Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 30.04.1982, Qupperneq 14

Helgarpósturinn - 30.04.1982, Qupperneq 14
14 Föstudagur 30. apríl 1982 helgarpósturinn — Faðir minn var arkitekt og var fenginn til að teikna þar sildarverksmiðju árið 1934 en þá voru þar aðeins þrir braggar. Hann fylgdist svo meö uppbyggingu verksmiðj- unnar og rekstri hennar fyrstu árin. Þarna myndaðist þorp og var mikið að gera fram undir 1950 þegar sildin hvarf. Þær eru undarlegar þessar hreyfingar náttilrunnar. Þarna var unnið nætur og daga enþetta var skemmtilegur timi hjá mér og ég á minar hlýlegustu minningar frá þessum árum. Árið 1953 fluttum við til Reykjavikur en þá var ég 11 ára gömul. Það voru mikil við- brigði. Fyrir norðan hafði faðir minn kennt okkur undirstöðuna I helstu skólafögunum en nú fór ég fyrst i skóla. Ég lauk 2. bekk gagnfræðaskóla og langaði þá mikið að verða blaðamaður eins og þú. En ég hafði lika áhugaá tungumálum og fór þvi til Eng- lands til að læra ensku. Þar var ég I ár og svo hálft ár i Þýskalandi. Kom heim voriö 1961. Ferðalðg, kjóll o<j skaulbúningur Maria kom heim, sá og sigraði i bókstaf- legri merkingu þess orðs þvi nokkrum mánuðum eftir heimkomuna var hún oröin Ungfrú Island meö tilheyrandi mögu- leikum. Hvernig atvikaðist það? — Það var Gisli Sigurðsson,ritstjóri Les- bókarMorgunblaðsins,sem sá mig i Lidó og kom þeirri flugu inn i kollinn á mér að ég ætti að taka þátt i keppninni. Ég skil raunar ekki hvað rak mig út i þetta þvi ég er feimin að eölisfari og haföi á þessum árum mikla komplexa. Ég var t.d. nokkuð i handbolta og valdi þá markmannsstööuna af þvi að þá gat ég verið i siðum buxum. Ég held að ég hafi ekki tekið þetta alvarlega — fyrr en ég kom upp á svið i Austurbæjarbiói þar sem undankeppnin fór fram. Þá varð ég óskap- lega nervös. En ég komst áfram i úrslitin á Hótel Borg og varö númer 1. Að launum fékk ég ferð á Langasand, siðan kjól og skautbúning. Þaö leið svo ár þangað til ég fór á Langasand. Þar komst ég áfram i úr- slitin en datt svo út. Enginn veil sfnð ævinð... — Og svo geristu fyrirsæta. — Já, það byrjaði með þvi að fyrirtæki i Frakklandi, Comité Francais de l’Ele-' gance, sem hafði yfirumsjón með öllum fegurðarsamkeppnum i Evrópu, fékk mig ásamt sigurvegurunum frá Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og stúlku frá fyrir- tækinu til að fara i tiskusýningarferðalag um nokkur lönd Mið- og Suður-Ameriku. Ég skildi ekki hvers vegna ég varð fyrir valinu þvi ég var alls óvön tiskusýningum. Þegar ég kom til baka var ég staöráðin i að taka aldrei þátt i svonalöguöu framar. Ég stoppaði nokkra daga hjá frænku minni sem bjó i Paris ásamt manni sinum sem var Bandarikjamaöur. Einn daginn fór ég i hárgreiðslu og þar sem ég sit á stofunni tek ég eftir konu sem horfir stift á mig. Þetta stóð lengi og var orðið óþægilegt. En þegar ég var búin kom hún til min og spurði hvort ég væri fyrirsæta. Ég sagði nei og var jafn neikvæð þegar hún spurði hvort ég hefði áhuga á að verða það. Hún bað mig samt aö hugsa máliö og lét mig fá nafnspjald. Ég var alsæl þegar hún fór. Þegar heim kom sagði ég frænku minni og manninum hennar frá þessu en bætti þvi