Helgarpósturinn - 16.04.1982, Side 25

Helgarpósturinn - 16.04.1982, Side 25
og AAaría Gisladóttir h&lgarpn<=rh irinn Föstudagur ió. apríi 1932 Umsjón: Jóhanna Þórhallsdóttir smá pistil um verbúða- lifið og gang mála fyrir vestan. Mashub frá Marokkó að vigta inn Sigrún á borði. i vélasal. Rútuferð i frystihúsið Riitan.rútan, the bus, the bus is coming... Þessi hrtíp og köll heyr- ast um allt i verbúðinni Heimabæ í Hnifsdal. Þar er saman komið fólk héðan og þaðan úr heiminum, þó að mest sé um tslendinga. En þaöermorgunn i Heimabæ, rútan er komin og verbúðarfólkið tinist út. Djöfuis kuldi er alltaf i þessari rútu, heyrist i flestum þegar þeir setjast svefnbtílgnir i isköld sætin en þeir gömlu og reyndu láta það ekkert á sig fá, bjóða bara góðan og blessaðan daginn og byrja að ræða um prófkjörið hjá krötum eða hverjir séu Geirs- eða Gunnarsmenn. En það hlýnar i rútunni á leiðinni i frystihúsið og fólk jafnar sig smám saman. Gary tii vinstri og Sean til hægri að vinna á karfavélinni. Binni að vinna í mottökunni. Það er nú reyndar töluvert siðan far- andverkafólk og ver- búðalif olli sem mestum úlfaþyt vegna lélegs að- búnaðs og kjara en eins og flestir muna var þetta mikið mál fyrir um það bil 11/2 ári. Það vill svo til að tveir 17 ára kunningjar okkar, þeir Nonni og Binni,búa í verbúðinni Heimabæ i Hnifsdal og vinna í frystihúsinu þar. Okkur fannst því tilvalið að hafa samband og feng- um þá til að senda okkur Frekar tilbreytingar- laust Við félagarnir röbbuðum við Sigrúnu, 17 ára stelpu sem vinnur hér, og spurðum hvernig henni fyndist frystihússvinnan vera: ,,Það er nú frekar tilbreyt- ingariaust að vinna á borði allan daginn en getur samt verið ágætt. Það er ágætis mórall á svæðinu og margar vinkonur minar vinna hérna lika. Ég ætla samt ekki að vera hér til frambúðar, ég er að hugsa um að fara i húsmæðra- skóla næsta vetur með vinkonum minum en þangað til ætlum við að vinna okkur innpening fyrir þvi.” — En skemmtanalifið? „Jú, það er náttúrlega alltaf gaman aðfara á böll og fá sér aö- eins i glas. Liðið hérna i Hnifsdal er alveg þrælskemmtilegt.” rPÓSTUR OG SÍMh Okkur Stuðkonum finnst ákaf- lega leiðinlegt hvað dregist hef- ur að birta bréfið frá Völku Sölku en það er nú orðið um það bil mánaðargamalt. Það er bæði plássieysi og þvi að kenna að bréfið hreinlega týndist ein- hversstaðar i prentvélunum. En nú er allt komið á hreint og við biðjum Völku Sölku að fyrirgefa þetta og vonum að þú hættir ckki að skrifa okkur.. Fréttabréf frá Akureyri Kæri Stuðari Já, einstaka sinnum er gaman að lifa. Þó sérstaklega þegar eitthvað kemur manni skemmtilega á óvart. Það var nefnilega þannig að islensku- kennarinn minn ætiar að nota Helgarpóstinn við kennsluna og tók ég hann þvi meö mér i skól- ann i morgun. Og þegar ég hálfsofandi er sest inn i tima, Utanáskriftin er: Stuðarinn c/o Helgarpósturinn Siðumula 11 105 Reykjavik Sími: 81866 dreg ég upp blaðsnepilinn sem ég hafði ekki haft tima til að lita I áður. En skyndilega var ég glaðvakandi. Vei!! Þiö birtuð þá bréfið. Gaman, gaman, ég var nefnilega búin að missa alla von. En sko, þarna stóð þá rit- verk mitt svart á hvitu. Þvilik sæla( En þetta var nú útúrdúr). Hérna norðan heiða hefur litið markvisstskeð idag, þvi miður. En eins og þið stunguð sjálfar upp á, er ég alvcg til I aö senda ykkur linu við og við með fregn- um hérna af heimaslóöum okkar Mariu. Þó var dagurinn i dag