og læra af þeim. Gallinn er bara sá að aðstæður hafa aldrei leyft markvissa og áframhaldandi starfsemi. Við þurfum fyrstog fremst aðstæöur til að geta unnið — húsnæði — fjármagn. Það hefur sýnt sig að fr jálsir leikhópar eiga rétt á sér og það sem meira er, þeir eru nauðsynlegir framþróun leiklistar i landinu. Markaðurinn verður aldrei mettur af leikhúsum.” Heilsudrykkurinn — Þaö er vist venjan að spyrja fólk sem lifir og hrærist i bókmenntum um uppá- halds rithöfundinn.... „Jáfalli minn, segðu mér endilega hver er uppáhaldsrithöfundurinn þinn?” Og áð- ur en ég veit af er ég búinn að halda hálf tima ræðu um Ernest Miller Hemingway. Atta mig svo, spóla til baka og reyni eitt- hvað nýtt: — Feröu oft i sund? „Já, ég er búin að vera á leiðinni i sund i 4 ár. Ég sé mig alltaf i anda risa á fætur, eit- urhress kl.7 fyrir hádegi, drifa mig i laug- jna og mæta svo geislandi af hreysti i vinn- bna. En staðreyndin er sú að ég hendist á lappirá siðustu stundu, — næ þó að slafra i mig heilsudrykkinn góða sem heldur mér gangandi allan daginn. Ég skal gefa þér uppskriftina Palli minn: þú blandar saman sitrónusafa, hráu eggi og þrúgusykri og þeytir þetta saman. Ég ráðlegg ölium að prófa þetta.” A meðan Edda er að útlista fyrir mér óendanlega kosti heilsudrykksins — ,,af- sakið meðan ég æli” — tinir hún upp úr tuðru sinni 1,2, 3, 4, 5, 6, 7. litil glös og tekur að hakka i sig kynstrin öll af vitamin- um, járnum og söltum. Talar svo með full- an munninn: „Annars er rikjandi eiginleiki hjá mér ofsa-bjartsýni. Gamli Pollýönnu- leikurinn, þú mannst: ,,Það gæti veriö verra, — miklu verra.” Þannig að árrisulir laugagestir borgarinnar geta átt von á þvi að sjá mig birtast i sundkjólnum minum, með kút og kork, einhvern næstu daga, jafnvel fyrir aldamót.” A leiðinni út úr Torfunni man ég allt i einu eftir þvi að það eina sem ég hafði fyrirfram ætlað aö spyrja Eddu um i þessari kaffi- drykkju (og koniaks-auðvitað fékk ég mér einn) var afstaða hennar til Helgu-vikur- málsins. En Edda afgreiðir það um leið hún smeygir sér i kápuna frammi i anddyri: „Island úr Nató — herinn burt.” —og svo er hún rokin heim að pússa gólf og veggpanel. Auövitað með eldspýtustokkinn minn i vasanum...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.