Helgarpósturinn - 30.04.1982, Blaðsíða 17
17.
hppltJFtrpn<=;tl irinn Föstudagur 30. apríl 1982
Grúsk 16
fer að verða gamall, ég ræð ekki við það.
Svo sagði hann, og hló við: ég er forfallinn
maður á tóbak og blek.
Þegar menn fara aö eldast, fara þeir að
lita um öxl og rifja upp.”
— Voru einhverjir grúskarar i kringum
þig, þegar þú varst ungur?
„Nei, þeir voru engvir, en þetta er i ætt-
inni. Faðir minn var bókhneigður maður og
minnugur. Ég var ungur þegar ég fór aö
tala við gamalt fólk og punktaði niður það,
sem það sagði mér. Ég var ekki tvitugur,
þegar ég fór að hlusta á karla og kerlingar
og festa á blað.”
— Hvað geturðu sagt mér um manngerð
grúskarans?
„Það er mikiö álitamál. Þeir eru
stundum taldir sérkennilegir. Ég hef verið
talinn það og er ánægður með það.”
— Er ykkur kannski stundum legið á hálsi
fyrir þetta?
„Nei, það held ég ekki. En það er margt
fólk, sem segir: hvað þýðir að vera að
þessu, þetta má gleymast. En svo þykir
öðrum gaman að þessu, og stundum kemur
fólk að spyrja mann um hitt og þetta.”
— Hvar ertu að þessu grúski þinu?
„Ég hef oft og lengi komið upp á safn. Ég
sæki mér föng i kirkjubækur og heimildir,
en svo er ég heima, þegar ég þarf eitthvaö
að krota.”
— Er mikiö um grúskara?
„Þaðerliklega dálitið af þeim, en ég veit
ekki svo um þá.”
— Þiö haldið þá ekki hópinn?
„Nei, við höldum ekki hópinn.
Mér skilst, að ættfræði sé mikið i uppsigl-
ingu hjá yngra fólki. Ég hef séð mikið af
skólafólki uppi á safni að stúdera ættfræði.
Það er gott að byrja ungur, ef maður hefur
áhugann.”
— Attu einhver heilræði handa þeim, sem
eru að byrja grúsk, geturðu mælt með
þessu?
„Já, ég get vel mælt með þvi, ef fólk
hefur ánægju af þvi. Það er ágætt þegar
fólk verður gamalt. Þetta er hugðarefni,
sem styttir timann og er betra en að sitja
auðum höndum og gera ekki neitt.
Ég held, að ef maður reynir að vera sam-
viskusamur i þessu, hafi allir eitthvað gott
af þvi. Ég er ekki að segja það mér til
gildis, en svona fólk hefur stundum bjargað
ýmsum fróðleik, sem hefur þótt betra en
ekki að eiga til,” sagði Skúli Helgason að
lokum.
KÚPTU ÞAKGLUGGARNIR
frá FAGPLAST
gera meira en aó duga
Með langri reynslu í framleiðslu
þakglugga, hefurokkur
tekist að hanna glugga, sem þola
mjög vel íslensktveðurfar, gefa
margfalda birtu og einangra betur
en það er meira en margur
getur sagt. Viö bjóðum einnig
ráðgjöf, ýmsarsérsmíðarvarðandi
gluggana og hagstætt verð.
Einnig viljum við benda á ýmsar
lausnir sem við getum
boðið upp á í sambandi við
opnun á gluggum í mikilli hæð svo
sem í verksmiðjuhúsnæði og
þess háttar, þægindi
sem ekki er hægt
aðveraán.
Leitið nánari upplýsinga.
Furuskápur: 1.653.-
Hvít kommóða: 880,-
Hvíturfataskápur:
880,-
Hillusamstæðursem raðaðeruppúreiningumbæði hvítarog úrólitaðri furu áafar
hagstæðu verði.
HAGKAUP
Skeifunni15