dálitið sérstakur. Hann hét nefnilega Reyklaus dagur. Og viö nokkrir heimskir busar stormuöum sem endranær i löngu friminútunum á samkomustað menntskæling- anna. Hugðum við þar reyklaust með öllu. En svo var ekki. Fólk virtist ekki geta neitað sér um munaðinn sem jú sjálfsagt er erfitt, en flestir voru óreykjandi sem betur fer og því hægt aö anda i þetta sinn. Hérna er sjaldan hægt að krydda tilveruna með þvi að bregða sér á verulegt stuö ball. Þess vegna er mikið um að krakkar á minum aldrí bregði á það ráð að reyna að komast inn á skemmtistaðina (þó er Htið um Sjallaferðir núna). Við það eru notuö öll tiltæk ráö. Hafa þau gefist það vel að á timabili voru þetta vist hálfgerð barna- böll en þá rúntaði löggan bara ekkert um eina helgi, heldur var hún i þvi að keyra bragða- refina heim, sem náttúrlega var æðislegt sport. Já, það dugar ekki að deyja ráðalaus. Þá dettur mér það i hug! Þaö er spáð heimsendi á morgún , svo það er til litiis að krafsa þetta. Blessaöar að sinni Valka Salka, Akureyri. Svona smá p.s. " Hafið þið, minar kæru, alla opnuna til umráða fyrir Stuðar- ann? Þarf ekki að senda fullt nafn o'g heimilisfang með hrafnasparkinu? Afsakið fráganginn og allt.. ■Veriöi margblessaöar Valka Salka. Sæl aftur Valka Salka. það var gaman aö heyra frá þér aftur. Þú fyrirgefur okkur vonandi hvað þaö dróst aö birta bréfið frá þér slðast, en stund- um er svo mikiö um að vera I pósti og sima að ekki er hægt aö koma öllu fyrir og þá verðum viö aö birta bréfin i þeirri röð sem að þau berast. Já, Stuöar- inn hefur alla opnuna meö undantekningu sem svarar einni auglýsingu og þetta meö fullt nafn og heimilisfang... við höfum ekki sett þaö sem skilyröi en þaö er alltaf skemmtileg.ra að hafa það með. Og þökk sé rangri spá um heimsendi aö viö getum birt þetta allt núna, með von um meira seinna. Hjartans þakkir frá Stuð- pium. Lærissneiðar, kótelettur og ný ýsa Sean Brandon Cardell Ryan kom til Hnifsdals fyrir 3 1/2 mánuði, alla leið frá Nýja Sjá- landi, til þess aö græða peninga. Honum hefur gengið ágætlega að safna en hélt þó að hann myndi græða meira. Honum finnst ekki mjög gaman i Hnifsdal, viil frekar vera á isafirði. Við spurð- um hann hvemig hann kynni við Islendinga? , J>eir eru finasta fólk og mjög vingjarnlegir, allavega þeir sem ég get talað við á ensku. Verbúðin er lika ágæt, herbergin eru hlý og þægileg. En það eru auðvitað gallar lika, helst um helgar þegar krakkarnir eru að skemmta sér. Eg horfi frekar mikið á sjónvarp- iö og finnst dagskráin bara góð. Svo finnst mér maturinn hér mjög góður, sérstaklega læris- sneiðar, kótelettur og ný ýsa.” Miðað við aðstæður... Annars er verbúðin hérna i Hnifsdal ágætis verbúð. Þetta er gamalt i'búðarhús sem gert var upp og hreinlætis-og eldunarað- staða nokkuð góð. Hér býr ýmiss konar fólk; fólk frá Astraliu, Nýja Sjálandi, Sviþjóð og meira að segja frá Afriku. Svo er eitt alveg pottþétt, nefni- lega skiðalyftan, beint fyrir ofan húsið og þeir sem eiga skiði not- færa sér það svo sannarlega. Mórallinn hér er bara nokkuð góður miðað við aðstæður en þó er kannski einn og einn sem likar ekki alveg við einn og einn.... Nonni og Binni Verbúöinni Heimabæ Hnifsdal. Jörd tíl sölu Við eigum jarðlikön i mörgum stærðum og verðflokkum, bæði upplýst og óupplýst. Stórkostleg fermingargjöf. Gerið fermingarbarnið að stoltum jarðeig- anda.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.