Helgarpósturinn - 30.04.1982, Blaðsíða 20
20
Föstudagur 30. apríl 1982 —helgarpósturinn
Nýtt íslenskt leikrit á Akureyri:
Um unglinga og þeirra líf
Or sýningu leikklúbbsins Sögu á önnu LIsu eftir Helga Má Barða-
son.
Það telst alltaf til tiðinda, þegar
frumflutt eru ný islensk leikrit,
einkum og sér í lagi, þegar um er
að ræða frumraun höfundar.
Slikur viðburöur gerðist á
Akureyri um síðustu helgi, þegar
leikklúbburinn Saga frumsýndi
leikritið önnu Lisu eftir Helga Má
Barðason, forstööumann félags-
miðstöðvarinnar Dynheima.
Helgarpústurinn sló á þráðinn til
Helga Más og bað hann að segja
frá þessu leikriti sinu.
,,Það er um önnu Lisu, sem er
fjórtán ára unglingur þegar leik-
ritið byrjar. Þvi er skipt i þrjá
þætti og i öðrum þætti er hiin 18
ára og 22 ára i þeim þriðja. Það er
fylgst með henni, fjölskyldu
hennar og vinum, og breytingum
á þeirra högum, hvernig þau
eldast og þroskast”, sagði Helgi
Már.
Hann sagði, aö þetta væri á
köflum gamanleikrit, en með
„Fyrst og fremst formtilraun''
segir Kjartan Ragnarsson um nýjasta verk sitt,
Skilnað, sem sýnt verður á Listahátíð í júní
„Þetta er fyrst og fremst tölu-
verð formtilraun hjá mér. Við
breytum leikhúsinu þannig, að
leiksviðið verður i miðjum saln-
um, og ég skrifa leikrit *nn i þetta
form. Eins og nafnið bendir til,
fjallar leikritið um skilnað og það
fylgir konunni fyrstu vikurnar og
mánuðina eftir skilnaðinn”, sagði
Kjartan Kagnarsson leikrita-
höfundur og leikari um nýjasta
verk sitt, Skilnað, sem sýnt
verður á tveim forsýningum á
Listahátið i júni, en siðan frum-
sýnt næsta haust.
Ekki vildi Kjartan greina nánar
frá efni leiksins, en sagði, að
Skilnaður væri mjög ólikur hans
fyrri verkum, það væri ekki eins
raunsætt. Hann sagðist hafa gert
þessa tilraun vegna þess, að
sviðiö i Iðnó væri bindandi sem
leikhús. Þó þessi litli kassi væri
ágætur, væru leikarar samt
komnir með innilokunarkennd og
sú tilfinning gerði það að verkum,
að honum fannst hann verða að
brjóta þetta upp.
Kjartan er sjálfur leikstjóri
verksins, en með aðalhlutverkið
fer Guðrún Asmundsdóttir. Aðrir
leikarar eru Jón Hjartarson,
Guðrún Gisladóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Soffia Jakobsdóttir
og Aðalsteinn Bergdal. Leikmynd
er eftir Steinþór Sigurðsson og
hannar hann salinn alveg upp á
nýtt vegna hins nýja leikrýmis.
Tónlist og leikhljóö eru eftir Áskel
Másson og gegna þau þýðingar-
miklu hlutverki i sýningunni.
Verður tónlistin flutt af fjögurra
rása tækjum. Sú nýbreytni var
einnig höfð við tónlistina, aö
Askell samdi hana áður en farið
var út I samlestur á leikritinu.
Tónlistin var siðan tekin upp i
stúdiói og gengið frá henni endan-
Aðalsteinn Bergdal og Guðrún Asmundsdóttir kljást i Skilnaði eftir
Kjartan Ragnarsson.
lega og leikurinn svo lagaöur aö Forsýningarnar tvær á Lista-
henni, en ekki öfugt. hátiö verða dagana 19. og 20. júni.
alvarlegri atriöum inni á milli og
það vaa-i að sjá á áhorfendum, að
þetta væri fyrir alla aldurshópa,
og náttúrlega ekki sist fyrir
unglinga.
Helgi Már sagði, að hann hefði
byrjaö á samningu leikritsins i
haust er leið og verið aö smá
skrifa.þaö, en hann heföi ekki lok-
ið þvi fyrir en i þann mund, að
farið var að æfa. Astæöuna fyrir
þvi aö hann samdi leikritið sagði
hann vera þá, að hann væri sjálf-
ur félagi i leikklúbbnum og hefði
lengi langað til að skrifa eitthvað
fyrir krakkana i klúbbnum. Það
hefði siöan verið ákveðið, að hann
reyndi það og þegar I ljós hefði
komið, að hann gæti það, hefðu
menn sest niður og rabbað um
verkið.