við að ég hefði engan áhuga og hélt að þetta væri bara vitleysa. Svo sýndi ég þeim spjaldið. Hann sagöi aö ef þetta stæðist væri um að ræða eina frægustu fyrirsætu sem Bandarlkin hefðu átt, Dorian Leigh Parker, og að ég heföi möguleika á að kom- ast á forsiöur frægustu blaða. Þeim tókst að tala mig upp i að fara og athuga málið. Þegar ég sat á skrifstofunni og beið eftir aö Dorian hætti aö tala i simann kom inn maður sem hafði allt á hornum sér. „Þetta er ómögulegt”, sagði hann og svo fór hann að horfa á mig eins og konan á hárgreiðslu- stofunni, og mér fannst það jafn óþægilegt. Loks spyr hann hvort ég vinni þarna og Dorian svarar þvi játandi. Þetta var þá umboðsmaöur frá Coca Cola og hann vildi fá mig I ferð upp I frönsku Alpana þar sem átti að taka auglýsingamyndir. Ég hugsaði með mér að ég gæti fyrst farið heim, út aftur til Alpanna og komið heim með ein- hvern vasapening. Og sló til. En þegar ég kom aftur til Parisar var Dorian búin að bóka mig á hverjum einasta degi i tvo og hálfan mánuö. Á baoiötum r snjó — Og þá hafa örlögin verið ráöin? — Já, Dorian var umboðsmaður minn i Evrópu i mörg ár og reyndist mér vel. Siðar < kynntist ég Eileen Ford sem geröist um- - boðsmaður minn vestanhafs. Ég var á , þeytingi fram og til baka yfir hafið og vann einnig í Englandi og Þýskalandi næstu árin. i Alls vann ég sem fyrirsæta i 16 eða 17 ár. ] — Hvernig likaði þér starfið? — Mér fannst það skemmtilegt. Það bauð upp á margt, feröalög og svo kynntist maður mörgu fólki og margvislegu. En ] þegar á leið fannst mér það fremur innan- tómt, maður fékk heldur litla andlega hvatningu. Þetta getur lika verið ansi erfitt oft er vinnutiminn langur og aðstæður mis- jafnlega góðar. Það er heldur engin misk- unn sýnd, t.d. þegar maður á að sitja fyrir I baðfötum i snjó. Þá er bara aö standa sig. En mér finnst samt aö stúlkur sem eiga möguleika á þessu starfi ættu að notfæra sér hann. Það má ýmislegt læra af þessu og það hefur bæði kosti og galla. — Eitthvað varstu viðriðin kvikmynd- irnar. — Já, en ég er engin leikkona, þetta bara slysaðist svona til. Ég lék aðalhlutverk I þýskri mynd sem gerö var á Sri Lanka suður af Indlandi. Svo lék ég i tveimur stuttum ameriskum myndum og smáhlut- verk i Paradisarheimt, ég var ein af konunum hans Þjóðreks biskups. Mér fannst þetta skemmtilegur heimur, hann er allur stærri i sniðum en ljósmyndabrans- inn. En þó er margt likt, þarna vinnur fólk saman i stórum hóp þar sem hver hefur sitt hlutverk. Mormónar — Hvernig leist þér á þig I mormóna- byggöum? — Það var gaman að kynnast mor- mónunum og sjá hús brautryðjandans Brigham Young. A þaki þess eru 27 kvistir en þar hafði hver kona sinn kvist. Það var merkilegt að upplifa fjölkvænið, það var svo allt öðru visi en flestir gera sér i hugar- lund, þetta var ekkert siðleysi. Karlmenn-1 irnir giftust konunum af ýmsum ástæðum, einkum þó til að veita konunum heiður og rétt i þjóðfélaginu. Til dæmis Þjóðrekur biskup,hann fréttir af aldraðri konu sem hafði lent i slysi, fer að heimsækja hana á spitalann og býður henni að koma með sér heim og passa börnin. Siðar giftist hann

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.