Ekki sagðist Helgi Már vera
með annað verk i takinú, hann
ætlaöi aö sjá hvernig þessu verki
vegnaði. Hins vegar væri ekki ó-
liklegt, að af þvi yröi i framtfð-
inni. Leikhópurinn fer í leikferð
um þessa helgi til Hvammstanga
og Hofsóss, en um næstu helgi
verður farið i Hrisey og á Greni-
vik. Þaö er ekki útiiokað, að við
sunnanmenn fáum að sjá verkið,
þvihópnum hefurveriðboðið með
það til Danmerkur i haust og þá
yrðu kannski ein eða tvær
sýningar á þvi i Reykjavik, áður
en hópurinn héldi utan.
Leikendur i önnu Lísu eru ell-
efu og leikstjóri er Þröstur Guð-
bjartsson.
Náttúran á striga
og veggteppum í
Norræna húsinu
Steinþór Gunnarsson og Sigrún dóttir hans fyrir framan verk sin I
Norræna húsinu.
Feðginin Steinþór Gunnarsson
og Sigrún Steinþórsdóttir Eggen
standa um þessar mundir að
samsýningu i sýningarsal
Norræna hússins. Þetta er önnur
samsýningþeirra,ensú fyrri var
i FlM-salnum 1980.
Sigrún er fædd i Reykjavik þar
sem hún stundaöi verknám, en
siöan hélthúntil Noregs, þar sem
hún læröi myndvefnað á Þela-
mörk, Rogalandi og Vestfold.
Hún fór einnig margar náms-
ferðir til ýmissa Evrópulanda,
eins og Póllands, Hollands og
Frakklands. Sigrún kennir við
Heimilisiðnaðarskólann á Vest-
fold, auk þess sem hún hefur eig-
in vefstofu i Stavern.
Verk Sigrúnar á sýningunni i
Norræna húsinu eru 27 að töluog
eru það veggteppi. 1 samtali við
Helgarpóstinn sagði hún, að þau
væru aöallega unnin úr fslensku
ullinni og islensku bandi. Einnig
notar hún „jute”, sem er jurt,
upprunnini Bangladesh, og mikið
notuð i gólfdregla, mottur og
kaðla.
Fyrirmyndirnar aö veggtepp-
unum sækir Sigrún í náttúruna og
landslagið, þetta eru fantasiur úr
náttúrunni, eins oghún orðar það.
Steinþór sagði i samtali að
hann væri með 67 verk á sýning-
unni, þar af 20 ollumálverk og
upphleyptar strigamyndir, og 47
monoþrykk.sem eru vatnslita- og
akrilmyndir. Viðfangsefni hans á
myndunum sagði hann vera
náttúruna, bæði náttúru-
stemmningar og fantasiur i
monoþrykkinu, en málverkin
væru hefðbundnar landslags-
myndir.
Sýning þeirra Steinþórs og Sig-
rúnar stendur i Norræna húsinu
til 9. maf, en eftir það fer hluti
hennar noröur til Siglufjarðar,
þar sem sett verður upp sýning i
Ráöhúsinu. t haust verða þau svo
með samsýningu i Drammen
kunstforening rétt hjá Osló.
Myndljóðabók
Örn Þorsteinsson og Thor Vil-
hjálmsson leggja saman í púkk
Fyrir hálíum mánuði opnaði
örn Þorsteinsson myndlistar-
maður sýningu á verfcum sinum i
Listasafni Alþýðu viö Grensás-
veg. 1 sambandi við þá sýningu er
nú komiö út li'tið snorturt kver
sem inniheldur myndir Arnar á-
samt ljóðum sem Thor Vilhjálms-
son hefur gert við þær.
Tilurð bókarinnarvar sú að örn
sendi Thor nokkrar myndir úr
„þúsund mynda safninu” sinu og
bað hann aö yrkja við þær.
Útkoman varð 30 glæný Ijóð og
fyrsta ljóðabók Thors á islensku.
Siðan settust þeir saman ásamt
Jóni Reykdal, felidu ljóðin að
myndunum og þremur dögum
seinna var bókin prentuð. Þökk-
uðu þeir þennan góða árangur
vandlátum fagmönnum sem
sýndu verkinu mikinn áhuga.
Þetta er i fyrsta sinn sem örn á
þátt i bókaútgáfu og sömuieiðis
hefur Thor aldrei ort við myndir
áður. Ekki sagði Thor að Ijóöin
væru rigbundin myndunum en
„þaö er ákveðiö samspil milli
mynda og ljóða”.
Bókin kom út daginn sem
sýningin opnaði og er seld i 250
tölusettum eintökum á sýningar-
stað, Grensásvegi 16. Sýningin
verður opin fram til 9. mal.
—ÞH
Iiöfundar bókarinnar Mynd Ljóð: Thor Vilhjálmsson og örn Þor
steinsson.